Skessuhorn - 29.04.2020, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 29. ApRÍL 20208
Fresta álagningu
vanrækslugjalds
LANDIÐ: Álagningu van-
rækslugjalds 1. apríl og 1. maí
vegna skoðunar ökutækja verð-
ur frestað til 1. júní vegna CO-
VID-19 faraldursins. Sam-
gönguráðherra hefur staðfest
þá ákvörðun. „Ákveðið var að
framlengja fyrri ákvörðun um
frestun álagningar vegna að-
stæðna í samfélaginu í tengslum
við útbreiðslu Covid-19 kórón-
aveirunnar. Samkomubann hef-
ur verið í gildi og ekki verð-
ur létt af fyrstu takmörkunum
fyrr en 4. maí. Þá hafa marg-
ar skoðunarstöðvar verið með
skerta afgreiðslu eða lokaðar
vegna ástandsins,“ segir í til-
kynningu. Álagningin 1. apríl
og 1. maí hefði tekið til eigenda
þeirra bifreiða sem hafa 1 og 2 í
endastaf og hefðu því átt að láta
skoða ökutæki sín í janúar og
febrúar. Álagningin tekur einn-
ig til þeirra sem fóru með öku-
tæki í skoðun sömu mánuði og
áttu að fara í endurskoðun skv.
ákvörðun skoðunarmanns ekki
síðar en í lok febrúar (1) eða
lok mars (2). Álagningu þess-
ara gjalda verður því frestað til
1. júní. -mm
Brotin rúða í
skólanum
SNÆFELLSBÆR: Þriðjudag-
inn 21. apríl hafði skólastjóri
Grunnskóla Snæfellsbæjar sam-
band við lögreglu og greindi frá
því að rúða á efri hæð skólans
hefði verið brotin. Ekki er vitað
hver þar var að verki. -kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
18.-24. apríl
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 25 bátar.
Heildarlöndun: 131.158 kg.
Mestur afli: Von ÍS: 23.609 kg
í þremur róðrum.
Arnarstapi: 4 bátar.
Heildarlöndun: 23.874 kg.
Mestur afli: Óli G GK: 10.507
kg í tveimur róðrum.
Grundarfjörður: bátar.
Heildarlöndun: 515.353 kg.
Mestur afli: Málmey SK:
176.238 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 25 bátar.
Heildarlöndun: 345.237 kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarnason
SH: 44.715 kg í þremur róðr-
um.
Rif: 18 bátar.
Heildarlöndun: 392.429 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
90.022 kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur: 13 bátar.
Heildarlöndun: 45.600 kg.
Mestur afli: Fjóla GK: 8.982
kg í sex róðrum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Málmey SK - GRU: 176.238
kg. 21. apríl.
2. Sigurborg SH - GRU:
89.264 kg. 20. apríl.
3. Farsæll SH - GRU: 84.742
kg. 19. apríl.
4. Runólfur SH - GRU: 68.386
kg. 20. apríl.
5. Hringur SH - GRU: 66.331
kg. 22. apríl.
-kgk
Stórgripir
á götunni
VESTURLAND: Nokkuð var
um tilkynningar um lausagöngu
búfjár í umdæmi Lögreglunn-
ar á Vesturlandi í liðinni viku.
Bæði var tilkynnt um laus hross
og naut á vegum. Til að mynda
voru lausir nautgripir á Vestur-
landsvegi á móts við Hrauns-
nef á sunnudaginn. Var haft
samband við bónda sem gekk
í málið. Sama dag hafði verið
tilkynnt um laus hross annars
staðar í landshlutanum. Dag-
inn eftir var síðan tilkynnt um
tvo nautgripi á Snæfellsnesvegi
skammt frá Dalsmynni. Haft
var samband við bændur vegna
þeirra. -kgk
Ók út af
BORGARBYGGÐ: Umferð-
aróhapp varð þegar ökumað-
ur ók út af Vesturlandsvegi við
Galtarholt á mánudaginn. Öku-
maðurinn missti bílinn talsvert
langt út af veginum en náði að
halda honum á hjólunum. Ekki
urðu sjáanlegar skemmdir á
bílnum, en þurfti að fá krana-
bíl til að ná honum upp á veg-
inn aftur. Engan sakaði. -kgk
Heimilisófriður
VESTURLAND: Að sögn
lögreglu hafa borist nokkr-
ar tilkynningar um heimilisó-
frið undanfarna viku. Þó tek-
ur lögregla skýrt fram að hér
er ekki um að ræða heimilis-
ofbeldi, heldur hávaða, fólk að
skella hurðum, rifrildi og ösk-
ur í heimahúsum. Hefur aðeins
borið á tilkynningum um slíkan
ófrið undanfarið. -kgk
Með augun á
skjánum
AKRANES: Lögregla hafði af-
skipti af ungum ökumanni sem
var að fletta í gegnum símann
á meðan hann ók bifreið sinni
eftir Garðagrund á Akranesi í
gær, þriðjudag. Slíkt athæfi er
hreint ekki til fyrirmyndar, að
sögn lögreglu, enda liggur 40
þús. króna sekt við því að nota
síma undir stýri. -kgk
Leggja til
frystingu launa
þingmanna
ALÞINGI: Þingflokkur pírata
hefur ásamt þingflokkum Sam-
fylkingarinnar, Flokks fólksins
og Andrési Inga Jónssyni, lagt
fram frumvarp um að fella nið-
ur launahækkun þingmanna og
ráðherra frá 1. janúar 2020 og
leiðrétta laun þeirra þannig að
öll afturvirk réttindi frá þeim
tíma falli niður. Með frumvarp-
inu er einnig lagt til að laun
þingmanna og ráðherra verði
fryst fram yfir næstu alþingis-
kosningar, eða til 31. desember
2021. Frumvarpið var sent á alla
þingmenn með beiðni um með-
flutning. „Flutningsmenn telja
að með samþykkt frumvarpsins
geti þingmenn sem þjóðkjörn-
ir fulltrúar almennings brugðist
við þeirri sjálfsögðu og eðlilegu
kröfu að ráðamenn þiggi ekki
launahækkanir á tímum CO-
VID-19 heimsfaraldurs,“ segir í
tilkynningu frá flutningsmönn-
um frumvarpsins.
-mm
Búið er að leggja reiðveg frá Öl-
valdsstöðum að Ferjubakka í Borg-
arfirði. Auk þess hefur Vegagerðin
unnið að lagningu reiðvegar milli
Hvítárvalla og Hvanneyrar sam-
hliða vegavinnu þar og er því kom-
inn reiðvegur langleiðina frá Borg-
arnesi og að Hvanneyri. „Það er
núna reiðvegur meðfram malbik-
inu en frá Ferjubakka að Hvítár-
völlum er ekki reiðvegur en þar er
malarvegur sem er alveg hægt að
ríða,“ segir Guðlaugur Antonsson,
formaður reiðveganefndar Hesta-
mannafélagsins Borgfirðings, í
samtali við Skessuhorn. Brynjar
Bergsson frá Refsstöðum sá um að
leggja þennan reiðveg fyrir hesta-
mannafélagið en að sögn Guðlaugs
er lagningu vegarins lokið en enn
er nokkuð í að hann verði fullkom-
inn. „Það þarf að þjappa hann betur
og svo að fara með grjótmulnings-
vél á hann þegar hann hefur jafn-
að sig. En þessi kafli kostaði eina
og hálfa milljón króna og pening-
urinn sem úthlutað var í veginn er
búinn. Við munum svo bara reyna
að finna aur til að klára það sem eft-
ir er,“ segir Guðlaugur og bætir við
að vissulega sé þessi kafli kærkom-
inn en að áfram sé þörf á reiðvegum
víðar í sveitarfélaginu.
arg
Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað
út vegna sinubruna í Lundarreykja-
dal klukkan 14 á mánudaginn. Eld-
ur logaði á afmörkuðu svæði í landi
Mávahlíðar, skammt frá gatna-
mótunum við Götuás. Slökkvistarf
gekk greiðlega og brann tæplega
hálfur hektari. Lán var að hægviðri
var í Borgarfirðinum, því ella hefði
sinueldurinn hæglega getað farið
yfir stórt svæði.
mm/ Ljósm. Pétur Davíðsson.
Vinnumálstofnun fær allt að 100
milljóna króna viðbótarfjármagn til
reksturs stofnunarinnar vegna auk-
inna verkefna í tengslum við CO-
VID-19. Fjárveitingin verður nýtt
til að ráða 35 einstaklinga til starfa,
tímabundið til sex mánaða, en mik-
il þörf er fyrir aukinn mannafla hjá
stofnuninni. Þá verður ýmis stoð-
þjónusta efld, svo sem tölvuþjón-
usta og upplýsingagjöf um ýmsa
tölfræði, auk þess sem mikilvægt
þykir að vinna spár um ástand og
horfur á vinnumarkaði til fram-
tíðar litið. Vinnumálastofnun mun
leggja upp með að ráða sem flesta
til þessara starfa úr hópi skráðra at-
vinnuleitenda hjá stofnuninni.
Vinnumálastofnun höfðu í síð-
ustu viku borist 33.800 umsóknir
um atvinnuleysisbætur samhliða
minnkuðu starfshlutfalli síðan opn-
að var fyrir umsóknir um úrræðið
25. mars síðastliðinn. Það sem af er
apríl höfðu stofnuninni jafnframt
borist um 2.200 umsóknir frá ein-
staklingum sem eru að fullu skráð-
ir án atvinnu sem er viðbót við
þá 14.200 einstaklinga sem þegar
voru að fullu skráðir án atvinnu í
lok mars. Miðað við núverendi for-
sendur munu því um 50.000 ein-
staklingar fá greiddar atvinnuleys-
isbætur að fullu eða að hluta á móti
skertu starfshlutfalli í lok apríl.
Ásmundur Einar Daðason, fé-
lags- og barnamálaráðherra, seg-
ir COVID-19 faraldurinn hafa
gríðarleg áhrif á vinnumarkað-
inn. „Heilu atvinnugreinarn-
ar eru lamaðar og ljóst er að sá
fjöldi fólks sem mun þurfa að nýta
sér þjónustu Vinnumálastofn-
unar er án fordæma. Þetta hefur
haft í för með sér gríðarlegt álag
á stofnunina og því nauðsynlegt
að styrkja frekar þjónustu henn-
ar. Í öllum okkar aðgerðum er það
fyrst og fremst skylda okkar að
tryggja stöðu heimilanna og fram-
færslu fjölskyldna í landinu og það
ætlum við að gera,” segir Ásmund-
ur Einar.
mm
Búið er að leggja reiðveg frá Ölvaldsstöðum að Ferjubakka í Borgarfirði.
Ljósm. Ingvar Þór Jóhannsson.
Kærkomnir reiðvegir verða
til í Borgarfirði
Sinueldur við Götuás
Atvinnuleysi eftir sveitarfélögum á Vesturlandi í mars 2020.
Heimild: Vinnumálastofnun.
Um fimmtíu þúsund manns fá
greiddar atvinnuleysisbætur