Morgunblaðið - 01.05.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 01.05.2020, Síða 4
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vestmannaeyjar Eyjamenn komu standandi niður úr hópsýkingunni. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Staðfest er að 105 íbúar Vestmanna- eyja smituðust af kórónuveirunni í stórri hópsýkingu sem þar er nú að mestu gengin yfir. Aðeins einn er nú í einangrun. Ellefu eru enn í sóttkví en alls hafa rúmlega 600 þurft að fara í sóttkví á þessu tímabili, þar með taldir nokkrir tugir vegna dval- ar erlendis. Leifar erfðaefnis veir- unnar hafa greinst áfram í nokkrum einstaklingum, eftir að einangrun var lokið. Ekkert sýni greindist jákvætt á landinu öllu síðasta sólarhring þrátt fyrir að 840 sýni hafi verið tekin. „Ég er nokkuð bjartsýnn núna á að þetta sé yfirstaðið en mikilvægt er að við séum áfram á varðbergi,“ segir Hjörtur Kristjánsson, um- dæmislæknir sóttvarna á Suður- landi, spurður að því hvernig staðan sé í baráttunni við veiruna í Eyjum. Upphaf hópsýkingarinnar er helst rakið til handboltaleikja sem fjöldi Eyjamanna sótti á höfuðborgar- svæðinu í byrjun mars. Grunur er um að þannig hafi veiran borist inn á nokkur heimili í Vestmannaeyjum á svipuðum tíma og síðan komið nokk- ur 2. og 3. kynslóðar smit í kjölfarið. Hjörtur segir að ekki sé ósenni- legt að smit hafi einnig borist beint inn í samfélagið með fólki sem var að koma frá útlöndum og jafnvel eft- ir fleiri leiðum. Hann segir að upp- runi smita skýrist mögulega betur þegar Íslensk erfðagreining hefur raðgreint veirusýni. Mikil skimun hjálpaði Gripið var til strangra samkomu- takmarkana og smitvarna til að slá á faraldurinn og beitt þeim ráðum sem þekkt eru orðin, að greina sem fyrst smitaða, einangra þá og rekja ferðir viðkomandi og setja í sóttkví þá sem þeir hafa umgengist. Síðan var mikið unnið að skimum í Eyjum í samstarfi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Íslenskrar erfða- greiningar. 1.500 voru skimaðir í átaki í byrjun apríl og greindust þá 33 einstaklingar. Hluti þeirra fékk aldrei einkenni en aðrir fengu ein- kenni síðar. Hjörtur segir að eftir stóru skimunina hafi aðeins tvö smit verið staðfest. Annað þeirra kom út úr 550 manna skimun hjá heilbrigðis- stofnuninni helg- ina 17. til 19. apríl þegar einnig var verið að taka blóðprufur vegna rannsókna Íslenskrar erfðagrein- ingar á veirunni. Niðurstaða lá fyrir 20. apríl og er það síðasta tilfellið sem komið hefur upp. „Mikilvægt er að vera duglegur að skima. Ef of lítið er gert af því nær veiran að breiðast lengur út áð- ur en hún uppgötvast og klasi tilfella verður stærri en ella,“ segir Hjört- ur. Hann bætir því við að almennar sóttvarnir séu ekki síður mikilvægar og hrósar Eyjamönnum fyrir sam- stöðu. Ekki taldir smitandi Í seinni stóru skimuninni voru auk blóðsýna tekin strok, meðal annars frá einstaklingum sem lokið höfðu einangrun og náð bata. Var þetta gert í rannsóknarskyni, en Hjörtur segir þekkt erlendis að erfðaefni veirunnar getur fundist í slímhúð í öndunarvegi í talsverðan tíma eftir að fólki hefur batnað, án þess að það sé smitandi. Eins og við var búist fundust leifar erfðaefnis veirunnar í koki eða nefi nokkurra sem lokið höfðu einangrun. Hjörtur tekur skýrt fram að þótt leifar erfðaefnis finnist eftir að sjúk- lingur er útskrifaður úr einangrun sé það ekki til marks um að fólkið sé smitandi. Enginn af þeim sem fylgst hefur verið með í Eyjum hafi því verið settur í áframhaldandi eða endurtekna einangrun eða sóttkví út af þessu. Hins vegar gildi sömu regl- ur sóttvarnalæknis og almennt um að viðkomandi þurfi að forðast náin samskipti við fólk í áhættuhópum fyrstu tvær vikurnar eftir útskrift úr einangrun. Það fari því ekki til vinnu á hjúkrunarheimilum fyrr en að þeim tíma loknum, svo dæmi sé tekið. Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 2 43 Ú Austurland 8 18 Höfuðborgarsvæði 1.311 384 Suðurnes 77 37 Norðurland vestra 35 16 Norðurland eystra 46 28 Suðurland 178 68 Vestfirðir 97 39 Vesturland 42 26 Smit Sóttkví Uppruni smits Innanlands Óþekktur Erlendis 48.413 sýni hafa verið tekin 10 einstaklingar eru látnir 6 eru á sjúkrahúsi Enginn á gjörgæslu 117 einstaklingar eru í einangrun 117 eru með virkt smit Fjöldi smita frá 28. febrúar til 29. apríl Heimild: covid.is 1.797 smit voru staðfest í gær kl. 13.00 1.797 117 1.750 1.500 1.250 1.000 750 500 250 þeirra sem hafa greinst voru í sóttkví 81% 57% 19.069 hafa lokið sóttkví659 manns eru í sóttkví Staðfest smit Virk smit 1.670 einstaklingar hafa náð bata Vonast til að sýkingin sé yfirstaðin Hjörtur Kristjánsson  Leifar erfðaefnis finnast í nokkrum sem útskrifaðir hafa verið úr einangrun KÓRÓNUVEIRUFARALDUR4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2020 GRÆNT ALLA LEIÐ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við höfum ekki náð að tengja sam- an öll smitin. Það er ógerningur. En við erum komin með vissar myndir,“ segir Jónas Orri Jónasson, meðlimur í smitrakningarteymi almannavarna og sóttvarnalæknis. Starf smitrakningarteymisins þykir hafa átt stóran þátt í því hversu vel yfirvöldum hér hefur gengið að vinna bug á útbreiðslu kórónuveirunn- ar. Hlutverk teymisins hefur fyrst og fremst verið það að rekja ferðir ein- staklinga sem hafa smitast og kanna við hverja þeir hafa átt samskipti svo hægt sé að koma því fólki í sóttkví. Samhliða þessu starfi hefur það ver- ið einskonar hliðarverkefni að kort- leggja hvernig veiran hefur farið í gegnum samfélagið. Jónas hefur tekið saman eitt dæmi um þá vinnu og má sjá afrakstur hennar á meðfylgjandi skýringar- mynd. Myndin sýnir hvernig smit bárust frá einstaklingi sem kom hingað til lands frá skíðasvæði í Evr- ópu. Viðkomandi smitaði einn ein- stakling í sínu nánasta umhverfi og sá smitaði svo tvo aðra í sínu um- hverfi. „Svo sést hvernig þetta fer mann frá manni og allt í allt eru þetta tuttugu manns sem hægt er að tengja við einn einstakling,“ segir Jónas sem tekur fram að myndin sé aðeins einfölduð því innan hennar sé hópur sem smitaðist á svipuðum tíma. Umtalsverður árangur hefur náðst í þessari kortlagningu. „Gróft á litið höfum við náð að tengja 70% þeirra sem hafa smitast við annan einstakling. En svo eru alltaf ein- hverjir sem vita ekkert hvernig þeir urðu veikir. Það eru um 30% þeirra sem hafa smitast. Við erum að rýna í gögnin núna og sjá hvort við getum gert þetta eftir á.“ Eftir standa þau smit sem ekki hefur tekist að greina, til að mynda fólk sem talið er að hafi smitast við ferð út í búð eða á aðra almennings- staði. „Það getur verið svolítið strembið að greina þessi yfirborðssmit. Til að mynda nældi einn úr smitrakningar- teyminu sér í veiruna. Hann vissi ekkert hvernig það gerðist enda hafði hann bara farið í og úr vinnu. Við vorum öll send í próf og hann greindist en hafði verið einkennalaus og frískur. Það er ýmislegt enn á huldu með það hvernig þetta gengur fyrir sig,“ segir Jónas. Aðspurður segir hann að vísbendingar séu um að fólk hafi smitast á veitingastöðum hér á landi en erfitt sé að staðfesta það nákvæmlega. Þannig sé í raun erfitt að fullyrða með vissu um smit, alltaf sé um vísbendingar að ræða. „Sökum þess hve einkenni koma fram á mismunandi tímum er erfitt að segja nákvæmlega til um það hver smitar hvern eða hvar einstaklingar smitast. Þetta verður ábyggilega rannsakað í þaula á næstu árum.“ 20 smit tengd við einn einstakling Skíðasvæði A C E G RQ TS B H M P LJ KI ON D F Heimild: Smitrakningar- teymi almannavarna og sóttvarnarlæknis Hafa náð að tengja saman 70% smitanna  Áhugaverðar niðurstöður vinnu smitrakningarteymisins Jónas Orri Jónasson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.