Skessuhorn


Skessuhorn - 29.04.2020, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 29.04.2020, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 29. ApRÍL 202014 Þórdís Sif Sigurðardóttir tók við starfi sveitarstjóra Borgarbyggðar á óvenjulegum tímum í lífi þjóðar, fyrir um mánuði síðan þegar Co- vid faraldurinn var að breiðast út um landið og þar á meðal í Borgar- nesi. Hún flutti þá vestan af fjörð- um þar sem hún hefur í sjö ár gegnt starfi bæjarritara, verið sviðsstjóri og staðgengill bæjarstjóra Ísafjarð- arbæjar. Á Ísafirði hafði hún ásamt börnum sínum tveimur komið sér vel fyrir í fallegu 167 ára húsi í hjarta bæjarins, í Smiðjugötu. Hún leigði húsið sitt, segist alls ekki hafa verið tilbúin að selja það þótt hún tæki við starfi í Borgarnesi. Við flutning í Borgarnes nú segist hún vera að koma aftur heim. Allar göt- ur síðan hún flutti vestur fannst henni þegar hún átti leið suður á bóginn, og brunaði niður Norður- árdalinn, hafi svona notaleg tilfinn- ing gripið um sig, líkt og þegar fólk nálgast bernskuslóðir eða staði sem því eru kærir. „Mér fannst ekki erf- itt að koma aftur hingað í Borgar- nes, setjast hér að og taka við nýju starfi. Ég var þó alls ekki orðin leið í gamla starfinu mínu fyrir vestan enda líkar mér vel á Ísafirði. Lít svo á að úr starfi mínu þar taki ég mikla reynslu með mér í farteskinu sem mun nýtast í störfum á nýjum vett- vangi. Á þessum fjórum vikum hef ég átt marga fundi í gegnum fjar- fundabúnað, en mjög fáa með fólki í fundaherbergi. Ég hef hvarvetna fengið hlýjar móttökur þrátt fyrir að vera ekki í miklum samskiptum við fólk vegna veirunnar. Því hlakka ég mikið til að hitta fólk, setjast nið- ur með því í góðum hópi og í meiri nánd en takmarkanir á samkomu- haldi hafa leyft. Sest er niður með nýjum sveitarstjóra Borgarbyggð- ar undir lok síðustu viku og farið yfir ferilinn, áhugamálin, starfið og helstu verkefni sem bíða. Lögfræðin heillaði mest En fyrst að upprunanum. „For- eldrar mínir eru Guðríður Þor- valdsdóttir og Sigurður Geirsson. Mamma kemur úr sveit, frá Bílds- felli í Grafningi, en pabbi ólst upp á Hvaleyrarholtinu í Hafnarfirði. Þau fóru bæði ung til náms hér í Borgarfirði og þar lágu leiðir þeirra saman. Hún var við nám í Hús- mæðraskólanum á Varmalandi en pabbi á Bændaskólanum á Hvann- eyri. Þau settust svo að hér í Borg- arnesi. Ég er fædd á Akranesi og á einn albróður. Síðar átti ég eftir að eignast fjóra stjúpbræður og tvær hálfsystur, þannig að fjölskyldu- mynstrið er nokkuð flókið, en skemmtilegt,“ segir hún og bros- ir. „Foreldrar mínir skilja þegar ég er átta ára og mamma flytur suður. Ég ólst því upp hjá föður mínum í Borgarnesi sem var hreint ekki svo algengt á þeim tíma. pabbi kynntist svo Hólmfríði Rósu Jósepsdóttur og þau fluttu eftir aldamótin norð- ur á Fjarðarhorn í Hrútafirði það- an sem Rósa var. Rósa féll frá eft- ir veikindi 2013 en hún hafði fyrir andlát sitt haft mikil áhrif á mig og hvatt mig til að bíða ekki með að láta draumana rætast, framkvæma það sem hugurinn sagði.“ Fram- haldsskólanámi lýkur Þórdís Sif 19 ára og starfaði eftir það um tíma í dómsmálaráðuneytinu, fór svo í í nám í Viðskipta- og tölvuskólanum og innritaði sig, eftir að áhugi fyr- ir lögfræði var kviknaður, í nám við Viðskiptaháskólann á Bifröst 2001. Mastersprófi í lögfræði lýkur hún frá Háskólanum í Reykjavík. Leysti svo af sem deildarstjóri á Bifröst um tíma áður en hún réði sig til starfa á Ísafirði. Festi rætur í Borgarnesi Þórdís segir að það hafi verið gott að alast upp í Borgarnesi. „Ég ólst upp í Mávaklettinum en umhverf- ið þar í kring var algjör ævintýra- heimur fyrir okkur börnin sem þar uxu úr grasi; fjaran, klettarnir - og þar var mikið frjálsræði úti í nátt- úrunni. Það var því gott að alast hér upp og náði ég því að mynda sterk- ar rætur og fyrir mér er Borgarnes alltaf að koma „heim.“ „Fyrir mér var alltaf að komast heim þegar ég nálgaðist Borgarnes“ Rætt við Þórdísi Sif Sigurðardóttir sem nýverið tók við starfi sveitarstjóra í Borgarbyggð Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar. Ljósm. mm. Þórdís og börnin hennar nýflutt í Borgarnes. Gamla fallega húsið sem Þórdís Sif á fyrir vestan.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.