Skessuhorn


Skessuhorn - 29.04.2020, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 29.04.2020, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 29. ApRÍL 2020 21 Gleðilegt sumar DALBRAUT 16, AKRANESI | www.smaprent.is Sendum um allt Vesturland Nýjar vörur á leidinni Kvikmyndasafn Íslands hefur opnað nýjan vef undir yfirskriftinni Ísland á filmu. „Tilgangur vefjarins er að opna almenningi sýn inn í fágætan safnkost Kvikmyndasafns Íslands. Þarna er að finna mikinn fróðleik um verklag í landbúnaði og sjávar- hætti auk ómetanlegra myndskeiða frá einhverjum merkustu atburðum Íslandssögunnar. Á vefnum www. islandafilmu.is er hægt að skoða myndefni úr fórum Kvikmyndasafns Íslands, allt frá árinu 1906. Á vefn- um verður fyrst um sinn hægt að nálgast hátt í 300 myndir og mynd- skeið aðgengileg víðs vegar af land- inu. Smám saman verður svo bætt á vefinn eftir því sem stafvæðingu efnis vindur fram. Á islandafilmu.is geta notendur valið sér staðsetningu og smellt á hana til að skoða mynd- skeið frá umræddum stað. Einnig er hægt að velja myndbrotin úr efnis- lista,“ segir í tilkynningu. Stutt lýsing fylgir hverju mynd- broti en notendum gefst tækifæri á að setja inn athugasemdir eða ábendingar. Þannig vonar Kvik- myndasafnið að þekking almenn- ings hvað varðar staði, fólk eða ann- að nýtist safninu til frekari efnis- greiningar sem vert er að varðveita og miðla. Notendum gefst jafnframt kostur á að deila myndunum á sam- félagsmiðlum, s.s. Facebook. Fágætir gullmolar Þær myndir sem birtast nú í fyrsta sinn á vefnum eru af ýmsu tagi. Uppistaðan er heimildamyndir sem gerðar vorum um miðbik 20. aldar af frumkvöðlum kvikmyndagerðar á Íslandi og má þar nefna Ósvald Knudsen, Óskar Gíslason, Ásgeir Long, Sigurð Guðmundsson ljós- myndara og fleiri. Þarna má finna ómetanlega gullmola sem hingað til hafa eingöngu verið til á filmu en efnið hefur nú verið stafvætt til að opna almenningi aðgengi að vefn- um. Elsta myndin, Slökkviliðsæf- ing, er frá árinu 1906 og er líklega elsta myndin sem hefur verið tekin upp hér á landi. Það var Þóra Hö- berg petersen, tengdadóttir Bíó- petersens gamla, sem fann frum- myndina í Kaupmannahöfn og var hún afhent Kvikmyndasafni Ís- lands árið 1982. Nýjasta myndefn- ið á vefnum eru myndir Hrafnhild- ar Gunnarsdóttur frá gosinu í Eyja- fjallajökli 2010. Vefurinn Ísland á filmu er sam- starfsverkefni Kvikmyndasafns Ís- lands og Kvikmyndamiðstöðvar Danmerkur; Dansk Filmistitut/Fil mcentralen, sem heldur úti vefn- um Danmark på film en þar er að finna myndefni er tengist sögu og menningu Danaveldis. „Kvik- myndasafn Íslands hefur unnið af einurð og metnaði í þessu verkefni undanfarna mánuði og standa von- ir til að opnun þessa glugga inn í Kvikmyndasafn Íslands muni gleðja þjóðina og stytta henni stundir á óvenjulegum tímum sem nú og til framtíðar,“ segir í tilkynningu. mm Hér má sjá hvar á landinu kvikmyndirnar voru teknar sem nú eru aðgengilegar. Safnkostur Kvikmyndasafns Íslands gerður aðgengilegur Myndbrot úr kvikmyndasafninu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.