Skessuhorn - 07.04.2020, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 7. ApRíl 2020 27
Þóra Sif Svansdóttir ólst upp í
Borgarnesi þar sem hún einnig býr
með fjölskyldu sinni en hún er dótt-
ir þeirra Svans og Elfu í Framköll-
unarþjónustunni. Þóra er gift fjög-
urra barna móðir 17 ára stjúpdóttur
og ellefu og fimm ára og tíu mán-
aða dætra. Þegar Þóra var í fyrsta
skipti að halda barnaafmæli langaði
hana að baka glæsilega köku fyr-
ir tilefnið og ákvað hún að skreyta
kökuna með sykurmassa. Upp frá
þessu eignaðist hún nýtt áhuga-
mál sem hún hefur stundað síð-
ustu ár; að baka og skreyta kök-
ur. „Þetta vatt bara upp á sig, ég
þurfti alltaf að toppa síðustu köku
í hverju barnaafmæli sem ég hélt,“
segir hún og hlær. Fyrstu árin gerði
Þóra bara eina glæsilega köku á ári,
fyrir afmæli dóttur sinnar. En þeg-
ar hún var að koma úr fæðingaror-
lofi í annað sinn sá hún auglýsingu
frá kökuversluninni Sætum syndum
þar sem auglýst var eftir tímabund-
inni aðstoð. „Ég ákvað að sækja um
og hoppaði þarna inn í stuttan tíma
en lærði gífurlega mikið. Upp frá
því fór ég að afla mér meiri þekk-
ingar í gegnum Youtube og aðrar
vefsíður,“ segir Þóra.
Aðal atriði að þær
bragðist vel
í dag er Þóra með þvottahúsið
á heimilinu svo gott sem undir-
lagt fyrir þetta áhugamál sitt. „Ég
er með fullt af alls konar bökun-
arvörum þar inni, alveg troðfulla
skápa af þessu. Þetta er náttúru-
lega frekar brjálæðislegt hobbý hjá
manni,“ segir hún og hlær. En til
að gera kökurnar sem glæsilegastar
þarf ýmis tól. En hvað er það sem
henni þykir svona skemmtilegt við
baksturinn og kökuskreytingarnar?
„Það er skemmtilegast að skreyta
en mér þykir líka gaman að gera
góðar kökur. Það er alveg aðalat-
riðið hjá mér að kökurnar bragð-
ist vel, séu djúsí og góðar. Ég hef
oft séð fallegar kökur sem eru svo
þurrar eins og pappír þegar maður
borðar þær og ég vil ekki gera svo-
leiðis kökur. En svo þykir mér bara
gaman að skreyta þær og gera kök-
urnar fallegar, þannig að þær gleðji
fólk, bæði með hvernig þær líta út
og hvernig þær bragðast,“ svarar
hún. Spurð hvort ekki sé erfitt að
skreyta blautar og djúsí kökur segir
hún það alls ekki vera. „lykillinn er
að skreyta þær alltaf frosnar,“ svar-
ar hún. „Ferlið fyrir eina köku tekur
um þrjú kvöld. Fyrst baka ég kök-
una og hendi henni strax í frysti, svo
á kvöldi númer tvö bý ég til skraut
á kökuna og á þriðja kvöldi tek ég
hana úr frysti og skreyti. Þegar kak-
an er frosin er ekkert mál að skreyta
hana,“ svarar Þóra.
Bestar á öðrum degi
Þóra var töluvert að skreyta með
sykurmassa fyrst þegar hún byrj-
aði en í dag segist hún lítið nota
hann. „Mér þykir mikið betra
og skemmtilegra að skreyta bara
með smjörkremi. Smjörkremið
heldur svo kökunum alveg fersk-
um í nokkra daga ef maður þekur
þær alveg. í raun eru góðar kökur
sem búið er að þekja í smjörkremi
bestar á degi tvö svo ég er yfirleitt
með kökurnar klárar tveimur dög-
um áður en á að borða þær,“ segir
Þóra. Er ekkert erfitt að hafa lagt
marga klukkutíma í að gera köku,
sem ekki er hægt að segja að sé
annað en listaverk, og horfa svo á
fólk skera í þær og borða? „Nei alls
ekki. Ég er ekki að taka að mér að
baka fyrir hvern sem er, geri þetta
bara fyrir allra nánasta fólkið mitt
og ég er því oft sjálf í veislunum þar
sem kakan er borin fram. Fólk þor-
ir oft ekki að skera í kökurnar og ég
er oftar en ekki beðin um að gera
það,“ segir Þóra og hlær. „En ef ég
er búin að ná góðri mynd af kök-
unni þá græt ég þær ekkert þegar
ég sé fólk borða þær.“ Spurð hvort
hún eigi sér uppáhalds köku seg-
ir hún mjög erfitt að gera upp á
milli en í augnablikinu er það fal-
leg skírnarkaka sem hún gerði fyrir
dóttur sína síðasta sumar. „Það var
frönsk súkkulaðikaka með þristab-
ingókúlukremi og það er kaka sem
maður bakar ekki oft, hún er nefni-
lega hættulega góð,“ segir hún og
hlær. En hægt er að skoða mynd-
ir af kökunum hennar Þóru á Fa-
cebook síðunni Þóru kruðerí og á
Instagram undir nafninu thorukru-
deri.
Vill halda kökunum
sem áhugamáli
Eins og fram hefur komið tekur
Þóra ekki að sér kökuskreyting-
ar fyrir fólk þó margir hafi leitað
til hennar. „Ég þarf alltaf að segja
nei því ég hef eins og staðan er
bara ekki tíma til að gera meira af
þessu,“ segir hún og bætir því við
að hún vilji líka helst halda kö-
kuskreytingunum sem áhugamáli
frekar en vinnu. „Ég er hrædd
um að fá leið ef ég hætti að gera
þetta á eigin forsendum bara fyr-
ir mig og mína nánustu,“ seg-
ir hún. „Þegar fólk heyrir í mér
bendi ég alltaf á Sætar syndir eða
Geirabakarí en þar er hægt að fá
flottar og góðar kökur.“ En Þóra
er í fullu starfi sem þjónustustjóri
hjá fyrirtækinu FranklinCovey á
íslandi auk þess sem hún kenn-
ir söng í Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar og er því alveg nóg að gera
hjá henni eins og er. En hvað ger-
ir þjónustustjóri hjá FranklinCo-
vey? „FranklinCovey er alþjóð-
legt þekkingarfyrirtæki á sviði
þjálfunar, ráðgjafar og rannsókna
á árangri einstaklinga, liðsheilda
og vinnustaða. Við virkjum fram-
úrskarandi frammistöðu fólks og
vinnustaða um allan heim. lausn-
ir FranklinCovey hafa þjónað ár-
angri íslenskra vinnustaða um
árabil og njóta mikillar virðingar
og útbreiðslu í um 150 löndum.
Þjónusta FranklinCovey er með-
al annars á sviðum leiðtogaþjálf-
unar, trausts, þjónustustjórnun-
ar, sölustjórnunar og persónu-
legrar foyrstu og þekkir fólk oft
lausninar okkar einsog „7 venjur
til árangurs“, „Innleiðingu stefnu
með 4DX“, „5 valkostir aukinn-
ar framleiðni“ og „leiðtoginn í
mér“ sem unnið er með í leik- og
grunnskólum.“ svarar Þóra.
arg/ Ljósm. úr einkasafni
Var alltaf að reyna að toppa sjálfa sig
Rætt við Þóru Sif Svansdóttur, kökuskreytingakonu í Borgarnesi
Þóra með fallegri köku sem hún bakaði og skreytti.
Falleg skírnarkaka. Öðruvísi nammikaka.
Ís að bráðna yfir kökuna.
Kiskukaka.
Skemmtileg lukkutröllakaka.
Brúðarterta.