Skessuhorn - 07.04.2020, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 7. ApRíl 2020 15
Vildi vinna með fólki
Jónína Ólafsdóttir er fædd á Eg-
ilsstöðum og bjó fyrstu fimm árin
á Borgarfirði eystri þar sem fað-
ir hennar var skólastjóri. Þá flutti
fjölskyldan að laugum í Reykjadal í
Suður-Þingeyjarsýslu, þar sem föð-
urfjölskylda Jónínu átti heima. Síð-
an flutti fjölskyldan svo yfir í ljósa-
vatnsskarð, nánar tiltekið að Stóru-
Tjarnaskóla þar sem faðir Jónínu
hefur starfað sem skólastjóri síð-
ustu 26 ár og móðir hennar sem
leikskólakennari. En hvenær ákvað
Jónína að hún vildi verða prestur?
„Ætli ég hefi ekki farið að huga að
því strax um 12 ára aldur. Ég ólst
ekki upp við að vera alltaf í sunnu-
dagaskólanum og það er ekki mik-
ið um presta í fjölskyldunni minni.
Ég var ekki alveg viss hvað ég vildi
verða en þegar ég kláraði mennta-
skóla langaði mig í guðfræði en
vildi samt ekki fara beint í það nám
því mér fannst það svolítið starf
fyrir gamla karla á þeim árum. Ég
byrjaði því á að fara í íslensku og
lauk BA námi í íslensku árið 2008
og eignaðist þá pétur, son minn. Ég
fór svo í guðfræði og lauk BA námi
2011 og þá fæddist Þórdís, dóttir
mín. Svo hélt ég áfram í Mag-the-
ol. nám í guðfræði,“ segir Jónína.
Þegar hún var unglingur fór að
kvikna áhugi hennar fyrir guð-
fræðináminu en fyrst og fremst
hafði hún áhuga á að vinna með
fólki. „Guðfræði sameinar eigin-
lega allt það sem mig langaði að
gera; skrifa, syngja, hjálpa og bara
vera með fólki í öllum aðstæðum,
bæði gleði og sorg. Svo sá ég fljót-
lega að starf presta er mjög fjöl-
breytt og skemmtilegt. Það eru allt-
af að koma ný verkefni og maður er
alltaf að hitta og kynnast nýju fólki.
prestar fá að kynnast svo mörgum
og það á mjög vel við mig,“ segir
Jónína.
Vera frjó og finna
nýjar leiðir
Jónína vígðist til Dalvíkurpresta-
kalls í ágúst á síðasta ári þar sem hún
vann sem sóknarprestur í afleysing-
um þar til 31. mars síðastliðinn, rétt
áður en hún tók til starfa í Garða-
og Saurbæjarprestakalli. Aðspurð
segist hún ekki vera flutt í presta-
kallið en stefni að því. „Ég bý enn í
Reykjavík með manninum mínum,
Eggerti Þórarinssyni og börnunum
okkar. En maðurinn minn starfar
sem aðstoðarframkvæmdastjóri á
fjármálastöðuleikasviði hjá Seðla-
bankanum. Við erum að skoða að
flytja en það er ekki beint heppi-
legur tími til þess núna í ljósi að-
stæðna,“ segir Jónína. En hvern-
ig er að taka til starfa sem prestur
í því ástandi sem nú ríkir í samfé-
laginu? „Mjög sérstakt. Það er svo-
lítið erfitt að geta ekki hitt fólk al-
mennilega og tekið í hendurnar á
því, en við lærum kannski eitthvað
nýtt í staðinn. Við æfum okkur í að
kynnast á annan hátt og ég er viss
um að það kemur líka eitthvað já-
kvætt út úr þessu öllu saman þótt
þetta reyni á og sé erfitt. Þessar að-
stæður krefjast þess að maður sé
líka svolítið frjór í hugsun í starf-
inu og finni nýjar leiðir til að sinna
starfinu. Þetta er krefjandi en það
er ýmislegt sem hægt er að gera,
eins og að senda út guðsþjónustur
eða helgihald á Facebook eða You-
tube. Ég ætla til að mynd að nýta
mér það og kynna mig fyrir íbúum
á Höfða í næstu viku. Þá stefni ég
á að fara í Akraneskirkju og senda
út á Youtube rás sem íbúarnir geta
horft á í gegnum sjónvörpin sín,“
segir Jónína og bætir við að á föstu-
daginn langa ætli hún að lesa pass-
íusálma í Saurbæjarkirkju og senda
út á Facebook síðu Garða- og Saur-
bæjarprestakalls. „Við reynum bara
að nýta það sem við getum til að ná
til fólksins,“ segir hún jákvæð. „Ég
er líka bara á fullu núna að átta mig
á aðstæðunum í prestakallinu og
hversu stórt það er. Við erum til
að mynda með þrjár kirkjur í sveit-
inni og þar sem ég kem sjálf úr sveit
er ég mjög spennt að kynnast líka
fólkinu þar. Ég hef alltaf átt mjög
auðvelt með að tengjast bændum
og bara landsbyggðarfólki almennt.
Ég er mjög lítil Reykjavíkurdama í
mér,“ segir hún og hlær.
Framhaldsmenntun í
sálgæslustörfum
Eins og Þráinn tók fram mun Jón-
ína sjá að mestu um starf með eldri
borgurum í prestakallinu. „Ég ætla
að reyna að vera öflug í því. Ég ætla
að halda áfram að hafa opið hús fyr-
ir eldri borgara á miðvikudögum
eins og verið hefur og reyna bara
að efla þátttökuna þar, sem reynd-
ar hefur víst verið góð. Svo ætla ég
að vera í góðu samstarfi við fólkið
sjálft og heyra hvað það er sem það
vill. Ég stefni á að byrja á að kynn-
ast fólkinu og þá geri ég ráð fyrir að
þetta vindi uppá sig og boltinn fari
að rúlla og hlakka ég mikið til þess,“
segir Jónína og bætir við samstarf
kirkjunnar við Höfða hafi lengi ver-
ið undirbúið og þau þrjú munu öll
koma að því starfi. „Ég ætla að vera
dugleg að fara upp á Höfða og hitta
fólkið. Við stefnum á að hafa þar
kyrrðarstund einu sinni í viku og
þá ætlum við vonandi að taka svona
stofugang og spjalla við hvern og
einn, smá svona sálgæsluþjónusta,“
segir Jónína en hún er með fram-
haldsmenntun í sálgæslufræðum.
„Það eru margir sem nýta sér sál-
gæsluþjónustu presta og það er ekki
ólíklegt að sú þörf aukist þegar við
skríðum frá þessari blessuðu veiru.
Slík þjónusta er öllum að kostnað-
arlausu að sjálfsögðu,“ segir Jón-
ína og hvetur alla sem vilja að hafa
samband við sig í gegnum netfangið
jonina@akraneskirkja.is eða í síma
867-0970 ef þeir þurfi einhvern að
tala við. „Það er alltaf hægt að hafa
samband við mig og við getum þá
undir venjulegum kringumstæðum
hist á skrifstofu minni í Safnaðar-
heimilinu Vinaminni og talað sam-
an, en eins og staðan er núna get-
um við spjallað í símann. Ég hvet
bara fólk til að hafa samband og við
finnum út hvernig sé best fyrir mig
að aðstoða í ljósi aðstæðna núna,“
segir Jónína.
Spurð um sína helstu styrkleika
í starfi prests svarar Jónína því að
hún sé mikil félagsvera. „Ég á al-
mennt mjög auðvelt með að kynn-
ast fólki. Sem félagsvera eru þess-
ir tímar til dæmis ekkert svo auð-
veldir fyrir mig,“ segir hún og hlær.
„Annars hef ég mikla unun af öllum
þáttum prestsstarfsins og er þakklát
fyrir að hafa valið mér það að ævi-
starfi. Það er þetta með fjölbreytn-
ina í starfinu sem ég sé alltaf betur
og betur hvað á vel við mig. Það að
ganga með fólki í gegnum stærstu
stundir lífs þess eru forréttindi og
því fylgja gjarnan mjög falleg og
náin tengsl. Ég er þakklát fyrir
að fá að takast á við slík verkefni í
starfi mínu. Ég er full tilhlökkun-
ar að hefja hefðbundið helgihald
og safnaðarstarf í hinu nýsamein-
aða Garða- og Saurbæjarprestakalli
og bíð spennt eftir að fá að kynn-
ast öllum okkar góðu sóknarbörn-
um, fá að vinna með Þóru og Þráni,
organistunum og öllu hinu frábæra
fólkinu sem starfar í prestakallinu.“
arg
Jónína þegar hún var vígðist til Dalvíkurprestakalls í ágúst á síðasta ári. Ljósm. Kirkjan.is
Þóra Björg Sigurðardóttir er önnur af tveimur nýjum prestum í Garða- og Saur-
bæjarprestakalli. Ljósm. úr einkasafni
Þóra Björg og Geirlaugur Ingi Sigurbjörnsson á brúðkaupsdaginn.
Ljósm. úr einkasafni
Jónína Ólafsdóttir með fjölskyldunni sinni, Eggerti Þórarinssyni eiginmanni sínum
og Pétri og Þórdísi börnunum þeirra. Ljósm. úr einkasafni