Skessuhorn


Skessuhorn - 29.04.2020, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 29.04.2020, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 29. ApRÍL 202026 Hvað langar þig að gera í sumar? Spurning vikunnar (Spurt í gegnum netið) Dagný Þóra Arnarsdóttir, 14 ára, Búðardal „Mig langar að eyða öllu sumr- inu á hestbaki og heimsækja ömmu og afa fyrir norðan.“ Emma Lísa Jónsdóttir, 4 ára, Saurbæ „Fara út að róla með mömmu.“ Hrafnhildur Kristín Trausta- dóttir, 4 ára, Borgarfirði „Hoppa, leika, hjóla og fljúga flugdreka.“ Lína Ósk Traustadóttir, 2 ára, Borgarfirði „Leika mér í feluleik og hoppa á trampolíni.“ Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur endurráðið Atla Aðalsteins- son sem þjálfara meistaraflokks karla. Atli byrjaði síðasta keppnis- tímabil sem aðstoðarþjálfari en tók við stjórn liðsins eftir að Manu- el Rodriguez var látinn taka pok- ann sinn. Samningur Atla gildir til þriggja ára. Þá hefur sömuleiðis verið geng- ið frá samningum við Hafþór Inga Gunnarsson og mun hann gegna starfi aðstoðarþjálfara meistara- flokks karla. Hafþór tók að sér aðstoðarþjálfun á undangengnu keppnistímabili auk þess að annast þjálfun yngri flokka Skallagríms. kgk Fyrir nokkrum vikum hófust á sam- félagsmiðlum áheitaleikir þar sem stuðningsmenn íþróttafélaga, sem mörg hver glíma við fjárhagserfið- leika um þessar mundir, hétu á fé- lög sín. Fyrir hvert „like“ eða deil- ingu til dæmis á Facebook heita menn 25 krónum. Leggja þvínæst upphæðina úr eigin vasa inn á söfn- unarreikning félagsins. Meðal þeirra stuðningsmanna sem farið hafa þessa leið eru fé- lagar í Knattspyrnufélagi ÍA. Nú hefur sannast að margt smátt ger- ir eitt stórt. Magnús Guðmunds- son formaður KFÍA upplýsti það í síðustu viku að frá því að leikur- inn hófst hafa safnast 1600 þúsund krónur fyrir félagið með þessum hætti. „Knattspyrnufélag ÍA þakk- ar frábært framtak stuðningsmanna sinna við að safna fé í skemmtileg- um áheitaleik á Facebook. Þetta mikilvæga framtak kemur sér svo sannarlega vel fyrir félagið á erfið- um tímum. Nú þegar hafa safnast 1.600.000 krónur og hafa stuðn- ingsmenn ÍA staðfest að margt smátt gerir eitt stórt. Sameinuð komumst við alla leið. Ykkar stuðn- ingur er ómetanlegur,“ segir Magn- ús Guðmundsson. mm Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við hina mögnuðu Keiru Robinson um að spila áfram með liðinu í Domino’s deildinni á næsta tímabili. Frá þessu var greint á Facebook síðu félagsins á sunnu- dag. Keira, sem er 25 ára gömul og frá Bandaríkjunum, átti frábært tímabil með Skallagrími í vetur. Hún lék aðalhlutverkið í vörn og sókn og leiddi liðið eftirminnilega til bikarmeistaratitils í fyrsta skipti í sögu félagsins. Eftir bikarúrslita- leikinn var hún valin besti leikmað- urinn. Þá var hún einnig besti leik- maður Domino´s deildarinnar á tímabilinu, með 24,1 stig að meðal- tali, tók 8,6 fráköst og átti 5,2 stoð- sendingar að meðaltali í leik. „Því er mikil ánægja með að Keira verði áfram í Borgarnesi enda góð fyrirmynd innan vallar sem utan. Hún mun einnig koma að yngri flokka þjálfun á næsta tímabili en það gerði hún líka í vetur með góð- um árangri,“ segir í tilkynningu frá félaginu. mm Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að hefja undirbúning á því að keppni í Íslandsmótinu í knatt- spyrnu geti hafist í júní. Er ákvörð- unin tekin með þeim fyrirvara að staðan í þjóðfélaginu verði orðin þannig að almannavarnir heimili leikjum að fara fram. Öll mót verða því tekin úr birtingu á vef KSÍ og birt að nýju þegar búið er að stilla upp nýrri niðurröðun leikja. Verð- ur hún birt eins fljótt og því verður við komið. Áætlað er að keppni í Mjólkurbik- ar karla og kvenna hefjist í kringum 5. júní. pepsi Max deild karla hefj- ist um 14. júní og pepsi Max deild kvenna um 16. júní. Reiknað er með að önnur mót meistaraflokka hefjist 18.-20. júní. Þá er gert ráð fyrir því að mót yngri flokka hefjist um 5. júní. Í öllum tilfellum er ljóst að lengja þarf mótin fram á haustið. Hversu lengi verður spilað ræðst af því hversu margir leikir verða óleikn- ir þegar mótin hefjast, miðað við það sem áður hafði verið áform- að. „Samt sem áður er ljóst að leika þarf þéttar. Ferðalög milli lands- hluta í miðri viku geta því aukist frá því sem áætlað var,“ segir í tilkynn- ingu á vef KSÍ. kgk/ Ljósm. úr safni/ gbh. Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við serbneska körfu- knattleiksmanninn Nebojska Knezevic um að leika með lið- inu næstu þrjú árin. Nebojsa, eða Nebo eins og hann er jafnan kall- aður, er 33 ára gamall framherji. Hann er körfuknattleiksaðdá- endum vel kunnur, en hann hef- ur undanfarin sex ár leikið með KFÍ og Vestra á Ísafirði við góðan orðstír. Hann var stigahæsti leik- maður Vestra á nýliðnu keppn- istímabili í 1. deildinni, þar sem hann skoraði 22,2 stig að meðal- tali í leik, tók 4,9 fráköst og gaf 6,3 stoðsendingar. Auk þess að leika með meist- araflokki mun Nebo annast þjálf- un yngri flokka Borgarnesliðs- ins, en hann hefur þjálfað yngri flokka Vestra undanfarin ár. „Mik- il ánægja er með komu Nebo í Skallagrím enda öflugur leikmað- ur hér á ferð sem kemur með mik- ilvæga reynslu inn í félagið,“ segir á Facebook-síðu kkd. Skallagríms. kgk Miðað við að boltinn byrji í júní Nebojska Knezevic í leik með Vestra. Ljósm. Vestri. Nebo í Skallagrím Höfðu safnað 1600 þúsund krónum í áheitaleikjum Keira Robinson spilar og þjálfar áfram með Skallagrími Atli áfram með Skallagrím Haffi Gunn verður aðstoðarþjálfari Atli Aðalsteinsson fer yfir málin með sínum mönnum í leikhléi. Ljósm. Skallagrímur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.