Skessuhorn - 29.04.2020, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 29. ApRÍL 2020 27
„Upphaflega var stefnt að því að
opna fyrir almennri umferð kylf-
inga 5. maí næstkomandi. En í ljósi
þess hvað Garðavöllur kemur rosa-
lega vel undan vetri og hversu vel
hefur gengið að undirbúa völlinn
getum við vonandi flýtt opnun og
opnað hann sem fyrst, en næstu
dagar koma til með að varpa frekari
ljósi á það,“ segir Rakel Óskarsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Golfklúbbs-
ins Leynis, í samtali við Skessu-
horn síðdegis á mánudag. „Síðustu
dagar, eftir að fór að hlýna í veðri,
hafa gefið vellinum svakalega mik-
ið. Frostið er alveg farið úr honum
og hann er farinn að grænka mjög
vel. Sjálfboðaliðar hafa verið að
störfum á vellinum í þrjá daga og
við höfum sömuleiðis fengið vallar-
starfsmenn fyrr til starfa en venju-
lega. Búið er að valta flatirnar og slá
þær allar einu sinni. Núna erum við
að slá teigana og byrjuð að slá úti
á velli í kringum brautirnar,“ segir
hún. Jafnframt er verið að ljúka við
breytingar á 3. teig, sem farið var
af stað með síðasta haust. „Hann
verður tyrfður í dag og þetta lít-
ur allt saman mjög vel út. Nokkr-
um glompum hefur verið lokað og
svo erum við að byggja upp tvo nýja
teiga á 13. braut sem verða teknir í
notkun í sumar,“ segir Rakel.
Spenna og eftirvænting
Framkvæmdastjórinn segist merkja
mikla eftirvæntingu fyrir komandi
sumri meðal kylfinga enda marg-
ir sem komust ekki í fyrirhugaða
golfferð í vor. „Við finnum að það
er hugur í mönnum og mikil já-
kvæðni. Golfið er náttúrulega íþrótt
sem menn geta leikið úti í næði og
nægu plássi. Veiran og ástandið í
þjóðfélaginu hefur þar af leiðandi
ekki mikil áhrif á hana. Hún hefur
kannski áhrif á mótahald og stærri
viðburði en ég veit að almennir kylf-
ingar verði duglegir að spila í sumar,“
segir Rakel. „Nýliðum hefur fjölgað
mikið í klúbbnum fyrir sumarið. Ég
hef ekki tekið saman tölur yfir ný-
liðun í klúbbnum en hún er tölu-
verð. Stjórn klúbbsins tók um dag-
inn ákvörðun um að breyta svokall-
aðri fjaraðild, fyrir þá sem hafa lög-
heimili utan póstnúmeranna 300
og 301. Það er byrjað að kvissast út
og sala á þeirri félagsaðild fer vel af
stað þó við höfum ekkert auglýst
hana enn sem komið er,“ segir hún.
„Fyrsta stigamót GSÍ verður hald-
ið hér helgina 22.-24. maí og á það
mót koma allir bestu kylfingar lands-
ins. Við erum byrjuð að undirbúa
það og langar að gera mikið úr því.
Þannig að það er eftirvænting hjá öll-
um og mikil spenna,“ bætir hún við.
„Félagsaðstöðuna ætlum við að nýta
til hins ýtrasta. Nú er komið tæplega
ár síðan við fengum nýja húsið og við
sjáum að við erum orðin mjög sam-
keppnishæf við golfklúbba á höfuð-
borgarsvæðinu. Núna er Garðavöll-
ur orðinn raunverulegur valkostur
fyrir stærri mót og stærri hópa kylf-
inga,“ segir Rakel Óskarsdóttir að
endingu. kgk/ Ljósm. úr safni.
„Hamarsvöllur kemur þokka-
lega vel undan vetri. Reyndar
eru frostlyftingar í norðurhlutan-
um, en það er bara eðlilegt mið-
að við hvernig veturinn hefur ver-
ið. En annars lítur hann bara mjög
vel út,“ segir Jóhannes Ármanns-
son, framkvæmdastjóri Golf-
klúbbs Borgarness, í samtali við
Skessuhorn. Hann hefur staðið í
ströngu við vorverkin á Hamars-
velli undanfarna daga og vikur,
ásamt fleirum. Búið er að sanda
völlinn og bera áburð á hann, en
auk þess hlóð Jóhannes laglega
steinbrú yfir einn lækinn sem kylf-
ingar ganga yfir þegar leikið er á
Hamarsvelli. Allar sandglomp-
urnar hafa verið teknar í gegn,
göngustígarnir einnig og útbúnir
nýir teigar, eins og gengur og ger-
ist á golfvöllum að vori, enda far-
ið að styttast í opnun. „Af feng-
inni reynslu myndi ég halda að við
getum opnað völlinn fyrri partinn
í maí. En það fer svolítið eftir því
hvernig spilast með hitastig, veð-
ur og annað slíkt næstu tvær vikur
eða svo,“ segir Jóhannes.
Öðruvísi sumar
Framkvæmdastjórinn segir öðru-
vísi golfsumar framundan á Hamri
en undanfarin ár, vegna Covid-19
faraldursins. „Það stefnir auð-
vitað í litla sem enga umferð er-
lendra ferðamanna á hótelinu, sem
er klúbbhúsið okkar. Þannig að við
reiknum með að fylla hótelið af ís-
lenskum kylfingum í sumar. Við
erum meira að segja þegar byrjað-
ir að taka á móti bókunum og búnir
að bóka töluvert marga hópa kylf-
inga, stóra sem smáa,“ segir hann.
„Golfklúbburinn er að þessu leyti
ákveðin stoð undir rekstur hótels-
ins sem ég held að komi til með að
reynast því dýrmætt í sumar,“ bæt-
ir hann við. „Hvað varðar leikinn
sjálfan þá er hreyfingin um þess-
ar mundir að fara að gefa út reglur
sem verða viðhafðar við golfiðkun
fyrstu vikur sumarsins. Þær koma í
sjálfu sér ekki til með að hafa mik-
il áhrif á golfið sem slíkt. Áfram
geta fjórir leikið í hverju holli svo
lengi sem þeir virða tveggja metra
regluna. Þá verða klúbbar að finna
lausnir varðandi stangir á flötum,
svo kylfingar þurfi ekki að snerta
þær þegar þeir sækja boltann ofan í
holuna. Við munum leysa það með
litlu stykki sem er sett utan á stöng-
ina. Ofan í það getur kylfingurinn
stungið kylfu og dregið upp og þá
rúllar kúlan upp úr holunni, þann-
ig að maður þarf aldrei að snerta
stöngina. Svo verða auðvitað engar
hrífur í sandglompunum til að byrja
með, menn verða bara að slétta eft-
ir sig með fótum og kylfum,“ segir
Jóhannes.
Þurfa að aðlaga sig
Um klúbbhús gilda síðan auðvi-
tað sömu reglur og um hverja aðra
veitingastaði. Það er því spurning
hvernig verður með stærri viðburði
í tengslum við íþróttina í sumar,
svo sem mótahald og annað slíkt. „Í
sjálfu sér væri ekkert mál að halda
stórt mót, 200 manna mót, út frá
keppninni sjálfri. En það er annað
mál með veitingar á mótinu, verð-
launaafhendingar og annað slíkt þar
sem öllum er safnað saman,“ bætir
hann við. „En það ætti ekki að vera
neitt mál að æfa og spila, því plássið
er mikið á völlunum og ekki líkam-
leg snerting í golfi eins og mörgum
öðrum í þróttum. Þannig að kylf-
ingar ættu að geta spilað sitt golf í
sumar, við þurfum bara að aðlaga
okkur eins og aðrir,“ segir Jóhann-
es Ármannsson að endingu.
kgk/ Ljósm. úr safni/ glh.
„Veit að kylfingar verða duglegir að spila í sumar“
Garðavöllur á Akranesi kemur mjög vel undan vetri
Rakel Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis. Leikið á Garðavelli.
Vonast til að opna Hamarsvöll snemma í maí
Jóhannes Ármannsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness.
Ein af brautum Hamarsvallar. Hafnarfjall í baksýn.
Hleðsla nýrrar steinbrúar var eitt af fjölmörgum vorverkum á Hamarsvelli.
Ljósm. Golfklúbbur Borgarness.