Skessuhorn - 07.04.2020, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 7. ApRíl 2020 13
Fyrir rúmri viku var auglýst eftir
fólki í bakvarðarsveit fyrir Höfða,
hjúkrunar- og dvalarheimilis á Akra-
nesi. „Okkar starfsemi eru þann-
ig að það er ekki hægt að minnka
eða hætta þjónustu og við þurfum
að hafa starfsfólk til taks allan sól-
arhringinn, alla daga. Við óskuð-
um því eftir aðstoð frá einstakling-
um sem væru til í að stökkva til og
vinna í stuttan tíma og hjálpa okk-
ur ef á þarf að halda,“ segir Ólína
Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrun-
arforstjóri í samtali við Skessuhorn.
„Það er skemmst frá því að segja að
við höfum fengið gífurlega góð við-
brögð við auglýsingunni og skráð-
ir í bakvarðasveit voru síðastliðinn
föstudag orðnir 44.“
Bakverðir Höfða búa yfir fjöl-
breyttri reynslu. Ólína Ingibjörg
nefnir sem dæmi hárgreiðslumeist-
ara, matreiðslufólk, kjötiðnaðar-
mann, listamann, sjúkraliða, skrif-
stofufólk og almennt starfsfólk
ýmist með reynslu í umönnun eða
ekki. „Þá eru komnir á skrá hjúkr-
unarfræðingar, þroskaþjálfi, félags-
fræðingar, dýralæknanemi, kenn-
arar, framhaldsskólanemar, kvik-
myndagerðarmaður og starfsmað-
ur úr vegavinnu. Þetta er fjölbreytt
flóra velviljaðra einstaklinga. Við
getum næstum stofnað bara nýtt
samfélag hér innan dyra. Eins hef-
ur fyrrum starfsfólk hringt og boð-
ið fram aðstoð sína og kunnum við
því bestu þakkir fyrir. Það er gott
að hugsa til þess að ef á bjátar þá
erum við ekki bjargarlaus.“ Ólína
Ingibjörg segir að fallegasta um-
sóknin hafi þó verið frá 14 ára nem-
anda í Grundaskóla sem sendi póst
og sagðist vera vön að þrífa og taka
til heima og gæti alveg gert það á
Höfða, ef við vildum.“
Ólína Ingibjörg segir að innan-
húss á Höfða hafi verið hert veru-
lega á öllum reglum og starfið
endurskipulagt miðað við regl-
ur samkomubanns. „Eðli starfa á
heimilinu er þó þannig að við getum
ekki útilokað nánd. Áfram munum
við halda fast í reglur um smitvarnir
og þær varúðarráðstafanir sem við
höfum gert og erum sannfærð um
að þær skila okkur árangri. Starfs-
fólk er meðvitað um mikilvægi sitt
og af mikilli fórnfýsi þá gæta allir
sín afskaplega vel í frítíma sínum
og hitta nær eingöngu þá aðila sem
búa með þeim heima.“
mm
Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkr-
unarforstjóri.
Fjölmargir til taks
í bakvarðasveit Höfða
Höfði, hjúkrunar- og dvalarheimili.
greiddar atvinnuleysisbætur í ár.
„Verkefnið okkar er að koma at-
vinnulífinu hratt af stað eftir tíma-
bundna niðursveiflu. í hruninu
2008 varð niðursveiflan mikil en nú
er sveiflan skarpari. Nú erum við
hins vegar með innviði klára þeg-
ar ferðavilji útlendinga fer í gang að
nýju. Okkar einstaka náttúra hefur
heldur ekki farið neitt. Hún bíður
bara eftir að fólk komi aftur til að
upplifa hana og njóta. Að því leyti
stöndum við íslendingar vel.“
Áskoranir í
félagsþjónustu
Talið berst nú að öðrum og ekki síð-
ur viðkvæmum málaflokki félags-
og barnamálaráðherra. „Þetta eru
ofboðslega skrítnir tímar og í raun
erum við í áfallastjórnun sem tek-
ur breytingum á degi hverjum. Við
vitum aldrei hvað gerist á morgun.
Kannski kemur upp smit á heim-
ili fatlaðra, eða á sjúkrastofnun, við
vitum ekki hvar eldar geta kviknað
næsta dag. Við erum í góðu sam-
starfi við sveitarfélögin í landinu
varðandi félagsþjónustuna og bakv-
arðasveit félagsþjónustunnar er
send landshluta á milli til að manna
þá pósta sem þarf. Nægir að nefna
fjöldasóttkví á Húsavík, Hvamms-
tanga og Vestmannaeyjum sem
dæmi um staði sem hafa orðið illa
úti vegna veirunnar. Umræðan um
félagsþjónustuna sem fellur und-
ir ráðuneyti mitt hefur hins vegar
verið minni. Það er svo margt við-
kvæmt í þeim málaflokki; umönnun
við fatlaða, sjúka, aldraða, heimilis-
lausa og svo framvegis. Fólkið sem
stendur í stafni félagsþjónustunnar
í sveitarfélögunum á miklar þakk-
ir skyldar hvernig það hefur tekið
á málum. Nú reynir sem aldrei fyrr
á þetta fólk í daglegum störfum og
áskorunum,“ segir Ásmundur.
Hiki ekki við að hringja
í 1717
Mikið hefur reynt á Hjálparsíma
Rauða krossins frá því veiran tók
að breiðast út og eftir að samkomu-
bann var sett á. „Ráðuneytið hef-
ur komið með aukinn stuðning inn
í það mikilvæga starf sem Rauði
krossinn er að sinna. Þegar eitthvað
bjátar á hjá fólki hvetjum við alla til
að hringja í hjálparsímann 1717.
Þeir sem svara þar verða sjálfkrafa
tengiliðir. Ef þeir leysa ekki sjálfir
úr úrlausnarefninu vísa þeir mál-
um áfram, ýmist til félagsþjónustu
í sveitarfélögum, starfsfólks ráðu-
neytisins, til heilbrigðisstarfsfólks
eða sálfræðinga, eftir því sem við á.
Reynt er að hjálpa fólki að leysa úr
þeim vandamálum sem upp koma.“
Vakandi gagnvart
velferð barna
Þá nefnir Ásmundur að tilkynning-
um vegna barnaverndarmála hefur
fækkað. „Við erum hins vegar með-
vituð um þá hættu sem þetta ástand
hefur í för með sér fyrir börn. Það
er raunveruleg hætta á að aðstæður
þeirra breytist nú þegar röskun er
á hefðbundu skóla- og félagsstarfi.
Skólakerfið er ekki í sömu virkni og
þá eru börn í aukinni hættu á heim-
ilum þar sem til dæmis áfengis-
neysla eykst. Sömuleiðis vex hætt-
an á ofbeldi. Við þessar aðstæð-
ur er mikilvægt að samfélagið allt
sé meðvitað um umhverfi sitt, því
við erum öll barnavernd. Ef við vit-
um, eða okkur grunar, um slæmar
aðstæður barns, þá eigum við skil-
yrðislaust að vera félagslega þenkj-
andi og láta vita í 112. Uppbygging
varnarkerfisins byggir á að samfé-
lagið allt sé í fullri virkni. Því biðl-
um við til allra að hafa eyru og augu
opin. Ekki sleppa því að láta vita
ef grunur um eitthvað athugavert
kviknar.“
Kvíði eykst
Þá bendir Ásmundur Einar jafn-
framt á að margir glíma við and-
lega eða líkamlega erfiðleika. Kvíði
og annað eykst í óvissuástandi eins
og nú ríkir. Ef vanlíðan eykst bend-
ir hann fólki á að hika ekki við að
hringja í 1717 og leita sér aðstoð-
ar. Þangað eiga allir að geta leitað.
„Ekkert mál er of lítið eða of létt-
vægt til að því verði ekki sinnt. Við
erum að reyna það sem við get-
um og viljum að fólk leiti sér að-
stoðar frekar en að vera eitt með
sjálfu sér.“ Hann bætir við að nú sé
unnið að aðgerðum til að greiða úr
vanda heimilislausra. „Við þessar
aðstæður eiga heimilislausir til að
mynda miklu erfiðara með að kom-
ast í húsaskjól. Enginn á að vera á
götunni. Vonandi náum við varan-
legri breytingu og nú er unnið að
því í ráðuneytinu að leysa mál þessa
hóps. Þegar hefðbundna stoðkerfið
lamast vegna faraldurs af þessu tagi
lamast allt. Þá reynir á okkur að
gæta sérstaklega að þeim þegnum
sem höllustum fæti standa,“ segir
ráðherra að endingu. mm
Gæðastund úti með heimilishundinum.
Innritun er hafin fyrir haustönn 2020
Nánari upplýsingar veita:
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu skólans www.menntaborg.is, á
menntaborg@menntaborg.is og í síma 433-7700
Stúdentsprófsbrautir:
Félagsfræðabraut
Náttúrufræðibraut
Náttúrufræðibraut – búfræðisvið, í
samstarfi við Lbhí
Íþróttabraut (félagsfræða- eða
náttúrufræðisvið)
Opin Braut
Annað nám:
Framhaldsskólabraut
Starfsbraut
Viðbótarnám til stúdentsprófs
Nemendagarðar
Skólinn rekur nemendagarða þar sem
pláss er fyrir 8 nemendur
Fjarnám
Mögulegt er að stunda fjarnám við
Menntaskóla Borgarfjarðar
Leiðsagnarmat – engin hefðbundin
lokapróf
Verkefnamiðað nám