Skessuhorn - 07.04.2020, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 7. ApRíl 202014
Eins og Skessuhorn hefur greint
frá tóku tveir nýir prestar til starfa í
Garða- og Saurbæjarprestakalli um
nýliðin mánaðamót. Það eru þær sr.
Jónína Ólafsdóttir og sr. Þóra Björg
Sigurðardóttir sem nú koma til liðs
við sóknarprestinn sr. Þráinn Har-
aldsson. „Við erum að móta starfið
og hvernig samstarfið okkar kem-
ur til með að vera,“ segir Þráinn í
samtali við Skessuhorn. „Við hugs-
um prestakallið sem eina heild og
komum til með að þjónu öll bæði
á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit en
skiptum á milli okkar verkum. Ég
er sóknarprestur og sé um skipu-
lagningu og tek ábyrgð á kirkj-
unum og safnaðarstarfinu í heild.
Þóra er ráðin með áherslu á á
barna- og æskulýðsstarf og verður
það á hennar ábyrgð að halda utan
um það og skipuleggja. Jónína ætlar
að hafa umsjón með eldri borgara
starfinu í Akraneskirkju. En eins og
ég segi er enn verið að skipuleggja
þetta,“ segir Þráinn og bætir við að
þau komi einnig til með að vinna
margt í sameiningu. „Við munum
öll koma að fermingarfræðslunni,
við messum öll og skiptum athöfn-
um á milli okkar,“ segir hann.
Svigrúm til að
gera meira
Þráinn segist vera mjög ánægður
með ráðningu nýju prestanna og
spenntur fyrir samstarfinu. „Það
eru ýmsar hugmyndir um hvað við
viljum gera til að auka þjónustuna.
En núna þegar við erum orðin þrjú
gefst svigrúm til að gera meira,“
segir Þráinn og bætir við að þau sjái
fyrir sér að auka fræðslu til fullorð-
inna og jafnvel vera með sorgar-
hópa fyrir þá sem þurfa. „Það hefur
ekki unnist mikill tími síðasta ár til
að gera eitthvað aukalega og hlakka
ég til að fá rýmri tíma til þess
núna.“ Aðspurður segir Þráinn að
þau komi til með að skipta vinnu-
helgum á milli sín og þar með at-
höfnum sem gjarnan eru um helg-
ar, eins og skírnir og brúðkaup, en
einnig útförum.
Sálgæsla stendur
öllum til boða
Hvernig er að sinna starfi prests við
þær aðstæður sem eru í samfélaginu
núna? „Það er skrýtið að geta til
dæmis ekki hitt þær Jónínu og Þóru,
tekið í hendurnar á þeim og boðið
þær almennilega velkomnar, svona
eins og maður myndi vilja gera. En
við erum ekki að hittast í persónu
á meðan ástandið er svona. Verk-
efnin eru líka öðruvísi. Við erum
ekki með hefðbundið kirkjustarf
núna,“ svarar Þráinn og bætir við
að hann reyni að hringja í fólk og
heyra hvernig það hefur það núna
í ljósi aðstæðna. „Það er ótrúlegt
hvað allir bera sig vel og kemur það
mér í raun verulega á óvart. Flest-
ir sem ég hef hringt í bera höfuð-
ið hátt þó vissulega séu aðstæðurn-
ar krefjandi. Ég er mikið að hringja
í fólk sem er eldra eða með undir-
liggjandi sjúkdóma og því kannski
í sjálfskipaðri sóttkví og heldur sig
því til hlés og er því mjög einangr-
að núna. Allir sem ég tala við segj-
ast bara líta á þetta sem tímabund-
ið ástand sem muni líða hjá og það
virðast flestir bara hafa það ágætt
miðað við allt,“ segir Þráinn. Þá
bætir hann við að öllum standi til
boða að hringja í hann, Jónínu eða
Þóru til að tala, þurfi viðkomandi
á því að halda. „Sálgæslan hefur að
mestu farið fram í síma núna í ljósi
aðstæðna en ég hvet alla sem þurfa
á því að halda að hafa samband við
okkur. Við erum alltaf tilbúin að
tala við fólk og hjálpa.“
Páskar og ekkert
kirkjustarf
í ljósi aðstæðna eru fáar athafnir í
kirkjunum þessa dagana utan þess
að þar fara fram útfarir. Spurður
hvernig þær fari fram í samkomub-
anni segir Þráinn þær vera töluvert
fámennari. „Við getum boðið upp
á að senda athöfnina út í gegnum
netið fyrir þá sem geta ekki ver-
ið á staðnum og það hefur gefið
góða raun. Ég veit líka að einhverj-
ir til dæmis í Reykjavík hafa kosið
að hafa kistulagningu og bálför en
bíða með útför þar til ástandið líður
hjá og hafa þá útför við duftker. En
þetta er erfitt, að þurfa að kveðja
ástvin og geta ekki haft fólkið sem
maður myndi vilja deila stundinni
með. Ég held það verði okkur öll-
um ljóst á þessum tímum hvað við
þurfum mikið á þessu mannlega
samfélagi að halda. Þó tæknin sé
góð og blessuð og geti hjálpað mik-
ið er það ekki eins og að taka í hönd
á fólki eða faðma, tæknin veitir okk-
ur ekki þessa nánd,“ segir Þráinn og
bætir við að hann voni að ástand-
ið muni þjappa fólki enn frekar
saman. Nú þegar páskarnir eru að
ganga í garð og ljóst að ekki verður
hægt að halda hefðbundnu kirkju-
starfi í kringum þá helgu hátíð, seg-
ir Þráinn þau ætla að nota netið til
að deila helgistundum. „Við höfum
deilt stuttum hugvekjum á Facebo-
ok síðunni okkar og ætlum að deila
heima helgistundum sem fólk getur
horft á um páskana.“
Ætlaði ekki að
verða prestur
Þóra Björg Sigurðardóttir er fædd í
Reykjavík og ólst upp í Grafarvogi.
Hún æfði samkvæmisdansa í mörg
ár og kenndi þá einnig um tíma og
þykir henni fátt skemmtilegra en
að syngja, dansa, ferðast og elda
góðan mat. Eftir grunnskóla fór
Þóra í Verzló og þaðan í Háskóla
íslands þar sem hún lauk BS gráðu
í sálfræði áður en hún fór í fram-
haldsnám í guðfræði. Aðspurð seg-
ir hún það alls ekki hafa verið ætl-
unin að verða prestur. „Ég vissi
í raun ekki hvað ég vildi gera en
fannst sálfræði heillandi nám. Ég
er ekki beint alin upp í kirkju held-
ur fór bara í kirkju á jólunum og
svoleiðis, eins og hinn hefðbundni
íslendingur,“ segir Þóra. Hún fór
þó alltaf í sumarbúðir í Ölveri sem
barn og var hvött af einum leiðtog-
anum þar að sækja um sem leið-
beinandi þegar hún væri orðin 18
ára, sem hún og gerði. í Ölveri var
hún eini starfsmaðurinn sem spil-
aði á hljóðfæri og fréttist það þeg-
ar vantaði manneskju í sunnudaga-
skólann í Fella- og Hólakirkju í
Reykjavík. „Ég var fengin til að
koma en var mjög stutt áður en ég
fór yfir í Grafarvogskirkju þar sem
ég var í níu ár og sá um allt barna-
og æskulýðsstarf. Þar kynntist ég
fyrst hvað það væri að vera prest-
ur og þá heillaði þetta starf mig,“
útskýrir Þóra sem útskrifaðist sem
guðfræðingur vorið 2019. „Þetta
er fyrsta starfið mitt sem prestur,“
segir hún.
Bónus að fá þetta starf
Þóra og maðurinn hennar, Geir-
laugur Ingi Sigurbjörnsson, fluttu
saman á Akranes með börnin sín
tvö fyrir ári en hann á ættir að rekja
á Skagann. „Hann sagði við mig
þegar við byrjuðum saman fyrir tíu
árum að hann ætlaði að búa á Akra-
nesi. Ég var ekkert að hugsa út í
það þá og sagði bara „já, já,“ en svo
talaði hann alltaf meira og meira
um þetta. Ég sá svo að honum var
greinilega alvara og sagði að ég
væri til í að prófa að búa þar þegar
ég væri búin með háskólann. Þeg-
ar ég byrjaði á síðustu önninni fór
hann að liggja yfir fasteignaauglýs-
ingum á Akranesi og við enduðum
á að kaupa hér hús og flytja. Það
er því algjör bónus að fá þetta starf
hér,“ segir Þóra ánægð. Aðspurð
segir hún nýja starfið leggjast mjög
vel í sig. „Ég er rosalega spennt
að byrja af alvöru og fá að kynn-
ast öllum í sókninni. Það er rosa-
lega sérstakt að byrja í þessu starfi
við svona aðstæður eins og núna.
Ég þrái alveg að fara á fullt og byrja
á öllu því sem mig langar að gera
og það er alveg erfitt að halda aft-
ur af mér,“ segir hún og hlær. „Mig
langar rosalega að hitta hina prest-
ana en við hittumst bara á fjarfund-
um núna,“ bætir hún við.
Opnuðu
Instagramreikning
Hverjir eru helstu styrkleik-
ar Þóru Bjargar í starfi? „Ég held
ég hafi góðan skilning og ég legg
mig fram um að fara ekki í mann-
greinarálit. Ég tel mig eiga auðvelt
með að skilja fólk í mismunandi
aðstæðum. Við höfum hugmyndir
um að efla allt starfið í prestakall-
inu enn frekar, nú þegar við erum
orðin þrjú hér. Ég hef fullt af hug-
myndum sem mig langar að koma
í framkvæmd, bæði hér á Akranesi
en ekki síður í Hvalfjarðarsveit. Við
viljum leggja mikla áherslu á starf-
ið á báðum stöðum,“ segir Þóra og
bætir við að nýverið hafi þau opnað
reikning á Instagram undir nafn-
inu Garða- og Saurbæjarprestakall.
„Þar ætlum við að reyna að sýna
aðeins frá starfinu svo fólk fái að
sjá hvað kirkjan er í raun og veru.
Ég held að fólk haldi að kirkjan sé
allt annað en hún er, ég hélt það
sjálf. Svo langar okkur bara að vera
skemmtileg, einlæg og sýna að við
erum bara venjulegt fólk. Við mun-
um líka annað slagið koma þar inn
með hugvekjur,“ segir hún. Þá tek-
ur Þóra fram að á þeim erfiðu tím-
um sem við erum að upplifa núna
standi öllum til boða að heyra í
prestunum. „Við í kirkjunni erum
til staðar fyrir fólk, bæði á gleði- og
sorgartímum og fólk má vera alveg
óhrætt við að heyra í okkur hvenær
sem er,“ segir hún.
Nýir prestar komnir til starfa í Garða- og Saurbæjarprestakalli
Koma til starfa við óvenjulegar
aðstæður í þjóðfélaginu
Akraneskirkja. Ljósm. úr safni
Jónína stefnir að því á föstudaginn langa að lesa Passíusálmana í Saurbæjar-
kirkju og senda út á Facebook síðu Garða- og Saurbæjarprestakalls.
Þráinn Haraldsson sóknarprestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli.
Ljósm. úr safn/kgk