Skessuhorn - 29.04.2020, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 29. ApRÍL 2020 5
Akraneskaupstaður auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu eldvarnareftirlitsfulltrúa.
ELDVARNAREFTIRLITSFULLTRÚI
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Umsjón með framkvæmd eldvarnareftirlits á
starfssvæðinu
• Úttektir og leyfisveitingar
Hæfniskröfur:
• Löggiltur slökkviliðsmaður með að lágmarki
1 árs starfsreynslu í slökkviliði
• Menntun skv. ákvæðum reglugerðar um
eldvarnir og eldvarnareftirlit nr. 723/2017
• Þekking og þjálfun í brunamálum og á sviði
brunavarna
• Þekking og reynsla af eldvarnareftirliti æskileg
• Góð almenn tölvukunnátta og ritfærni
• Skipulagshæfni, þjónustulund og félagsfærni
Laun og starfskjör eru samkvæmt
gildandi kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi
stéttarfélag.
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá
ásamt greinargerð þar sem fram koma
ástæður umsóknar og rökstuðningur
fyrir hæfni viðkomandi til starfsins.
Starfið hentar öllum kynjum.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Nánari upplýsingar um starfið veita Jens Heiðar
Ragnarsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs
Akraness og Hvalfjarðarsveitar,
jens.heidar.ragnarsson@akranes.is og Geirlaug
Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Matjurtagarðar 2020
Reitir í matjurtagörðum
Akraneskaupstaðar eru lausir til útleigu
fyrir sumarið 2020.
Eins og fyrri ár verður í boði að leigja 100 fermetra reiti sem
kosta kr. 4.000 og 50 fermetra reiti sem kosta kr. 2.000.
Garðarnir verða tilbúnir til notkunar 23. maí næstkomandi.
Athugið að matjurtagarðarnir eru eingöngu til úthlutunar
fyrir íbúa sem hafa lögheimili á Akranesi.
Ekki verður hægt að velja sér reiti heldur er þeim úthlutað í
númeraröð. Þetta fyrirkomulag verður viðhaft til að þétta og
bæta nýtingu garðanna.
Sótt er um í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar.
Nánari upplýsingar veitir Sindri Birgisson umhverfisstjóri.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Sem kunnugt er hefur sóttvarna-
læknir sent heilbrigðisráðherra
minnisblað þess efnis að 4. maí verði
slakað á samkomubanninu úr 20 í 50
manns. Þar var jafnframt lagt til að
frekari takmörkunum samkomub-
anns verði aflétt í skrefum á þriggja
til fjögurra vikna fresti næstu mán-
uði á eftir. Sóttvarnalæknir hefur
síðan gefið út að næsta skref yrði að
víkka samkomubannið í 100 manns,
hugsanlega fleiri. Ljóst er að þær
kvaðir munu gera landsmönnum
erfitt fyrir að fagna ýmsum hátíðum
sem fyrirhugaðar voru í sumar. Und-
anfarið hefur enda borið nokkuð á
fréttum þess efnis að bæjarhátíðir
víða um land hafi verið blásnar af,
en sums staðar stefna menn á hátíð-
arhöld með breyttu sniði. Rétt eins
og hjá öðrum landsmönnum hleyp-
ir samkomubannið óvissu í fyrirhug-
uð hátíðarhöld á Akranesi. Gildir þá
einu hvort um er að ræða sjómanna-
dagshátíð, 17. júní eða Írska daga,
sem er fjölmennasta bæjarhátíðin
sem haldin er á Vesturlandi ár hvert.
Engin hátíð formlega
blásin af
Ella María Gunnarsdóttir, forstöðu-
maður menningar- og safnamála hjá
Akraneskaupstað, segir að ekki hafi
verið tekin ákvörðun um hátíðar-
höld í bænum á komandi sumri.
„Okkur langar ótrúlega mikið að
gera eitthvað, því ef það er einhver
möguleiki á að gera sér glaðan dag
þá viljum við gera það,“ segir Ella
María í samtali við Skessuhorn. Hún
kveðst þó ekki vera sérlega bjartsýn á
að það verði hægt. Miðað við minn-
isblað sóttvarnalæknis til heilbrigðis-
ráðherra, dagsett 19. apríl, þar sem
m.a. kemur fram að frekari aflétting
samkomutakmarkana verði íhug-
uð þremur til fjórum vikum eftir 4.
maí og verði þá stefnt að 100 manna
fjöldatakmörkunum, telur hún að
erfitt gæti reynst að fagna sjómanna-
deginum og 17. júní. „Það hafa eng-
in hátíðarhöld verið formlega blás-
in af, en við höfum ekki enn fund-
ið út hvernig við eigum að láta há-
tíðardagskrá með 100 manna fjölda-
takmörkunum ganga upp. Ég sé ekki
hvernig við getum skipt hátíðar-
svæði upp og stýrt aðgangi að ein-
stökum viðburðum þannig að aldrei
verði meira en 100 manns á hverjum
stað og aldrei minna en tveir metr-
ar á milli manna,“ segir hún. „Ekki
nema okkur dreymi einhverja brillj-
ant lausn einhverja nóttina,“ bætir
hún við í léttum dúr.
Ákvörðun tekin á
næstu dögum
Enn fremur er ekkert vitað hvaða
skref verða tekin í tilslökunum á
samkomubanni í júní og aðdrag-
anda Írskra daga. Ella María segir
að ákvarðanir um samkomuhald á
Akranesi verði teknar á allra næstu
dögum. „Þar á ég einkum við sjó-
mannadaginn og 17. júní. Þau hátíð-
arhöld eru nálægt í tíma og styttist í
að taka þurfi ákvörðun um þau. En
ég er ekki bjartsýn á að af þeim verði,
miðað við 100 manna samkomu-
bann,“ segir hún. „Síðan verður bara
að koma í ljós í framhaldinu hvern-
ig fer með Írska daga. Það er aðeins
lengra í þá og mögulega hægt að taka
þá ákvörðun aðeins seinna,“ bæt-
ir hún við. „Okkur langar auðvitað
að geta gert okkur glaðan dag fyrstu
helgina í júlí eins og á sjómannadag-
inn og 17. júní. Kannski getum við
gert eitthvað öðruvísi, haldið færri
og minni viðburði ef þörf krefur en
það fer auðvitað allt saman eftir til-
mælum heilbrigðisyfirvalda. Á með-
an við vitum ekki hver þau verða
er erfitt að segja til um hvort Írskir
dagar verða haldnir eða með hvaða
sniði,“ segir Ella María Gunnars-
dóttir að endingu.
kgk
Ella María Gunnarsdóttir, forstöðumaður menningar- og safnamála hjá Akranes-
kaupstað. Ljósm. úr safni/ glh.
Óvissa um hátíðarhöld
á Akranesi í sumar
Fjölmenni á brekkusöngnum á Írskum dögum síðastliðið sumar.
Ljósm. úr safni/ Pétur Magnússon.