Skessuhorn - 07.04.2020, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 7. ApRíl 20204
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.280 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.840. Rafræn áskrift kostar 2.570 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.370 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Sjónvarpslausu
fimmtudagskvöldin
Þær aðstæður sem nú eru uppi í samfélagi þjóða eru um margt án for-
dæma. Sökum veirufaraldurs er fólki ráðlagt að halda sem mest kyrru fyr-
ir, rækta sem minnst félagsleg tengsl út á við, samkomur eru bannaðar og
almennt er fólk því lítið á ferli. Meirihluti sækir þó enn vinnu og lagt er í
hendur skynsemi fólks að fara að fyrirmælum um hegðun á almannafæri,
á vinnustöðum, í umferðinni og hvarvetna þar sem tveir eða fleiri koma
saman. Innan veggja heimilisins skal fólk halda sig sem mest og ef farið er
út í heilsubótargöngu skal virða fjarlægðarmörk og friðhelgi hvers og eins.
Samhliða hefur þetta ástand þau áhrif að fólk eykur samskipti sín í raf-
rænum heimi samfélagsmiðla og lestur frétta hefur stóraukist. Þannig má
þakka fyrir að allflestir búa nú við góðar nettengingar og geta fylgst með
því sem gerist frá degi til dags.
Á nokkrum vikum höfum við því orðið að tileinka okkur allsendis nýtt
hegðunarmynstur. Við erum jú dýrategund sem hefur tilhneigingu til að
halda sig í hópum líkt og útigangshross. Það kallast hjarðhegðun. Á nokkr-
um vikum höfum við orðið að tileinka okkur hegðun annarra dýrategunda,
nefni til dæmis sauðkind, sem ólíkt hrossunum fer sínar eigin leiðir í hag-
anum og velur sér grasbala með lömbin sín, fjarri öðrum kindum. Unir sér
best þar. Nú eða minkurinn sem fer einatt sínar eigin leiðir og hrekur frá
sér minka úr öðrum grenjum með ofstæki. Gefur þannig skýr skilaboð um
að hann eigi veiðilenduna í næsta nágrenni og óviðkomandi séu þangað
óvelkomnir. Þannig auka þeir líkur á að ná yfir sumarið að safna nægum
matarforða í bú sitt. Þeir haga sér ekki ósvipað og mannfólkið sem hamstr-
aði bökunarvörur og klósettpappír þegar samkomubann var yfirvofandi.
Allir vildu auka líkurnar á að lifa af einn harðindavetur eða svo, líkt og
minkurinn, með nægan matarforða og þar að auki vel skeindir.
En þegar okkur er skyndilega, nánast á einum degi, gert að breyta al-
mennu mynstri okkar frá hjarðhegðun og yfir í einveru, eða í hæsta lagi
samveru innan þess litla hóps sem alla jafnan dvelur innan veggja heim-
ilisins, getur reynt á. í seinni tíð höfum við tileinkað okkur ýmis mynstur
sem markaðsöflin hafa fært okkur heim sanninn um að séu ómissandi. Við
getum valið úr ótölulegum fjölda sjónvarps- og útvarpsstöðva, týnt okk-
ur í óravíddum Internetsins og nú í seinni tíð verið þátttakendur á sam-
félagsmiðlum þar sem við getum deilt meðal vina okkar þar ýmsum hug-
renningum, leikjum eða fróðleik. Reyndar hafa fyrrgreind markaðsöfl nú
einnig yfirtekið samfélagsmiðlana, þannig að þar er varla verandi lengur,
og sannast þar orð úr guðspjöllunum: „Þú getur ekki þjónað bæði Guði og
Mammon.“
Engu að síður er hægt að stytta sér stundir og láta daginn líða með ýmsu
móti og þar er vissulega hver sinnar gæfu smiður. Umfram allt er mikil-
vægt, nú þegar okkur er skylt að hætta því um tíma að vera hjarðhegðunar-
skepnur, að finna leiðir til dægradvalar og afþreyingar eins og hverju okkar
hentar, þurfum kannski að hugsa eins og sauðkind. Við þurfum að gæta
þess vel að setja okkur ekki á kaf ofan í rafbylgjur snjalltækja, sjónvarps og
tölva liðlangan daginn. Það er nefnilega beinlínis óhollt fyrir sálartetrið. Þá
er mjög mikilvægt að gæta að hreyfingu og dagleg útivera er að mínu viti
það besta sem í boði er bæði fyrir líkama og sál. Ég var barn þegar sjón-
varp kom fyrst á heimilið, löngu fyrir tíma Internetsins og farsíma. Það er
gott að rifja upp hvernig dægradvöl þess tíma var og ég er ekki frá því að
almennt hafi sálarlíf landans verið frískara í þá daga. í minningunni var þá
meiri útivera ungra sem aldinna, bóklestur var stundaður, jafnvel sest við
spil en umfram allt var rætt meira saman. Ekki hvað síst á sjónvarpslausu
fimmtudagskvöldunum, en slíka daga er núna gott að hafa upplifað.
Gleðilega páska!
Magnús Magnússon
Að tillögu Ásmundar Einars Daða-
sonar félagsmálaráðherra hef-
ur Vinnumálastofnun og stjórn
Tryggingasjóðs sjálfstætt starf-
andi einstaklinga gert samkomulag
við Bændasamtök íslands um fjár-
stuðning vegna afleysingaþjónustu
fyrir bændur sem veikjast af kórón-
uveirunni og geta af þeim sökum
ekki sinnt bústörfum. Samkomu-
lagið er afturvirkt frá 15. mars sl.
og gildir til og með 31. maí. Sam-
kvæmt samkomulaginu geta bænd-
ur sem veikjast af COVID-19 ráð-
ið til sín starfsfólk tímabundið sem
verktaka til að sinna afleysingum,
að hámarki í 14 daga. Búnaðarsam-
bönd deila verktökum niður, hvert
á sínu svæði, og sjá um greiðslur til
þeirra. leitast verður eftir að ráða
verktaka úr hópi einstaklinga sem
eru skráðir atvinnuleitendur í við-
komandi umdæmi.
Bændasamtök íslands halda
saman útgjöldum búnaðarsam-
bandanna vegna þessa verkefnis
auk þess sem þau fá greiddan fjár-
stuðning til sín og hafa milligöngu
um uppgjör við búnaðarsamböndin
þegar verkefninu er lokið. Trygg-
ingasjóður sjálfstætt starfandi ein-
staklinga mun standa undir fjár-
stuðningi til Bændasamtaka ís-
lands og útgjöld vegna þessa verk-
efnis verða gjaldfærð hjá sjóðnum.
mm
Stjórn Sæljóns, félags smábátaeig-
enda á Akranesi, tekur heilshugar
undir með stjórn landssambands
smábátaeigenda og yfirlýsingu
félagsmanna Hrollaugs á Höfn í
Hornafirði og skorar á stjórnvöld
að leyfa strandveiðar strax. í yfir-
lýsingu frá félaginu í síðustu viku
segir að jafnframt sé skorað á bæj-
arstjórn Akraness að beita sér gagn-
vart stjórnvöldum í þessum málum
og fá fleiri sveitarfélög til liðs við
sig.
í þessu dæmalausa ástandi, þar
sem margir einstaklingar og fjöl-
skyldur, mörg fyrirtæki um allt land
eru hjálpar þurfi, þurfi að grípa í öll
hálmstrá til að létta landsmönnum
róðurinn. Því vilja smábátasjómenn
að strandveiðar verði tafarlaust hafn-
ar og björg færð í bú landi og þjóð til
heilla. Yfirlýsing Hrollaugs á Höfn
var afgerandi: „Eflum strandveiðar
svo um munar; 60 veiðidaga á ári,
allt árið um kring. Blómstrandi smá-
bátaútgerð er ein mikilvægasta lífæð
sjávarbyggða hjá fiskveiðiþjóðum í
heiminum og hjá okkur líka. Til þess
að þetta geti gengið eftir þurfum við
mannsæmandi aðgang að okkar eigin
auðlindum. Gerum það núna,“ segir
í yfirlýsingu Hrollaugs á Höfn sem
Sæljón á Akranesi tekur undir. mm
Miðstjórn Alþýðusambands íslands
skorar á ríkisstjórnina að tryggja nú
þegar réttarstöðu þess launafólks
sem ekki nýtur bóta samkvæmt lög-
um um ráðstafanir á vinnumark-
aði vegna COVID-19. Um er að
ræða hóp launafólks í viðkvæmri
heilsufarslegri stöðu, t.d. einstak-
lingar með undirliggjandi sjúk-
dóma og þungaðar konur á 36. viku
eða lengra gengnar. Þessum hóp-
um er samkvæmt ráðleggingum
heilbrigðisyfirvalda gert að halda
sig heima. Afleiðingar víðtæks
samkomu banns eru einnig mikl-
ar fyrir foreldra sem þurfa margir
að taka sér launalaust leyfi til þess
að vera heima með börnunum sín-
um vegna skerts skólastarfs. Þar eru
hópar í félagslega viðkvæmri stöðu
svo sem einstæðir foreldrar og fólk
af erlendum uppruna. Fyrrnefndu
hópana má fella undir lög um laun í
sóttkví og stöðu þeirra síðarnefndu
má bæta með því að heimila skert
starfshlutfall sem ekki einungis
byggir á þörfum atvinnurekanda og
fyrirtækja.
„Nú þegar stefnir í aukna aðstoð
við fyrirtæki landsins ítrekar ASí
fyrri kröfur sínar um vernd þessara
hópa. Atvinnulíf þjóðarinnar sam-
anstendur ekki bara af fyrirtækjum
sem mörg hver fá hundruð millj-
óna í aðstoð og fyrirgreiðslu. At-
vinnulífið á allt sitt undir launafólki
sem mun þegar öllu eru á botninn
hvolft, taka á sig hið raunverulega
tjón þeirra hamfara sem nú geisa,“
segir í yfirlýsingu stjórnar ASí. mm
Ráðherra mundar merkitöngina.
Ljósm. úr safni.
Stuðningur vegna
afleysingaþjónustu bænda
Jóhannes Simonsen formaður, Sæljóns á Akranesi, við bát sinn í Akraneshöfn.
Vilja að tafarlaust verði
byrjað á strandveiðum
Vilja tryggja réttarstöðu
launafólks sem ekki nýtur bóta