Skessuhorn - 29.04.2020, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 29. ApRÍL 202022
Gamanmyndahátíð Flateyr-
ar, í samstarfi við Reykjavík
Foto, stóð fyrir 48 stunda
gamamyndakeppni á dög-
unum, þar sem þátttakend-
ur fengu aðeins 48 klukku-
stundir til að fullvinna stutta
gamanmynd með þem-
anu Heppni/Óheppni. Alls
voru á þriðja tug stuttmynda
sendar inn í keppnina, þar
sem landsmenn gátu horft á
þær og kosið sína uppáhalds
gamanmynd. Það var mynd-
in Heppinn í ástum, eftir þá
Árna Þór Guðjónsson, Jón
Ólaf Hannesson og Killian G.E
Briansson Fitzgibbon, sem sigraði í
kosningunni og hlutu þeir að laun-
um glæsilega Canon myndavél frá
Reykjavík Foto.
Allir þátttakendur í 48 stunda
gamanmyndakeppninni fengu þar
að auku hátíðararmbönd á Gaman-
myndahátið Flateyrar, sem er án
efa fyndnasta kvikmyndahátíð Ís-
lands. Hátíðin í ár fer fram dagana
13.-16. ágúst. Á hátíðinni verða
sýndar bæði nýjar og gamlar innl-
endar og erlendar gamanmyndir í
bland við uppistand, leiksýningar,
tónleika og fleira.
Hægt er að sjá sigurmyndi-
na og allar hinar á Youtube með
því að nota leitarorðið Gaman-
myndakeppni. mm
Svavar Garðarsson stóð á sumar-
daginn fyrsta fyrir útihátíð við dval-
ar- og hjúkrunarheimilið Silfurtún í
Búðardal. Við húsið var sömuleið-
is komið fyrir blómum og gömlum
en litríkum tjöldum. Þau Halldór
Þórðarson, Jón Benediktsson og
Melkorka Benediktsdóttir spiluðu
síðan á stéttinni. „Útihátíð við Silf-
urtún tókst mjög vel og öllum sem
að henni komu til sóma. Þarna var
gleðin í fyrirrúmi,“ sagði Halldór
Jóhannsson.
mm/ Ljósm. sm & hj
Sumardagurinn
fyrsti í Grundarfirði
Félagar úr kirkjukór Ólafsvíkur
buðu heimilisfólki og starfsmönn-
um á Dvalar- og hjúkrunarheim-
ilinu Jaðri á tónleika síðastliðinn
sunnudag. Var þetta gert að fyrir-
mynd annarra sem hafa skemmt
fólki sem sæta hefur þurft nokkurs
konar sóttkví í samkomu- og heim-
sóknabanni. Farið var eftir reglum
sóttvarnalæknis og komu kórfélagar
sér fyrir á stéttinni fyrir utan matsal
heimilisins. Sigurður Höskuldsson
spilaði undir á gítar og fluttu kór-
félagar þekkt íslensk vor- og sumar-
lög. Gladdi söngurinn bæði heimil-
isfólk, sem ekki hefur getað fengið
heimsóknir vegna ástandsins, sem
og kórfélaga sem ekki hafa held-
ur getað komið saman til að æfa og
syngja eins og vaninn er.
þa/ Ljósm. Inga Jóhanna Kristins-
dóttir.
Meðlimir í kirkjukór Grundarfjarðarkirkju sungu fyrir heimilismenn á Dvalar-
heimilinu Fellaskjóli í tilefni af sumarkomunni. Söngurinn féll vel í kramið hjá
áheyrendum en algjört útgöngu- og gestabann hefur verið á heimilinu undan-
farnar vikur.
Skátafélagið Örninn stóð fyrir útiveru og happdrætti fyrir íbúa Grundarfjarðar
á sumardaginn fyrsta. Þá var búið að koma fyrir þremur baukum á miserfiðum
gönguleiðum þar sem þátttakendur gátu sett nafnið sitt í bauk og freistað
gæfunnar. Einn baukur var í skógræktinni á leið sem hentaði öllum aldurshópum,
annar baukur við Hnausavita við Kirkjufell sem er ágætis göngutúr og þriðji
baukurinn var svo við Klakkstjörn sem er töluvert krefjandi gönguferð. Mjög góð
þátttaka var í þessum skemmtilega leik og á meðfylgjandi mynd eru þau Ellen
Alexandra, Andri, Ísabella Ósk og Guðrún Ósk að koma sínu nafni fyrir í bauknum
í skógræktinni.
Sigurbjörn Hansson einn eigandi veitingastaðarins Kaffi 59 færði heimilis-
mönnum á Dvalarheimilinu Fellaskjóli ís og íssósur í kaffitímanum og féll það vel í
kramið. Kolbrún Rögnvaldsdóttir matráður veitti ísnum viðtöku.
Héldu útihátíð við Silfurtún á
sumardaginn fyrsta
Sungu vor- og sumarlög við Jaðar
Gamanmyndin Heppinn í
ástum bar sigur úr býtum
Sigurvegararnir taka hér á móti verðlaunum sínum
úr höndum Bjarka Reynissonar, eiganda Reykjavík
Foto.