Skessuhorn - 07.04.2020, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 7. ApRíl 202024
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Stykkishólmsbær, í samvinnu við
Félag íslenskra langslagsarkitekta,
vinnur nú að því að forma hönnun-
arsamkeppni um útsýnispall í Súg-
andisey. Bæjarfélagið fékk styrk að
verðmæti 3,8 milljónir úr Fram-
kvæmdasjóði ferðamannastaða til
að halda hugmyndasamkeppni um
skipulag og hönnun útsýnispalls-
ins. „Þetta er spennandi verkefni
sem mun bæði auka upplifun ferða-
manna og bæta öryggi þeirra á þess-
um vinsæla viðkomustað í Stykkis-
hólmi sem Súgandisey er, auk þess
sem framkvæmdin mun verja nátt-
úru svæðisins fyrir ágangi og auka
ánægju gesta,“ segir Jakob Björg-
vin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykk-
ishólmi, í samtali við Skessuhorn.
pallurinn verður staðsettur á tanga
eyjarinnar, sem vísar til norðaust-
urs með útsýni yfir Breiðafjörðinn
og eyjaklasana þar, í átt að Klofn-
ingi og Fellsströnd. „Göngustíg-
urinn eins og hann er núna ligg-
ur framhjá þessum tanga og sést
greinilega slóði út á þessa kletta-
brún þar sem þverhnípt er niður
í stórgrýtta fjöruna, en út á tang-
ann er vinsælt meðal gesta að ganga
til að taka af sér myndir með þetta
stórbrotna útsýni í bakgrunn,“ seg-
ir bæjarstjórinn.
Verkefnið er nokkuð stórt í snið-
um. Fyrsti áfangi þess felst í því
sem nú er unnið að, það er að segja
hugmyndasamkeppni um hönnun
og skipulag útsýnispallsins. Um
þessar mundir vinna stjórnendur
Stykkishólmsbæjar að mótun þeirr-
ar samkeppni í samstarfi við FílA,
sem fyrr segir. Að sögn bæjarstjór-
ans er þetta ekki ósvipuð leið og
Bolungarvíkurbær fór varðandi út-
sýnispall í Bolafjalli. „Þeir fengu
fyrst hönnunarstyrk og fengu svo
styrk til að hrinda vinningstillög-
unni í framkvæmd,“ segir Jakob.
„Þegar við hjá Stykkishólmsbæ
verðum búin að forma samkeppn-
ina um útsýnispallinn í Súgand-
isey í samstarfi við FílA, þá getur
keppnin hafist. Að keppni lokinni
kemur í ljós hvernig pall við sjáum
fram á að byggja. Þegar það liggur
fyrir munum við sækja um styrk til
framkvæmdarinnar í Framkvæmda-
sjóð ferðamannastaða til að byggja
pallinn,“ segir Jakob Björgvin Jak-
obsson að endingu. kgk
lífið heldur áfram, með nokkrum
útúrsnúningum þó, í þessu undar-
lega ástandi sem nú ríkir á tímum
Covid-19 og öllu sem þeim faraldri
fylgir. Eyjabændur fóru um þarsíð-
ustu helgi í báta sína frá Stykkis-
hólmi, sigldu út í Breiðafjarðareyj-
ar og sóttu fé sitt, svokallað aflands-
fé.
Féð var fært til rúnings og kom-
ið á hús áður en sauðburður fer í
hönd, en vorboðinn sá er handan
við hornið hvað sem öllu öðru líður
hérna undir sólinni. kgk/ Ljósm. sá.
Mennta- og menningarmála-
ráðherra, ásamt skólameisturum
starfsmenntaskóla og umsýsluað-
ilum sveinsprófa, hafa tekið sam-
an höndum til að finna leiðir svo
tryggja megi náms- og próflok hjá
þeim sem nú stefna að sveinspróf-
um, þrátt fyrir tímabundnar lokan-
ir skólabygginga og margra vinnu-
staða.
Sveinspróf verða að þessu sinni
haldin 3-5 vikum eftir annarlok og
eigi síðar en 15. september. All-
ir nemendur, sem hyggjast fara í
sveinspróf í vor, eru því hvattir til
að sækja um hjá umsýsluaðilum
sveinsprófa; Iðunni eða Rafmennt.
„Eftir nokkrar vikur hefjum við
viðspyrnu eftir þrengingar í samfé-
laginu og þá verður enn ríkari þörf
fyrir nýútskrifaða í öllum iðngrein-
um. Nemendur eru beðnir að fylgj-
ast vel með þróun mála á heima-
síðu skólans síns og umsýsluaðila
sveinsprófa. Fundnar verða lausnir
við áskorunum hverrar iðngreinar
og sveinsprófstakar upplýstir um
þær eins fljótt og verða má,“ segir
í tilkynningu frá ráðuneyti mennta-
mála.
mm
Sveinspróf verða haldin
Súgandisey. Til stendur að reisa útsýnispallinn á þeim tanga eyjunnar sem er
hér fyrir miðri mynd með útsýni yfir Breiðafjörðinn og eyjaklasana þar, í átt að
Klofningi og Fellsströnd. Ljósm. sá.
Áformað að reisa útsýnispall í Súgandisey
Verið að móta hugmyndasamkeppni um verkefnið
Hér hafa nokkrar skjátur gert tilraun til að komast undan.
Eyjabændur
sóttu aflandsfé
Aflandsfénu smalað í land þar sem því var síðan komið í skjól.
Eiríkur Helgason færir fé til lands.