Skessuhorn - 07.04.2020, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 7. ApRíl 202010
í síðustu viku
kom upp djúp-
stæður ágrein-
ingur innan for-
ystu Alþýðusam-
bands íslands um
til hvaða aðgerða
á að grípa vegna
þeirrar fordæma-
lausu stöðu sem
upp er kom-
in á vinnumark-
aði vegna Co-
vid-19 veirunnar.
Forysta ASí hafði áður hafnað því
að fresta hækkun launa um nýlið-
in mánaðamót eins og samið hafði
verið um. Þá lagði hluti miðstjórn-
ar ASí, þeirra á meðal Vilhjálm-
ur Birgisson formaður VlFA og
1. varaforseti ASí og Ragnar Þór
Ingólfsson formaður VR, það til
að fyrirtækjum yrði boðið að lækka
greiðslur í lífeyrissparnað starfs-
manna tímabundið úr 11,5% og
niður í 8%. Vil-
hjálmur sagði
í samtali við
Skessuhorn að
slík aðgerð hefði
vegið upp á móti
þeim launa-
hækkunum sem
fyrirtæki taka á
sig vegna samn-
inganna nú um
m á n a ð a m ó t -
in. Hann benti
á að slík aðgerð
myndi sáralítil áhrif hafa fyrir laun-
þega til lengri tíma litið. En þess-
ari leið var annað forystufólk í mið-
stjórn ASí mótfallið og lagðis alfar-
ið gegn því að hreyft yrði við lífeyr-
issparnaði launþega. Þessi ágrein-
ingur varð til þess að Vilhjálmur,
Ragnar Þór og Harpa Sævarsdótt-
ir sögðu sig úr miðstjórn ASí undir
lok síðustu viku.
mm
Það var þónokkur erill á höfninni
í Grundarfirði á föstudagsmorgun
þegar skipin Farsæll SH-30 og Sig-
urborg SH-12 komu til hafnar með
stuttu millibili. Starfsmenn voru
í óða önn að landa úr Sigurborgu
þegar að fréttaritara bar að garði
en þá var búið að landa úr Farsæli.
Uppistaða aflans úr báðum skipum
var þorskur og ufsi.
tfk
Borgarverk ehf. er nú langt kom-
ið með framkvæmdir við nýja götu
ofan við KB og Húsasmiðjuna við
Egilsholt í Borgarnesi. Gatan nefn-
ist Fífuklettur og verður tengigata
milli Hrafnakletts og nýs hverfis
sem til stendur að hefja uppbygg-
ingu á. „Framkvæmdir ganga vel
og fljótlega hefjast svo framkvæmd-
ir við fyrstu íbúðablokkina á nýjum
stað. Hún verður byggð í samstarfi
okkar hjá Borgarverki, Eiríks J Ing-
ólfssonar og Steypustöðvarinn-
ar,“ segir Óskar Sigvaldason fram-
kvæmdastjóri Borgarverks í samtali
við Skessuhorn. mm
Víða hefur veturinn reynst lands-
mönnum þungur en ekki þarf að fara
yfir langan veg til að sjá að misgefið
er hvað varðar snjóalög. í Búðardal er
búið að vera heldur snjólétt og varla
þurft að moka frá útihurðum. En það
þarf ekki að ferðast marga kílómetra
innansveitar til að sjá gríðarlegan
snjóþunga og ljóst að Vetur kon-
ungur hefur valið að sýna hin ýmsu
andlit þennan veturinn. Ábúendur
á bænum Magnússkógum II í Döl-
um eru meðal þeirra sem hafa feng-
ið að finna vel fyrir vetri og ósjaldan
þurft að moka sig út úr húsi. Magn-
ússkógar II eru staðsettir um 14 km
frá Búðardal inn eftir Hvammsfirði.
„Við höfum þurft að moka okk-
ur oft út úr húsi í vetur. Þá höfum
við þurft að moka snjónum inn til að
komast út um göng. Snjónum hef-
ur verið safnað saman í bala og sett-
ur í sturtubotninn þar sem hann
hefur fengið að bráðna. Ætli þetta
sé ekki farið að telja um tíu skipti,
þetta er eiginlega hætt að vera fynd-
ið,“ segir Guðbjörn Guðmundsson
bóndi á Magnússkógum II sem var
við mokstursvinnu utandyra þegar
fréttaritari náði tali af honum, vel
búinn traktor með mokstursskóflu.
„Það er búið að skafa meira og
minna síðan í desember og nú er
búinn að vera stöðugur bylur í tvo
og hálfan sólarhring. Fyrst norð-
austan og svo austan í nótt, þá kom
enn meira fyrir endann á húsinu þar
sem venjulega kemur ekki neitt,“
segir Guðbjörn sem jafnframt lít-
ur yfir sveitina í átt að Teigi þar
sem hann segir engan snjó að sjá.
Guðbjörn og eiginkona hans Jó-
hanna Jóhannsdóttir eru ötul í skóg-
rækt og mikil rækt komin fyrir ofan
hús hjá þeim. „Auðvitað er trjárækt-
in að hafa áhrif á hvernig snjórinn er
að safnast hjá okkur. Um 200-300
metra frá húsinu komu fljótt svaka-
legir skaflar og svo færist þetta bara
nær.“ Guðbjörn og Jóhanna hafa
verið laus við að moka ofan af þaki
húsanna en vitað er til þess að Björg-
unarsveitin Ósk í Búðardal hefur
a.m.k. tvisvar verið kölluð út til að
aðstoða bændur við að moka ofan af
húsum í vetur. sm
Vetur konungur sýnir
á sér tvær hliðar
Landað fyrir páskafrí
Nær liggja skipin Farsæll og Sigurborg en Hringur SH liggur
við festar fjær.
Lyftari frá
Djúpakletti ehf
að störfum á
bryggjunni.
Eitthvað af ýsu og karfa kom einnig úr lestum skipanna.
Lagnir lagðar. Ljósm. Jón Þórólfur Guðmundsson.
Unnið við nýja tengi-
götu í Borgarnesi
Horft inn eftir nýju götunni. Ljósm. mm.
Brestur í forystusveit ASÍ
vegna deilna um aðgerðir