Skessuhorn - 07.04.2020, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 7. ApRíl 20206
Heimild til að
fækka mjólkur-
sýnum
LANDIÐ: landbúnaðarráð-
herra hefur undirritað breyt-
ingu á reglugerð um stuðning
í nautgriparækt. Með henni
verður ráðuneytinu nú heim-
ilt við sérstakar aðstæður að
veita undanþágu frá skilyrði
um að skila þurfi inn niður-
stöðum mjólkursýna úr öllum
mjólkandi kúm sem mjólkur-
framleiðendur skulu alla jafn-
an taka tvisvar í hverjum árs-
fjórðungi, til þess að þátt-
taka í afurðaskýrsluhaldi telj-
ist fullnægjandi. Fullnægjandi
afurðaskýrsluhald er skilyrði
fyrir greiðslum til bænda sam-
kvæmt reglugerðinni. Með
breytingunni verður því unnt
að tryggja óskertar greiðslur
til bænda við sérstakar að-
stæður, meðal annars vegna
Covid-19. -mm
Gefa afslátt af
bílatryggingum
LANDIÐ: Tryggingafélag-
ið Sjóvá hefur tilkynnt að það
gefi viðskiptavinum sínum af-
slátt af bílatryggingum sem
nemur iðgjaldi í heilan mán-
uð. Það er gert til að koma
til móts við viðskiptavini en
einnig vegna minni umferðar.
„Umferð hefur dregist mikið
saman eftir að samkomu bann
tók gildi. Gera má ráð fyr-
ir að slysum og tjónum fækki
samhliða því,“ segir í tilkynn-
ingu frá félaginu. „Þess vegna
viljum við bregðast við þess-
um tímabundnu aðstæðum
þannig að einstaklingar greiði
ekki fyrir tryggingar einkabíla
sinna hjá okkur í maí, þótt þær
séu auðvitað í fullu gildi. Þetta
á við um alla einstaklinga sem
eru með bifreiðatryggingar
fyrir ökutæki í almennri notk-
un í gildi hjá okkur þann 1.
maí.“
-mm
Tók ekki eftir
óhappinu
HVALFJ.SV: Umferðaró-
happ varð á Vesturlandsvegi
við Geldingaá laust fyrir kl.
18:00 á sunnudag. Ökumað-
ur ók þar aftan á aðra bif-
reið með þeim afleiðingum
að bifreið hans skemmdist
að framan. Sá sem ók aft-
an á bílinn tilkynnti óhapp-
ið og hann taldi sig aðeins
hafa verið á um 10 km hraða
á klst. þegar hann ók aftan
á hinn bílinn, sökum veðurs
og slæms skyggnis. Mikil of-
ankoma var og skafrenning-
ur þegar óhappið varð. Öku-
maður hinnar bifreiðarinnar
virðist hins vegar ekki hafa
orðið þess var að ekið hafi
verið aftan á hann, því hann
hélt för sinni áfram. Ekki
er vitað um þann ökumann.
-kgk
Eftirlit með
hópamyndunun
VESTURLAND: lögregla
hafði eftirlit með íþrótta-
svæðum í Borgarnesi á mið-
vikudag, til að kanna hvort
samkomubanni væri fram-
fylgt. Engar hópamyndan-
ir reyndust eiga sér stað.
Sömuleiðis var lögregla við
eftirlit við helstu verslanir á
Akranesi á föstudag, vegna
samkomubanns, sem og leik-
svæði og sparkvelli í bænum.
Reyndist allt vera í lagi og
samkomubannið virt. -kgk
Út í á
STYKKISH: Óhapp varð
að morgni síðasta miðviku-
dags þegar bíl var ekið út
í á skammt frá kirkjugarð-
inum í Stykkishólmi. Mik-
ið vatn var á malarvegi sem
ekið var eftir. Ökumaður
ók út í vatnið og fór út fyrir
vegarkantinn. Sterkur vind-
ur var þegar óhappið varð og
ökumaður missti bílinn út af
og framendi bílsins hafnaði
ofan í ánni. Þegar lögregla
kom á vettvang beið öku-
maður með barn sitt í fang-
inu. Ekkert amaði að þeim,
en bæði ökumaður og barn
voru skelkuð eftir óhappið.
-kgk
Farþeginn
ekki í sóttkví
BORGARBYGGÐ: Mað-
ur greindi frá því í sam-
tali við mbl.is á fimmtudag
að hann hefði skutlað er-
lendum manni sem síðan
hafi komið í ljós að hafi átt
að vera í sóttkví, þar sem sá
síðarnefndi bað um far fyr-
ir sig og innkaupapokana
fyrir utan Bónus í Borgar-
nesi. Vegna þessa kannaði
lögregla málið og komst að
því að þetta átti ekki við rök
að styðjast. Telur lögregla
að rekja megi þennan mis-
skilning til þess að maðurinn
kvaðst búa í sumarbústað og
notaði orðin „in isolation“,
eða „í einangrun“ til að lýsa
íverustað sínum. Hann er þó
hvorki sýktur af Covid-19 né
í sóttkví, að sögn lögregl-
unnar á Vesturlandi. -mm
Sveitarfélagið Borgarbyggð er nú
byrjað dreifingu á brúnum tunn-
um í Borgarnesi og verður því verki
lokið á næstu dögum og vikum, eins
og segir í tilkynningu á vef sveitar-
félagsins. Tunnurnar verða síðan
tæmdar á þriggja vikna fresti bæði
í dreifbýli og þéttbýli og því sem
safnast skilað til jarðgerðar. í brún-
ar tunnur verður íbúum gert að setja
lífrænan úrgang.
„Vegna COVID-19 er ekki tal-
ið ráðlagt að ganga í hús með leið-
beiningar til íbúa og því er farin sú
leið að skilja eftir tunnu og ílát fyr-
ir utan heimilin,“ segir í tilkynn-
ingunni. „Brúna tunnan stuðlar að
flokkun lífræns úrgangs og er mikil-
vægt framlag til loftslagsmála, enda
er lífrænn eldhússúrgangur ekki rusl
heldur hráefni sem hægt er að end-
urvinna og framleiða jarðvegsbæti.
Söfnun lífræns úrgangs til endur-
vinnslu samræmist hugmyndafræði
hringrásarhagkerfisins. Þegar líf-
rænn úrgangur er urðaður glatast
mikilvæg lífræn efni og þá mynd-
ast metan í urðunarstaðnum sem er
margfalt áhrifaríkari gróðurhúsa-
lofttegund en koltvísýringur,“ segir
í tilkynningunni á vef Borgarbyggð-
ar.
„í lögum um meðhöndlun úr-
gangs kemur fram að lífrænan úr-
gang skuli nota en ekki urða og í
aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar
eru settar fram áætlanir um urð-
unarskatt og bann við urðun lífræns
úrgangs. Því eru allir íbúar hvatt-
ir til að taka þátt í verkefninu með
opnum hug og taka skrefið í átt til
jákvæðra breytinga með sveitar-
félaginu,“ segir í tilkynningunni.
Allar fyrirspurnir, athugasemdir og
ábendingar varðandi brúnu tunn-
una skal senda á netfangið borgar-
byggd@borgarbyggd.is mm
Um miðja síðustu viku hófst sala á
ísey skyri í um 50.000 verslunum í
Japan. Um leið hófst eitt víðtækasta
dreifingarverkefni sem um getur á
íslenskri vöru í erlendri smásölu til
þessa. Þrátt fyrir að vera ein dýr-
asta mjólkurvaran í Japan þá hef-
ur skyrið fengið góða uppstillingu
eða staðsetningu á flestum stöðum,
enda seldist það upp fyrsta dag-
inn í flestum verslunum. ísey skyri
er nú stillt upp við hlið mest seldu
mjólkuvara Japans sem sýnir að trú
kaupmanna á vörunni er mikil.
Það er dótturfyrirtæki Mjólk-
ursamsölunnar, ísey útflutningur
ehf., sem annast þetta verkefni fyr-
ir MS og hefur gert framleiðslu- og
vörumerkjasamning við japanska
aðila. Japönsku samstarfsaðilarnir
eru mjólkurvörufyrirtækið Nippon
luna, sem er í eigu Nippon Ham,
sem er eitt stærsta matvælafyrirtæki
Japans og fjórði stærsti kjötfram-
leiðandi heims, og japansk-íslenska
fyrirtækið Takanawa. Skyrið er
framleitt af Nippon luna í Kyoto
eftir uppskrift og framleiðsluaðferð
MS. íslenski skyrgerillinn er enn-
fremur lykilþáttur við framleiðslu
vörunnar. mm
Meðfylgjandi mynd tók íslenskur maður búsettur í Japan. Hann og fjölskyldunni
þótti notalegt að geta keypt þessa vöru sem byggir á íslensku hugviti og fram-
leiðsluaðferð til áratuga. Mynd var tekin af fyrstu skyrdósinni á mælaborði
heimilisbílsins og send heim. Ljósm. Jóhann Lind Ringsted.
Stærsta dreifing íslenskrar
vöru frá upphafi
Byrjað að dreifa brúnum
tunnum í Borgarnesi