Skessuhorn - 07.04.2020, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 7. ApRíl 2020 7
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Munum að hlýða Víði og njótum
samverunnar innanhúss um
páskana þetta árið
Akraneskaupstaður sendir
sínar bestu óskir um
gleðilega páska
Kennsluaðferðir FSN eru verkefnamiðaðar og námsmatið leiðsagnarmat.
Fjarnemendum stendur til boða að mæta í tíma með dagskólanemendum í Grundarfirði eða á
Patreksfirði. Kennarar aðstoða nemendur m.a. á Skype, TEAMS og í tölvupósti.
Allar frekari upplýsingar fást hjá námsráðgjafa agnes@fsn.is og aðstoðarskólameistara
solrun@fsn.is og í síma 430-8400.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga
hrafnhildur@fsn.is
Dagskóli
Lokainnritun fyrir nemendur sem
útskrifast úr 10. bekk 2020 fer fram
rafrænt á menntagatt.is 6. maí til 10. júní
Innritun eldri nemenda
Innritun eldri nemenda fer fram
6. apríl til 10. júní.
Fjarnám
Opið er fyrir umsóknir í fjarnám.
Umsækjendur um fjarnám geta skráð
sig í nám á heimasíðu skólans
undir flipanum „Fjarnám“
Stúdentsbrautir:
Félags- og hugvísindabraut•
Náttúru- og raunvísindabraut•
Opin braut til stúdentsprófs•
Íþróttalína•
Hagfræðilína•
Framhaldsskólabrautir
Framhaldsskólabraut 1•
Framhaldsskólabraut 2•
Starfsbraut
Innritun á haustönn 2020
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Frumvarpi forsætisráð-
herra um breytingu á
ýmsum lögum er varða
eignarráð og nýtingu
fasteigna var dreift á
Alþingi í síðustu viku.
Nái frumvarpið fram
að ganga mun skapast
yfirsýn yfir eignarhald á
landi og stjórnvöld öðl-
ast stýritæki til að stuðla
að því að landnýting sé
í samræmi við landkosti
og með hagsmuni samfélagsins og
komandi kynslóða að leiðarljósi,
segir í tilkynningu frá forsætisráðu-
neytinu.
í frumvarpinu eru í fyrsta lagi
undanþáguheimildir vegna skil-
yrða fyrir fasteignakaupum aðila
sem búsettir eru í ríkjum utan Evr-
ópska efnahagssvæðisins skýrðar
nánar, en ákvæði núgildandi laga
um það efni eru almenn og óljós. í
öðru lagi er gert ráð fyrir að kaup-
verð eignar skuli koma fram í þing-
lýstu afsali, en kaupverð er meðal
annars forsenda ákvörðunar fast-
eignamats. í þriðja lagi er lagt til að
landeignaskrá á vegum Þjóðskrár
íslands verði vettvangur fyrir sam-
ræmda opinbera skráningu á land-
upplýsingum.
í fjórða lagi er sjónarmiðum um
náttúruvernd, byggðaþróun og
sjálfbærni gert hærra undir höfði
í markmiðsákvæði jarðalaga. Sett
verði inn skilyrði um samþykki
fyrir aðilaskiptum að landi í skil-
greindum tilfellum þar sem aðili
á tiltekna stærð af landi fyrir. Þá
er gert ráð fyrir aukinni upplýs-
ingaskyldu tiltekinna lögaðila um
eignarhald þeirra. loks eru lögð
til skýrari skilyrði fyrir afskráningu
lögbýla og lausn lands úr landbún-
aðarnotum.
Drög að frumvarpinu voru til
umsagnar í samráðsgátt á tíma-
bilinu 13.–27. febrúar og bárust
33 umsagnir. í kjölfar umsagna og
áframhaldandi samráðs við fagr-
áðuneyti og stofnanir voru gerðar
nokkrar breytingar á frumvarpinu
og eru þær raktar í greinargerð. Þar
á meðal voru gerðar breytingar á
stærðarviðmiðunum vegna framan-
greindrar samþykkisskyldu og er
nú gert ráð fyrir að hún eigi m.a.
við ef kaupandi á fyrir fasteign eða
fasteignir sem eru samanlagt 1.500
hektarar að stærð. Eigi kaupandi
eða tengdir aðilar samanlagt 10.000
hektara eða meira skuli samþykki
að jafnaði ekki veitt, nema sýnt sé
fram á sérstök not fyrir landið.
mm
Frumvarpi um
eignarráð og
nýtingu fasteigna