Skessuhorn - 29.04.2020, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 29. ApRÍL 2020 7
Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200
bokasafn.akranes.is • bokasafn@akranessofn.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Bókasafn Akraness opnar á
ný þann 4. maí 2020
Að því tilskyldu að ekki séu fleiri á safninu en 50 manns,
þ.m.t. starfsfólk safnsins og að tryggt sé að tveir metrar
séu milli fólks og vel hugað að hreinlæti og sótthreinsun.
Skiladagur bóka og annarra safngagna hefur verið •
færður til 14. maí og engar sektir reiknast á því
tímabili sem safnið hefur verið lokað
Við biðjum viðskiptavini að nota sjálfsafgreiðsluvél •
við skil á safngögnum
Öll safngögn verða hreinsuð áður en þau fara aftur •
í umferð
Bókasafnskort eru ókeypis fyrir Akurnesinga út •
árið 2020
Svöfusalur er opinn á ný •
Afgreiðslutími: mánudaga - föstudaga kl. 12-18.
Sjálfsafgreiðsla – engin þjónusta milli kl. 10-12.
Verið velkomin
Bæjarbókavörður
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Í Hvalfjarðarsveit hefur verið unn-
ið að skipulagi og hönnun á opnu
svæði í Melahverfi. Á fundi sveit-
arstjórnar 21. apríl síðastliðinn
var samþykkt að auglýsa tillögu að
opna svæðinu og kalla eftir ábend-
ingum og athugasemdum íbúa. Til-
lagan er hönnuð af Þóru M Júlí-
usdóttur. „Melahverfið er nokk-
uð miðsvæðis í Hvalfjarðarsveit og
grænt svæði þar getur þjónustað
allt sveitarfélagið sem samkomu-
staður fyrir ýmsa viðburði,“ segir í
tillögunni. Þar er lagt til að í austari
hluta Melahverfisins verði hann-
aður samkomustaður og leikvöllur.
Þá er gert ráð fyrir rólegra svæði
við safntjörn þar sem hægt verð-
ur að busla og leika sér á sumrin
og jafnvel skauta á veturna mynd-
ist þar svell. Á samkomusvæðinu er
gert ráð fyrir torgi með skjólbelti
til vesturs til að taka mestan vind
í vestanáttinni á sumrin. Þá verður
þar pallur með hátalarkerfi í vestari
enda samkomusvæðisins og í þeim
austari er gert ráð fyrir vegvísi sem
myndar sólúr. Einnig er ætlunin að
það verði grillhús við samkomu-
svæðið þar sem auðvelt er að fylgj-
ast með því sem fram fer á sviðinu.
Hóll sem mun skilja að sam-
komusvæðið og leiksvæðið getur
einnig verið notaður sem setusvæði
fyrir torgið og svo skemmtileg-
ur leikhóll fyrir þá sem eru á leik-
svæðinu. Á leiksvæðinu er gert ráð
fyrir leiktækjum sem verða varin
fyrir norðanáttinni með skjólbelti.
Tækin munu frekar vera fyrir eldri
börn svo þau yngri geti haft leik-
svæði leikskólans meira fyrir sig.
Við enda hólsins verður komið fyrir
bekki og klifurgrind. Svæðið verður
svo tengt norður með gönguleiðum
sem gefur færi á að frekari afþrey-
ingu, hundagerði, hlaupaleið inn í
sveitir og fleira. Íbúar eru hvattir til
að koma á framfæri öllum ábend-
ingum og athugasemdum sem þeir
kunna að hafa varðandi svæðið fyrir
13. maí með bréfi eða á netfangið
skipulag@hvalfjardarsveit.is.
arg/ Teikning: Þóra M Júlíusdóttir.
Tillaga að opnu svæði fyrir
íbúa í Hvalfjarðarsveit
•
•
•
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8