Skessuhorn - 29.04.2020, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 29. ApRÍL 2020 15
Þórdís Sif í sjósundi við Brákarey í Borgarnesi.
Aðspurð um hvort Borgarnes sé
svipað því sem æskuminningarnar
sögðu, svarar Þórdís Sif því til að
vissulega hafi hún velt því fyrir sér
þegar hún var í umsóknarferli að
starfi sveitarstjóra hvernig það hafi
þróast. „Sveitarfélagið er nú orðið
miklu stærra en það var þegar ég
var að alast upp. En það er jákvætt
að hingað er fólk að flytja. Ekki
bara að ég og fleiri sem hér ólumst
hér upp séum að snúa aftur, heldur
er margt fólk sem ekki á hér ræt-
ur að velja Borgarbyggð til búsetu.
Við þurfum bara að vera duglegri
að tala um það hvers vegna það er
gott að búa hérna, en sveitarfélagið
hefur marga ótvíræða kosti sem
staður til búsetu.“
Áskoranir samhliða
breyttum veruleika
Sveitarfélög hvarvetna um land-
ið hafa þurft að taka upp krísu-
stjórnun nú eftir að Covidfaraldur-
inn hóf innreið sína. „Sveitarfélög
víðsvegar um landið hafa þurft að
takast á við gjörbreyttar forsend-
ur í allri áætlanagerð og stefnu-
mótun. Sveitarfélögin fá aðstoð frá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga
og stjórnvöldum og allt er unnið
samkvæmt ákveðnu kerfi sem að-
lagað er að hverjum stað. Þannig
var ég búin að kynnast því hjá Ísa-
fjarðarbæ áður en ég söðlaði um
og ákvað að flytja mig yfir í Borg-
arbyggð. Hingað kem ég og verð
hluti af góðu teymi sem saman-
stóð bæði af sveitarstjórnarfólki og
starfsfólki Ráðhússins sem og öllu
því góða fólki sem starfar hér fyrir
sveitarfélagið. Hér í Borgarbyggð
er verið að glíma við nákvæmlega
sömu áskoranir og hvarvetna ann-
ars staðar á landinu, en lausnirnar
eru kannski ólíkar eftir eðli sveitar-
félaga, atvinnumynstrinu og slíku.
Á Ísafirði getur það haft mikil áhrif
á sveitarsjóð ef skemmtiferðaskipin
koma ekki í ár. Hér í Borgarbyggð
er sömuleiðis öflug ferðaþjónusta
sem vissulega verður fyrir áfalli
þegar erlendir ferðamenn hætta að
koma og fyrirtækin lenda í tekju-
falli. Hér hefur verið mikil upp-
bygging í ferðaþjónustu á síðustu
árum og því má gera ráð fyrir að
fyrirtæki séu mörg hver með þunga
bagga. Það er mikið atvinnuleysi í
augnablikinu í Borgarbyggð vegna
skorts á ferðamönnum og samko-
mubanni. Ég vona svo innilega að
við stöndum ekki uppi með skort
á vinnuafli þegar ferðaþjónustan
kemst aftur í gang þar sem margt
erlent fólk með góða reynslu hafi
farið til síns heima. En til að bregð-
ast við ástandinu erum við sem
sveitarfélag að láta kortleggja fyrir
okkur þau hagrænu áhrif sem aukið
atvinnuleysi hefur í för með sér. Til
dæmis skiptir Borgarbyggð mjög
miklu máli hvernig Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga getur brugðist við, en
sökum landstærðar og fjölda skóla
á Borgarbyggð mikið undir jöfn-
unarframlögum úr sjóðnum. Þann-
ig að framundan er mikil áskorun
í allri stefnumótun og ótvírætt þarf
að uppfæra allar tekju- og kostnað-
aráætlanir sveitarfélaga í ljósi for-
sendubrests,“ segir Þórdís Sif.
Lán að staða sveitar-
sjóðs er sterk
„Ég sé að hjá Borgarbyggð hefur
verið góður rekstur undanfarin ár
og markvisst verið unnið eftir áætl-
anagerð sem fylgt hefur verið eft-
ir. Nú er því búið að koma skulda-
hlutfalli sveitarfélagsins niður fyr-
ir fimmtíu prósent sem gerir stöðu
sveitarsjóðs sterka til að takast á við
breyttar forsendur. Það er kostur
nú þegar ljóst er að tekjur munu
dragast mikið saman og útgjöld á
sama tíma aukast. Við munum nú
einbeita okkur að viðhaldsverkefn-
um, fjölga sumarstörfum og fjöldi
tillagna að aðgerðum bíður sveitar-
stjórn að ákveða á næstu dögum og
vikum. En ég er mjög ánægð með
fyrstu kynni mín af fólki í sveitar-
stjórn og hér er fólk vel inni í öll-
um málum og tekur virkan þátt í
ákvarðanatöku,“ segir hún.
Stefna að samþættingu
ljósleiðara og rafmagns
Þórdís segir að sú reynsla sem feng-
ist hefur af fundafyrirkomulagi á
dögum kórónaveirunnar eigi eft-
ir að reynast vel þegar fram í sækir.
„Það er mikið búið að funda á net-
inu á síðustu vikum og það hefur
hjálpað að margir eru vel nettengd-
ir. Við erum því að læra af Covid
nýja starfshætti sem ég lít svo á að
muni skapi sóknarfæri til framtíðar
og byggja undir störf án staðsetn-
ingar. Hugsanlega mun þessi þró-
un því ýta undir að fólk flytji út á
land og nýti þá kosti sem dreifbýl-
ið hefur umfram þéttbýlið. Borgar-
byggð er eitt af síðustu sveitarfé-
lögum landsins til að ljúka ljósleið-
aravæðingu. Nú eru áætlanir uppi
um að því verki ljúki á næsta ári og
vonandi mun takast samhliða því að
ljósleiðari verði plægður niður, að
flýta þriggja fasa rafvæðingu sam-
hliða í sveitunum. Nú eru allavega
hafnar viðræður við ríkisvaldið og
Rarik um að samþætta þessi tvö
verkefni og spara með því bæði
tíma og fjármuni.“
Bæta verkferla
Þórdís Sif tekur undir að starf sveit-
arstjóra sé í eðli sínu fremur ótryggt
starf þar sem ekki er alltaf á vísan að
róa. Mörg dæmi á liðnum mánuð-
um hafa sýnt það. Hennar hlutverk
í upphafi segir hún vera að leiða
stefnumótun til framfara. „Sveit-
arfélög eiga alltaf að vera á tánum
með að laga þjónustu við íbúa, bæta
og breyta ef þarf. Það ferli er haf-
ið hér í Borgarbyggð og unnið er
við að móta ýmsa stefnu í þjónustu
við íbúa, lagfæra ferla sem bæta
má innan sveitarfélags og innleiða
stefnuna með árangursríkum hætti
meðal starfsfólks. Skilvirkni þjón-
ustu er nauðsynleg og ef einhverju
er ábótavant í þeim efnum, þarf að
bæta úr. Mér finnst allir jákvæðir
gagnvart þeirri vinnu, spila í sama
liði, og vilja fylgja nýjum stefnum
og straumum. Af því að fólk er til-
búið að taka leiðsögn og bæta verk-
ferla þar sem það hefur þurft, held
ég að það verkefni verði ekki erfitt.
Ég náttúrlega tek með mér ýmsa
dýrmæta reynslu vestan úr Ísa-
fjarðarbæ og tel mig hafa skilning á
hvernig samstarf þarf að vera til að
leiða af sér gott starf.“
Náttúrutengd hreyfing
og útivist
Þórdís Sif á tvö börn á grunnskóla-
aldri, 9 ára dreng og 12 ára stúlku.
Hún segir að það hafi komið vel út
fyrir börnin að geta á tímum Co-
vid samlagast jafnöldrum á nýjum
stað í skrefum í ljósi þess að þau
hafa einungis getað mætt í skólann
suma daga en aðra daga vikunnar
þurft að vinna heima. „Í skólanum
er passað vel upp á að börnin leysi
verkefni þó þau hafi þurft að vera
heima. Það byggir þau bara upp að
þurfa að starfa sjálfstætt og bætir
sjálfsmynd þeirra til að takast á við
verkefni síðar meir.
Við tókum á leigu íbúð í gamla
pósthúsinu hér við hlið ráðhúss-
ins í Borgarnesi. Nú erum við
búin að koma okkur fyrir og erum
öll spennt fyrir framhaldinu. Það
hentar mér vel að búa í bæ þar
sem hægt er að fara gangandi
milli staða og fjölbreytt útivist er
í boði. Ég er mikið fyrir útiveru
og almennt hreyfingu og reyni að
nýta allan minn frítíma til útivist-
ar og njóta náttúrunnar. Þannig er
ég núna komin í besta sveitarfélag
á landinu hvað það snertir. Ég er
mikið á fjallahjóli og er auk þess
strax farin að stunda sjósund með
fleira fólki hér í Brákarey. Þá er
nýbúið að stofna fjölmennan hóp
á Facebook þar sem konur hvetja
konur til þess að nýta náttúruna
til heilsueflingar. Ég reyni að hafa
börnin mín með í sem flest, þeim
líður alltaf betur eftir smá úti-
veru heldur en of langan tíma fyr-
ir framan skjáinn. Ég hlakka til að
starfa með íbúum í Borgarbyggð
og trúi því að við getum öll unnið
að því í sameiningu að gera Borg-
arbyggð að enn betri stað til að
búa á,“ segir Þórdís Sif Sigurðar-
dóttir að endingu.
mm/ Ljósm. úr einkasafni.
Glaðbeitt að lokinni Fossavatnsgöngu.
Þórdís er mikil útivistarmanneskja. Hér á fleygiferð á fjallahjólinu.