Skessuhorn - 29.04.2020, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 29. ApRÍL 202010
Stjórnvöld hafa ákveðið að veita
800 milljónum króna til framhalds-
og háskóla svo unnt sé að bjóða
námsmönnum upp á sumarnám á
komandi sumri. Sporna á gegn at-
vinnuleysi meðal ungs fólks og efla
menntun. Gert er ráð fyrir 500
milljónum króna í sumarnám á há-
skólastigi og 300 milljónum króna í
sumarnám á framhaldsskólastigi.
Á framhaldsskólastigi verður
boðið upp á stað-, dreif- og fjarnám
sem nýtist í áframhaldandi nám.
Um er að ræða annars vegar kynn-
ingaráfanga, svo sem nýsköpun,
tækni og listir, og hins vegar áfanga
sem eru hluti af námsbrautum skól-
anna. Jafnframt verður boðið upp
á stuttar starfsnámsleiðir. Til að
koma til móts við starfsnámsnem-
endur á námssamningum verða til-
raunaverkefni um starfsþjálfun fyrir
nemendur sem ekki komast að hjá
fyrirtækjum.
Á háskólastigi eru markhópar
sumarnámsins núverandi nemend-
ur, framtíðarnemendur, fagaðilar,
þátttakendur í sprotaverkefnum
háskóla og atvinnulausir. Jafnframt
verði boðið upp á verklega kennslu
og launaða starfsþjálfun fyrir nem-
endur sem ekki hefur verið mögu-
leg vegna takmarkana á skólastarfi í
samkomubanni.
„Óvenjulegar aðstæður kalla á
óhefðbundnar lausnir. Atvinnu-
framboð á komandi sumri verður
minna en við eigum að venjast og
það mun henta mörgum að nýta
sumartímann til náms. Með þessu
flýta námsmenn fyrir sínum náms-
lokum og koma því fyrr fullnuma
út í atvinnulífið, sem mun taka við
sér fyrr en síðar. Þörfin fyrir vel
menntað fólk verður áfram mikil,“
segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra.
mm
Síðdegis á þriðjudaginn í liðinni
viku kynntu formenn ríkisstjórn-
arflokkanna nýjan aðgerðapakka
stjórnvalda til að vinna gegn nei-
kvæðum áhrifum kórónaveirunn-
ar. Þetta er jafnfram annar aðgerða-
pakkinn sem stjórnin kynnir og þess
jafnframt getið að þeir verði fleiri,
enda er almennt talið að Íslending-
ar séu að sigla inn í stærri kreppu en
talið var fyrst eftir að veiran barst til
landsins. Þessar framhaldsaðgerð-
ir stjórnvalda eru taldar kosta ríkis-
sjóð um 60 milljarða króna.
Það helsta
Meðal þess sem kynnt var nú voru
lokunarstyrkir til fyrirtækja sem var
gert að hætta starfsemi vegna sótt-
varna. Stuðningslán verða veitt til
lítilla og meðalstórra fyrirtækja og
fyrirtækjum sem skilaði hagnaði
rekstrarárið 2019 er gert mögu-
legt að fresta greiðslu tekjuskatts og
hugsanlega fellur hann niður ef tap
verður á rekstri þessa árs. Þá voru
kynnt virkniúrræði á vinnumarkaði
og úrræði til að efla fólk í atvinnuleit.
Geðheilbrigðismál verða sett í for-
gangi, átak gegn ofbeldi og fjarheil-
brigðisþjónusta efld og margþættur
stuðningur við börn. Sérstakur frí-
stundastyrkur verður til tekjulágra
heimila. Boðaðar voru sérstakar
álagsgreiðslur til heilbrigðisstarfs-
fólks sem staðið hefur í framlín-
unni vegna Covid-19. Sumarúrræði
verða fyrir námsmenn og stuðlað
að sumarstörfum og sumarnámi og
frumkvöðlaverkefni verða styrkt.
Þá var boðuð efling matvælafram-
leiðslu með nýsköpun og markaðs-
setningu og frekari sókn til nýsköp-
unar, svo sem auknar fjárfestingar,
hærra hlutfall endurgreiðslu og þök
hækkuð vegna rannsókna og þró-
unar. Loks fá lítil fyrirtæki í rekstr-
arörðugleikum stuðning, brugðist
er við vanda námsmanna, félagsleg
úrræði efld og sjónum beint að ný-
sköpun til framtíðar.
Nýsköpun
Sérstök áhersla er lögð á uppbygg-
ingu með nýsköpun í aðgerðaáætl-
un stjórnvalda. Lögð eru til aukin
framlög til fjárfestingar í sprotafyr-
irtækjum og hækkun endurgreiðslu-
hlutfalls og fjárhæðarþaks til fyrir-
tækja vegna rannsókna og þróunar,
en áhrif þessara aðgerða nema tæp-
um 4,5 milljörðum króna. Stefnt
er að því að flýta endurgreiðslum
vegna rannsókna og þróunar fyr-
ir árið 2019. Auk þess verður sótt
fram í matvælaframleiðslu, meðal
annars með nýsköpun og markaðs-
setningu. Þá verða framlög til lista-
mannalauna aukin þannig að út-
hluta megi rúmlega 600 verkefna-
mánuðum til viðbótar á árinu 2020.
Lokunarstyrkir
Veittir verða lokunarstyrkir til fyrir-
tækja sem var gert að hætta starfsemi
vegna sóttvarna, allt að 2,4 m.kr.
Lítil og meðalstór fyrirtæki í rekstr-
arörðugleikum geta sótt um allt að
6 m.kr. óverðtryggð stuðningslán á
sömu vöxtum og sjö daga bundin
innlán lánastofnana hjá Seðlabanka
Íslands, sem nú eru 1,75%. Ljóst er
að stór hluti fyrirtækja sem starfa í
ferðaþjónustu mun geta nýtt leið-
ina þar sem hlutfall lítilla og með-
alstórra fyrirtækja er töluvert meira
í ferðaþjónustu en öðrum atvinnu-
greinum. Áætluð heildarútgjöld
vegna þessara tveggja aðgerða eru
talin geta numið rúmlega 30 millj-
örðum króna. Einnig verður fyr-
irtækjum heimilt að jafna vegna
tekjuskatts allt að 20 m.kr. af fyr-
irsjáanlegu tapi ársins 2020 á móti
hagnaði ársins 2019.
Margvíslegar félagslegar
aðgerðir
Félagsleg úrræði með stuðningi
við viðkvæma hópa, atvinnuleit-
endur og námsmenn vega þungt
í aðgerðapakkanum. Verður 2,2
milljörðum króna varið til að
skapa 3000 tímabundin störf í
sumar fyrir námsmenn 18 ára og
eldri og 300 m.kr. til að efla ný-
sköpun meðal ungra frumkvöðla
gegnum Nýsköpunarsjóð náms-
manna. Auk þess verður 800
m.kr. veitt til að bjóða sumarönn
í framhalds- og háskólum sem
nýtist bæði nemendum og fólki
á atvinnuleysis- eða hlutabótum.
Einnig verður ráðist í aðgerðir
til að hlúa að viðkvæmum hóp-
um, vinna gegn ofbeldi og félags-
legri einangrun aldraðra og ör-
yrkja, styðja við virkni atvinnu-
leitenda og tryggja tækifæri barna
úr tekjulágum fjölskyldum til að
taka þátt í frístundastarfi. Hug-
að verður sérstaklega að því að
auka aðgengi að geðheilbrigðis-
þjónustu og fjarheilbrigðisþjón-
usta verður efld. Alls verður um
8,5 ma.kr. varið til félagslegra að-
gerða í þessum áfanga.
Fjölmiðlar og
ferðaskrifstofur
Til að styðja við fjölræði og fjöl-
breytni á fjölmiðlamarkaði verður
einkareknum fjölmiðlum tryggð-
ur sérstakur rekstrarstuðningur
á yfirstandandi ári, en þeir hafa
tapað miklum tekjum á sama tíma
og eftirspurn eftir þjónustu þeirra
hefur aukist. Þá verður komið til
móts við lausafjárvanda ferða-
skrifstofa með lagabreytingu sem
heimilar þeim að endurgreiða
vissar ferðir með inneignarnót-
um.
Allir vinna!
Til þess að liðka fyrir markmiði
sveitarfélaga um flýtiframkvæmd-
ir er lagt til að þeim verði veitt-
ur tímabundinn réttur til endur-
greiðslu virðisaukaskatts vegna
vinnu á byggingarstað auk þess
sem Fasteignasjóður Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga fær heimild
til að veita styrki til sveitarfélaga.
Þá stendur yfir kortlagning á við-
kvæmum svæðum á landsvísu og
stafræn þjónusta sveitarfélaga
verður efld. mm
Átta hundruð milljónum varið til að efla sumarnám
Ríkisstjórnin kynnti annan
aðgerðapakka sinn vegna Covid-19
Rauði þráðurinn er: Varnir, vernd og viðspyrna gegn efnahagslegum og félagslegum áföllum