Skessuhorn - 29.04.2020, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 29. ApRÍL 20202
Baráttudagur verkalýðsins er á
föstudaginn og alla jafnan er dag-
urinn haldinn hátíðlegur af verka-
lýðsfélögum landsins og almenn-
ingur skundar í kröfugöngur. Nú
á kórónutímum verður annar
bragur á deginum en í stað þess
að launþegar komi saman verð-
ur skemmti- og baráttusamkoma
sýnd í Ríkissjónvarpinu að kvöldi
1. maí.
Á morgun verður norðaustanátt
8-13 m/s og skýjað og stöku skúr-
ir eða él á landinu norðan- og
austanverðu. Hiti 0-5 stig, en bjart
með köflum sunnanlands og hiti
að 10 stigum yfir daginn. Á föstu-
dag er útlit fyrir hæga norðlæga
eða breytilega átt og skýjað að
mestu og líkur á dálitlum skúrum
eða éljum. Hiti 0-9 stig að degin-
um og svalast norðaustanlands.
Á laugardag verður hæg suðlæg
eða breytileg átt og stöku skúrir
sunnantil á landinu en léttir til fyrir
norðan. Hiti breytist lítið. Á sunnu-
dag er spáð sunnan- og suðaust-
anátt 5-15 m/s og hvassast við suð-
urströndina. Rigning á Suður- og
Suðvesturlandi en bjart að mestu
fyrir norðan. Hiti 4-8 stig. Á mánu-
dag er spáð áframhaldandi suð-
austanátt með vætu á Suðvestur-
landi en annars þurru og mildu
veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns hvort lesendur hefðu
keypt sér líkamsræktartól síðustu
tvo mánuði. Fæstir höfðu gert það,
eða 87%. 8% höfðu fjárfest í slíkum
tækjum og 2% voru ekki búnir að
gera það en kváðust eiga það eft-
ir. 2% svarenda höfðu ekki keypt
sér líkamsræktartól heldur tekið
slík á leigu.
Í næstu viku er spurt:
Hverjum af þessum ofurkröftum
myndir þú helst vilja búa yfir?
Fjölmargir lögðu leið sína út um
síðustu helgi og plokkuðu rusl úr
umhverfinu. Allir plokkarar á Vest-
urlandi eru Vestlendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Næturlokanir í
göngunum
HVALFJ: Vegna viðhaldsvinnu
og þrifa hafa Hvalfjarðargöng
verið lokuð undanfarnar tvær
nætur og verða þau einnig lok-
uð í nótt, aðfararnótt fimmtu-
dagsins 30. apríl. Lokanirnar
hafa staðið yfir frá kl. 23:00 til
06:30 og er miðað við þann tíma
í nótt einnig. Á meðan göngin
eru lokuð er umferð beint um
Hvalfjörð. -kgk
Ber að upplýsa
um kostnað við
málarekstur
BORGARBYGGÐ: Ákvörð-
un Borgarbyggðar um að neita
eiganda Króks í Norðurárdal
um aðgang að sundurliðuð-
um upplýsingum um kostnað
vegna málareksturs gegn hon-
um, hefur verið felld úr gildi.
Úrskurðarnefnd um upplýs-
ingamál vísaði beiðni landeig-
andans aftur til Borgarbyggðar
til nýrrar lögmætrar meðferðar.
Sömuleiðis var sveitarfélaginu
gert að veita eiganda Króks að-
gang að samningi sveitarfélags-
ins við lögmannsstofuna LEX,
sem og aðgang að minnisblaði
vegna lögfræðikostnaðar fyr-
ir árin 2017 og 2018, að því er
fram kemur í úrskurði nefndar-
innar frá 1. apríl síðastliðnum.
Í framhaldi af úrskurði nefndar-
innar var bréf frá eiganda Króks
lagt fram á byggðarráðsfundi í
Borgarbyggð 16. apríl síðastlið-
inn. Þar var sveitarstjóra falið
að afhenda eiganda Króks um-
beðnar upplýsingar, í samræmi
við úrskurðinn. -kgk
Hvatningarátak
um ferðalög
innanlands
LANDIÐ: Ferðamálastofa hélt
á mánudaginn síðasta kynning-
arfund á netinu um væntanlegt
hvatningarátak vegna ferða-
laga innanlands. Meðal ann-
ars var farið yfir hvernig ferða-
þjónustan getur nýtt sér hvatn-
ingarátakið og auglýsingaefni
sem útbúið verður í tengslum
við það. Fundinum var streymt
beint á Facebook-síðu Ferða-
málastofu en upptaka er að-
gengileg á netinu. Átakið verð-
ur keyrt á helstu miðlum með
áherslu á net- og samfélags-
miðla og verður umferð beint
inn á vefinn www.ferdalag.is,
þar sem hægt er að nálgast nán-
ari upplýsingar um fjölbreytta
ferðaþjónustu um allt land.
„Mikilvægt er að ferðaþjón-
ustuaðilar gangi úr skugga um
að upplýsingar um þá séu réttar
og að þeir séu örugglega skráð-
ir í gagnagrunn Ferðamála-
stofu. Ef breyta þarf upplýsing-
um, skal senda póst á netfang-
ið ferdalag@ferdamalastofa.is.
Eftir að átakið fer af stað vekj-
um við athygli á að þau fyrir-
tæki sem ekki hafa brugðist við
tölvupóstum þar sem þau eru
beðin að yfirfara eða staðfesta
upplýsingar sínar, verða ekki
sýnileg á vefnum fyrr en upp-
lýsingar hafa verið yfirfarnar
eða staðfestar,“ sagði í tikynn-
ingu frá Ferðamálastofu. -mm
Veðurhorfur
Hvalveiðar verða ekki stundaðar í
sumar samkvæmt frétt í Morgun-
blaðinu síðastliðinn föstudag. Þar
er haft eftir Kristjáni Loftssyni for-
stjóra Hvals hf. að helsta ástæða
þeirrar ákvörðunar byggi á því að
erfitt sé að keppa við niðurgreiddar
hvalveiðar Japana, þar sem mark-
aður fyrir hvalaafurðir er. Þarlend
stjórnvöld hafa sagt sig úr Alþjóða-
hvalveiðiráðinu og stunda niður-
greiddar hvalveiðar innan sinnar
eigin landhelgi sem geri samkeppn-
isstöðu annarra ríkja vonlausa. Auk
þess eru gerðar aðrar kröfur til heil-
brigðisvottunar afurða sem flutt-
ar eru erlendis frá en gerðar eru
til þeirra eigin afurða. Þá er einnig
haft eftir Kristjáni að þótt markað-
urinn í Japan væri í lagi hefði ver-
ið nánast vonlaust að hefja veiðar
og vinnslu vegna kórónuveirufar-
aldursins. Menn séu að vinna við
hvalskurð í miklu návígi. „Ef ein-
hver veiktist þyrfti að setja marga
menn í sóttkví og þá gengi dæmið
ekki upp,“ sagði Kristján í samtali
við Morgunblaðið.
Sumarið 2018 voru hvalveið-
ar síðast stundaðar hér við land.
Þá voru veiddar 146 langreyðar
og verkun fór fram í Hvalstöðinni
í Hvalfirði. Samkvæmt reglugerð
hefði verið heimilt að veiða 161
langreyði vestan við landið í sumar
og 48 fyrir austan. Auk þess er leyfi
til veiða á 217 hrefnum, en ólíklegt
er nú að framhald verði á hrefnu-
veiðum.
mm
Að undanförnu hefur verið góður
afli hjá þeim bátum á Snæfellsnesi
sem róa á handfæri en hinsvegar
hefur fiskverð hrunið síðustu dag-
ana. Magni Aðalsteinsson, verk-
stjóri hjá Fiskmarkaði Snæfellsbæj-
ar, segir helstu ástæðu fyrir verð-
lækkun nú vera að Norðmenn eru
að dæla miklu magni af fiski inn á
erlenda markaði.
Feðginin Þórhalla og Gísli
Marteinsson róa á handfærabátn-
um Glað SH frá Ólafsvík. Þau
voru hress í bragði þegar frétta-
ritari sigldi að þeim, þrátt fyrir
að aflabrögð væru ekki með besta
móti. Þau voru þá stödd á Flák-
anum á sunnudaginn í Bongó-
blíðu.
af
Kristján Þór Júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra,
undirritaði í síðustu viku reglugerð
um strandveiðar árið 2020, en þær
hefjast eins og kunnugt er í byrjun
maí. Reglugerðin er efnislega sam-
hljóða reglugerð um strandveiðar
síðasta árs að öðru leyti en því að
lagaheimild ráðherra til að banna
strandveiðar á almennum frídög-
um er ekki nýtt í þessari reglugerð.
Því verður á þessari vertíð strand-
veiða ekki bannað að stunda veið-
ar á almennum frídögum. Hverj-
um strandveiðibát verður sem fyrr
heimilt að stunda strandveiðar í
12 veiðidaga innan hvers mánaðar,
mánuðina maí, júní, júlí og ágúst.
Nokkrar orðalagsbreytingar eru
gerðar frá reglugerð síðasta árs til
að auka skýrleika, en reglugerðin
byggir á ákvæðum 6. gr. a. í lögum
nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Í
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytinu er nú unnið að gerð laga-
frumvarps til að bregðast við áhrif-
um COVID-19 á þá sem stunda
strandveiðar og verður það kynnt
nánar á næstu vikum, segir í til-
kynningu frá ráðuneytinu. mm
Á upplýsingafundi Almannavarna
síðastliðinn sunnudag fóru Víðir
Reynisson yfirlögregluþjónn og
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir yfir stöðu mála með tilliti til CO-
VID-19 hér á landi. Víðir sagði þar
meðal annars að nú styttist í fyrstu
afléttingar takmarkana sem hafi
verið mjög íþyngjandi fyrir marga.
Mikilvægt væri að huga að fram-
haldinu og hvað við gætum gert
til að tryggja að ekki verði bakslag.
Hann sagði að áhugi væri á því að
þjóðin geri með sér samfélagssátt-
mála sem gildi í vor og fram á sum-
arið.
„Með slíkum sáttmála yrði sam-
hugur um að stunda handþvott,
nota handspritt, þrífa sameigin-
lega snertifleti, virða tveggja metra
mannhelgi, vera heima ef við finn-
um fyrir veikindum, veita áfram
mikilvæga heilbrigðisþjónustu og
taka sýni og beita sóttkví ef með
þurfi. Einnig þurfi að miðla upp-
lýsingum, fylgjast með traustum
fréttamiðlum og vera skilnings-
rík gagnvart þeim sem misstíga sig
og leiðbeina á kurteisan hátt um
að vanda sig betur. Umfram allt að
vera góð hvert við annað og passa
okkur að skilja engan útundan.
Við þyrftum að vinna að því í sam-
einingu að koma lífinu aftur í rétt
horf,“ sagði Víðir. Hann sagði það
einnig skipta miklu máli hvernig
önnur lönd aflétta takmörkunum.
Þetta væri sameiginlegt verkefni
alls mannkyns og allra samfélaga.
mm
Góð aflabrögð en
lækkað fiskverð
Strandveiðar verða með
svipuðu sniði og í fyrra
Þjóðin geri með sér samfélagssáttmála
Hvalveiðar voru síðast stundaðar sumarið 2018. Hér er svipmynd frá hvalskurðar-
planinu það sumar.
Engar hvalveiðar stundaðar í sumar