Víkurfréttir - 29.07.2020, Side 72
Grace með Jeff Buckley
Þetta er ein albesta plata sem út h
efur komið.
Túlkun og tilfinningar Buckley ná
alveg inn í
merg og þessi plata vex með hverr
i hlustun,
verð aldrei leið á henni. Vinur min
ni benti mér
á hana á sínum tíma og hún ratar
reglulega á
fóninn rúmum aldarfjórðungi síða
r.
Hefði getað nefnt hundrað
plötur í viðbót, bæði
íslenskar og erlendar,
gamla klassík og nýtt og
spennandi efni, og mér
finnst alveg fáránlega erf-
itt að gera upp á milli. En
þessar perlur standa fyrir
sínu og ég læt þær standa
fyrst ég mátti ekki velja
fleiri!
The Joshua Tree með U2Hef elskað U2 og fylgt frá því á barnsaldri og á allar þeirra plötur. Mamma heitin hafði það fyrir reglu að splæsa á mig einni plötu fyrir hverja 10 í einkunn sem ég fékk í skóla og þessa plötu keypti ég einmitt af slíku tilefni. Var reyndar komin í menntaskóla en reglan hjá mömmu gilti enn. Þykir þess vegna mjög vænt um hana og svo var mín upplifun af þessari plötu toppuð á 30 ára afmælistónleikum hennar árið 2017, á heimavelli þeirra félaga í Dublin. Algerlega ógleymanlegt kvöld sem maður mun lifa á lengi enda U2 ein besta tónleikasveit sögunnar og lögin kann ég afturábak og áfram.
Destroyer m
eð KISS
Destroyer e
r fyrsta plat
an sem ég k
eypti með
mínum eigi
n peningum
. Er búin að
eiga hana
í rúm fjörtíu
ár og síðast
liðin ár hef é
g náð að
hitta alla up
prunalegu m
eðlimi KISS
og fengið
þá til að árit
a plötuna. U
mslagið er o
rðið nokkuð
lúið enda pl
atan verið s
piluð í áratu
gi, ég merkt
i
mér hana á
sínum tíma
þannig að m
ín barna-
skrift er þar
na innan um
áritanir stj
arnanna
sjálfra. Mög
nuð upplifu
n að hitta k
appana og
stórkostlegt
að eiga plöt
una áritaða
. Hún er á
leið í ramm
a og upp á v
egg.
Ten með Pearl JamÉg var við nám í Bandaríkj-unum þegar grunge-rokkið tók yfir heiminn. Rokkhundurinn í mér féll strax fyrir Nirvana, Pearl Jam, Soundgarden og álíka sveitum og þessi plata hitti mig bara strax í hjarta-stað. Eddie Vedder er auðvitað einn albesti rokksöngvari allra tíma og einn af mínum allra mestu uppáhaldsmönnum. Get endalaust hlustað á þessa plötu og hún virkar alltaf ef maður þarf að rífa sig eitthvað í gang. Rokkogról!
Fimm uppáhaldsplötur HULDU GEIRS
Að biðja manneskju eins og mig um að velja fimm uppá-
haldsplötur er meira en að segja það þegar tónlistaráhug-
inn er botnlaus og smekkurinn fjölbreyttur. Ég á örugglega
um þúsund plötur og hlusta á alls kyns tónlist alla daga
– en ég ætla að nefna nokkrar plötur sem hafa verið í sér-
stöku uppáhaldi eða haft mikil áhrif.
Bring on the Night með Sting
Bring on the night er tónleikaplata tek
in
upp á mörgum tónleikum yfir árs tíma
bil
eða svo. Þarna er Sting með svo ótrúle
ga
magnaða hljóðfæraleikara með sér að
unun
er á að hlýða. Ekki hefðbundin ungling
a-
plata en hún náði svo sannarlega til m
ín
og ég man eftir að hafa verið mikið að
hjóla
sumarið eftir að eignaðist hana og allt
af með
Walkman-inn með þessari kassettu í. H
jólaði
í Sandgerði og Garð við undirleik Sting
og
félaga. Geggjuð plata sem ég mæli með
.
72 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Miðvikudagur 29. júlí 2020 // 29. tbl. // 41. árg.