Skessuhorn - 07.04.2020, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 7. ApRíl 2020 19
Þrátt fyrir veirufaraldur í land-
inu heldur stækkun Norðurgarðs
í Grundarfirði áfram. Starfsmenn
Borgarverks hafa ekki slegið slöku
við síðustu vikur. Stálþiljum hefur
fjölgað þónokkuð undanfarin miss-
eri og nú er verið að fylla upp með
efni við þilin. Veðurfar hefur ver-
ið risjótt og sett strik í reikninginn
hjá verktökunum upp á síðkastið þó
að það hafi verið með besta móti
þegar ljósmyndari kíkti á svæðið.
Hlé verður á framkvæmdum yfir
páskahátíðina en væntanlega fer allt
á fullt aftur eftir páska.
tfk
Miðvikudaginn 1. apríl síðastliðinn
færði lionsklúbbur Stykkishólms
íbúum Dvalarheimilis aldraðra í
Stykkishólmi þrjár ipad spjaldtölv-
ur að gjöf. Kristín Sigríður Hann-
esdóttir forstöðumaður, Anna María
Rafnsdóttir og Tatjana Spasojeviv
Svitlica veittu gjöfunum viðtöku fyr-
ir hönd heimilisins.
Amtsbókasafninu í Stykkishólmi
var einnig færður hátalari og hljóð-
nemi að gjöf sama daginn, til að nota
á fundum og öðrum viðburðum á
vegum safnsins. Nanna Guðmunds-
dóttir forstöðumaður tók við gjöf-
unum fyrir hönd safnsins.
Gjafirnar munu koma til með að
nýtast vel í starfi dvalarheimilisins
og bókasafnsins, en í ljósi aðstæðna
voru báðar gjafirnar frá lions af-
hentar að viðstöddu fámenni.
kgk/ Ljósm. sá.
Umhverfisstofnun veitti nýver-
ið tvö aðskilin leyfi til innflutnings
á annars vegar fjórum risaköngu-
lóm (tarantúlum) frá Þýskalandi
og hins vegar fjórum fésuglum frá
Bretlandi. Fjölskyldu- og húsdýra-
garðurinn fær köngulærnar til sýn-
is að ákveðnum skilyrðum uppfyllt-
um. Þá fær Sigrún Kærnested Óla-
dóttir leyfi til innflutnings á fjór-
um fésuglum til að hafa til sýnis og
fræðslu í sérútbúnu húsi með áföstu
búri.
mm
Hjá fyrirtækinu pure Spirit í Borg-
arnesi starfa að jafnaði 6-8 manns
við átöppun áfengra drykkja. í síð-
ustu viku breyttist vinnulagið þó
talsvert því byrjað var að framleiða
handspritt úr etanóli sem jafnan
er hráefni til áfengisframleiðslu.
Magnús Arnar Arngrímsson, for-
svarsmaður fyrirtækisins, segir í
samtali við Skessuhorn að borist
hafi beiðni til fyrirtækisins um að
framleiða handspritt þar sem til-
finnanlegur skortur er á slíku um
allan heim. „Við erum nú að fram-
leiða upp í pantanir fyrir Krónuna
og lyfju. Framboð af handspritti er
einfaldlega alltof lítið hvert sem lit-
ið er. Vínframleiðsla fer alla jafnan
fram með fínna etanóli en notað er
til framleiðslu á handspritti og þar
af leiðandi verður varan eitthvað
dýrari. Við framleiðslu á hand-
spritti er þess vel gætt að það sé
gert óhæft til drykkjar. Það er hins
vegar ekkert einsdæmi hér á landi
að áfengisframleiðendur séu að
framleiða hanspritt til sótthreins-
unar, dæmi um slíkt er að finna víðs
vegar í heiminum nú á þessum tím-
um þegar gæta þarf aukins hrein-
lætis vegna kórónaveirunnar,“ segir
Magnús Arnar í samtali við Skessu-
horn. mm
Vonskuveður gekk yfir landið á
sunnudaginn. Veðurstofa íslands
hafði gefið út appelsínugula við-
vörun fyrir landið allt, utan höf-
uðborgarsvæðisins. Á Vesturlandi
var víða blindbylur og mjög hvasst.
Ekkert ferðaveður var á meðan byl-
urinn gekk yfir og vegir víða lokað-
ir eða ófærir.
Félagar í Björgunarsveitinni
Heiðari í Borgarfirði fóru og að-
stoðuðu ökumenn sem lentu í vand-
ræðum á Holtavörðuheiði á laugar-
dagskvöld og aðfararnótt sunnu-
dags. Komust allir heilir til byggða,
að því er fram kemur á Facebook-
síðu sveitarinnar. Holtavörðuheiði
var lokað vegna veðurs, sem og
Fróðárheiði. Ófært var um Svínadal
og þungfært á Bröttubrekku. Vest-
urlandsvegi um Kjalarnes var lokað
lengst framan af sunnudagskvöldi
og strætóferðir féllu niður. Þá var
ófært um norðanverðan Hvalfjörð
í gærmorgun og þungfært sunnan
megin fjarðarins.
Að sögn lögreglunnar á Vest-
urlandi lentu einhverjir ökumenn
í vandræðum í gær vegna veðurs.
Ökumaður lenti í vandræðum á
Vatnaleið í gærkvöldi og annars var
fastur á Snæfellsnesvegi austan við
Vegamót. Var björgunarsveit köll-
uð út til aðstoðar.
Haft var samband við lögreglu
vegna hlöðu sem var að fjúka á
Mýrum á sunnudgasmorgun og
fóru björgunarsveitir til aðstoðar
fólkinu. Einnig veit Skessuhorn til
þess að þakplötur tóku að fjúka af
hlöðu á bæ í Stafholtstungum.
Rafmagnslaust varð í Saurbæ í
Dölum vegna veðurs, frá því um kl.
23 á sunnudagskvöld og þar til um
þrjúleytið aðfaranótt mánudags. Þá
varð bilun í Grundarfjarðarlínu um
sjöleytið í gærmorgun, en viðgerð
var lokið um kl. 11:00 í gær. kgk
Vegir voru víða lokaðir eða ófærir. Ljósm. úr safni/ kgk.
Vonskuveður á sunnudag
Verið að fylla upp með efni við stálþilin.
Framkvæmdir halda áfram
í Grundarfirði
Séð yfir nýjasta hluta Norðurgarðs.
Vínframleiðendur í
framleiðslu á handspritti
Tarantúla.
Tvær framandi dýrateg-
undir á leið til landsins
Nanna Guðmundsdóttir, forstöðumaður Amtsbókasafnsins í Stykkishólmi, tók við
gjöfunum frá Lions fyrir höndum safnsins.
Færðu dvalarheimilinu
og bókasafninu gjafir
Anna María Rafnsdóttir, Kristín Hannesdóttir forstöðumaður og Tatjana Spasoj-
evic Svitlica veittu spjaldtölvunum viðtöku fyrir hönd dvalarheimilisins.