Skessuhorn - 07.04.2020, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 7. ApRíl 202022
Pennagrein Pennagrein
Traust umgjörð fag-
fólks
lífið á flestum heimilum landsins
er með óvenjulegum brag um þess-
ar mundir, raunar á það við um alla
heimsbyggðina. Hér á landi eigum
við því láni að fagna að umsjón að-
gerða til að sporna við stjórnlausri
útbreiðslu Covid veirunnar hefur
verið í höndum afburða fagfólks
og það er vel. Því er ekki að heilsa
í öllum samfélögum. Haft er á
orði að þessi faraldur sé ein mesta
ógn sem heimurinn hefur staðið
frammi fyrir frá stríðslokum, og
margir eru uggandi um friðinn.
Verjum heimilin
Allt er úr skorðum gengið. Þús-
undir landsmanna hafa verið settir
í sóttkví, hafa smitast og/eða veikst
og því miður nokkrir látist. Af
þessa völdum hefur gangverk sam-
félagsins stöðvast. Þetta ástand
snertir hverja fjölskyldu og hvert
heimili í landinu. Beinar áhyggj-
ur af framvindu veikinnar eru eitt
og til viðbótar kemur svo kvíði yfir
því hvað við taki, hvernig megi
rétta úr kútnum, tryggja fram-
færslu, standa skil á fjárhagslegum
skuldbindingum. Þótt efnahags-
hrunið á síðasta áratug hafi verið
af ólíkum toga, þá taka sig upp hjá
mörgum erfiðar minningar. Hvað
sem á dynur, þá má það ekki ger-
ast að nokkur fjölskylda missi hús-
næði sitt eða flæmist á brott vegna
þeirra aðstæðna sem nú hafa skap-
ast. Við í Samfylkingunni erum
sérstaklega á varðbergi hvað þetta
varðar.
Öryggisleysi og óvissa
Foreldrar og fjölskyldur á íslandi
eru skiljanlega uggandi. Stjórn-
völd hafa gripið til fyrstu ráðstaf-
ana sem beinast nær eingöngu að
bráðaaðgerðum gagnvart atvinnu-
lífinu; fyrirtækjum þar sem við-
skipti eru nú engin. Einstaklingar
og fjölskyldur sem minnst bera úr
býtum sitja á hakanum. Þar þurf-
um við að búa okkur undir lang-
tíma stuðning og víðtæk úrræði.
Það var afleitt að ekki var gengið
lengra varðandi stuðninginn við
barnafjölskyldur í aðgerðaáætlun
ríkisstjórnarinnar. Vilji Samfylk-
ingarinnar var skýr, að barnabætur
yrðu festar í sessi aftur og gerðar
að virkum stuðningi eins og raun-
in varð í kjölfar efnahaghruns-
ins. Þetta samþykkti ríkisstjórn-
in hins vegar ekki, heldur féllst á
lága eingreiðslu og það eru mikil
vonbrigði. Þau úrræði sem kynnt
hafa verið eru ekki næg við þess-
ar aðstæður, það þarf meira til og
við getum gert betur. Almenning-
ur treystir því að stjórnvöld muni
ekki bregðast og á Alþingi reynum
við í stjórnarandstöðu að standa
vaktina.
Staða öryrkja
Fjölmargir öryrkjar draga fram líf-
ið undir fátæktarmörkum og búa
við enn erfiðari aðstæður í þessum
hremmingum en fyrr. Auk heilsu-
brests, þá upplifa margir þrúgandi
félagslega einangrun nú þegar um-
gengni meðal fólks er takmörkum
háð. Þótt rýmri fjárráð leysi ekki
allan vanda, þá skapast við það
auknir möguleikar til meiri lífs-
gæða. Smánarleg eingreiðsla nú
um mánaðarmótin er ekki svar við
kallinu.
Fátækt meðal aldraðra
ítrekað hefur verið krafist lágmarks
lagfæringa á viðurværi þeirra eldri
borgara sem sannanlega lifa undir
framfærslumörkum. Félagsmála-
ráðherra hefur í nærri þrjú ár lofað
umbótum fyrir þennan hóp. Fram
er komið frumvarp sem lýtur að því
að styrkja framfærslu aldraðra ein-
staklinga sem eiga engin eða tak-
mörkuð lífeyrisréttindi í almanna-
tryggingum. í þeim hópi eru m.a.
eldri innflytjendur. Frumvarpið er
hins vegar fast í nefnd og enginn
áhugi af hálfu ríkisstjórnarinnar að
afgreiða málið snarlega út. Þetta
þarf að gerast strax og við jafnað-
armenn styðjum það með oddi og
egg.
Viðmót gagnvart
námsfólki
Námsmenn hafa í mörg ár barist
fyrir úrbótum á úreltu og ófull-
nægjandi stuðnings- og lánafyrir-
komulagi með vísan til uppbyggi-
legs stuðnings sem er að finna í ná-
grannalöndunum. Nú bætist við
þessi vandi þegar skólar loka. Þetta
hefur alvarleg áhrif á námsfram-
vindu, kosta tafir, aukin útgjöld og
sumartekjur alls óvissar. Því er úti-
lokað annað en að námslánum yf-
irstandandi tímabils verði breytt í
styrk og það styðjum við heilshug-
ar í Samfylkingunni.
Stöndum saman
Fjárhagslegt umfang sem stjórn-
völd hafa kynnt sem viðspyrnu við
heimsfaraldri Covid-19 er vanmet-
ið. Sterkar vísbendingar eru um
að bæði heimili og fyrirtæki þurfi
öflugri stuðning yfir lengra tíma-
bil. Við tökumst á við það verk-
efni af bjartsýni og einbeitingu. ís-
lensk þjóðarbú stendur vel að vígi
og þegnar landsins eru dugandi
fólk. Um síðir er mest um vert að
öll þjóðin, samfélagið allt gangi
heilt og þroskaðra frá þessum erf-
iðleikum og að við verðum reiðu-
búin sem fyrr að ganga vonglöð til
móts við bjarta framtíð.
Guðjón S Brjánsson.
Höf. er alþingismaður Samfylk-
ingarinnar í NV kjördæmi.
plánetna jörð hefur aldrei verið
smærri. Heimsfaraldurinn sem nú
geisar spyr ekki um trúarbrögð,
kynþátt, skoðanir eða þjóðfélags-
stöðu. Verkefni næstu mánaða um
allan heim munu snúa að vinnu við
endurreisn efnahags og samfélaga í
víðu samhengi. Ég er bjartsýn á að
„nýi heimurinn“ muni einkennast
af meira umburðarlyndi og minni
fordómum.
Ég er einnig fullviss um að við
munum standa uppi sem betri
manneskjur eftir að þessu faraldri
líkur. Við höfum verið tilneydd
til að halda okkur heima og erum
öll farin að þrá nánd, samveru og
faðmlag frá okkar nánustu vinum
og félögum. Samskipti sem alltaf
hafa verið sjálfsögð og óhugsandi
að yrði settar hömlur á eða bönn.
Við munum vafalaust eftir þessa
reynslu eina og sér meta samveru
við annað fólk á annan hátt það sem
eftir lifir. Reynsla sem mun vonandi
minna okkur á að lifa í kærleika og
gera okkur að betri og umburðar-
lyndari manneskjum.
Þær aðstæður sem við verðum nú
vitni að fá okkur til að tengja aftur í
rætur okkar, hvaðan við komum og
hvernig við höfum þróast sem sam-
félag og sem þjóð. Okkur skortir
ekki trú á verkefnið og vitum að í
okkur býr sá kraftur sem þarf til að
koma hjólunum aftur af stað. En
vonandi hefur gildismatið breyst og
minnt okkur á þau lífsgæði sem við
búum við sem þjóð. Yfirvöld eiga
hrós skilið fyrir þær öflugu aðgerð-
ir sem okkur hafa verið kynntar til
þess að veita ástandinu viðspyrnu
og koma fjölskyldum, einstakling-
um og fyrirtækjum til varnar og
lágmarka neikvæð langtímaáhrif.
SAMVINNA er grundvallar-
forsenda þess að við getum ris-
ið upp aftur sem öflugt samfélag
með tækifæri til vaxtar eftir efna-
hagslegar hamfarir. Mikilvægt er
að við séum öll meðvituð um það
til lengri tíma að það endurreisnar
tímabil sem framundar er verði að
einkennast af SAMVINNU. Tæki-
færi okkar sem þjóðar til að vaxa
felast í SAMVINNU greina sem
standa í fremstu röð, matvælafram-
leiðslu, ferðaþjónustu, iðnaði, skap-
andi greinum og menntavísindum.
Þessar greinar geta ekki án hvor
annarra verið og geta með auk-
inni SAMVINNU lagt grundvöll
að sjálfbærni þjóðarinnar. Sjálfbær
þjóð sem er virk í alþjóðlegu sam-
starfi og í fremstu röð með útflutn-
ing á íslenskri hágæða framleiðslu
og þekkingu.
Guðveig Lind Eyglóardóttir.
Höfundur er oddviti Framsóknar-
manna í Borgarbyggð.
Þær voru nokkuð roggnar með sig
stúlkurnar tvær sem að ljósmyndari
Skessuhorns rakst á í Grundarfirði
á dögunum. Þá voru þær að nýta
byrjunina á páskafríinu í að fegra
bæinn með því að tína upp rusl sem
kemur undan snjónum. Þær voru á
góðri leið með að fylla sinn hvorn
pokann þegar fréttaritari smellti
af meðfylgjandi mynd áður en þær
héldu tiltektinni áfram.
tfk
Allt er nú breytt
Hérna eru þær Ellen Alexandra og Jódís Kristín með pokana sem þær fylltu svo
skömmu síðar.
Tíndu rusl af
götum bæjarins
Friður, sátt og
sanngirni
í samkomubanni sem nú er í gildi
eru skiljanlega engar samkom-
ur. landsmenn hafa síðustu helg-
ar fengið tónleika heim í stofu frá
hinum ýmsu listamönnum eins og
Helga Björns og Skítamóral, svo
einhverjir séu nefndir. Grundar-
fjarðarkirkja hefur tekið á það ráð
að fara sömu leið og síðasta sunnu-
dagsmorgun klukkan ellefu var
messa í kirkjunni sem send var út
yfir veraldarvefinn. Séra Aðal-
steinn Þorvaldsson messaði á með-
an organistinn Þorkell Máni Þor-
kelsson og söngkonurnar linda
María Nielsen og Kristbjörg Ásta
Viðarsdóttir voru í öruggri fjar-
lægð frá hvort öðru við sálmaflutn-
ing. Grundfirðingar gátu þá notið
messunnar heima í stofu eða bara
hvar sem er og er þetta væntanlega
það sem koma skal við helgihald
um komandi páskahátíð.
tfk
Ung grundfirsk stúlka fylgist með séra Aðalsteini á skjánum.
Messa heima í stofu