Skessuhorn - 24.06.2020, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 2020 13
Kjörfundur í Hvalfjarðarsveit vegna forsetakosninga
laugardaginn 27. júní 2020 verður frá
kl. 9:00 til kl. 21:00.
Kjörstaður er í stjórnsýsluhúsinu við Innrimel í
Melahverfi. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer
fram hjá sýslumanni fram að kjördegi.
Kjósendum ber að hafa persónuskilríki meðferðis.
Kjörstjórn í Hvalfjarðarsveit
Jóna Björg Kristinsdóttir
Helga Stefanía Magnúsdóttir
Guðmundur Ólafsson
Kjörfundur í
Hvalfjarðarsveit
www.hvalfjardarsveit.is
FRÁ YFIRKJÖRSTJÓRN
NORÐVESTURKJÖRDÆMIS
Kosningar til embættis forseta
Íslands fara fram laugardaginn
27. júní 2020.
Á kjördag verður yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis
með aðsetur á Hótel Borgarnesi, Egilsgötu 16, Borgarnesi,
netfang ingi@lit.is og s. 860 2181
Að loknum kjörfundi kl. 22:00 fer talning atkvæða fram á
sama stað en flokkun atkvæða og undirbúningur talningar
mun byrja um kl. 20:00.
f.h yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis
Ingi Tryggvason formaður
Félagar úr Slysavarnafélaginu
Landsbjörg voru á ferðinni á 50
fjölförnum stöðum um land allt á
föstudaginn, Safe Travel deginum,
og tóku tali ökumenn og aðstoðar-
menn þeirra og ræddu um hlutverk
aðstoðarbílstjórans. Ræddu þeir
um hlutverk aðstoðarbílstjórans,
ábyrga ferðahegðun og dreifðu til
þeirra fræðsluefni. Sérstök áhersla
í ár var á hlutverk farþega í fram-
sæti bifreiða.
Hálendisvakt Landsbjargar verð-
ur í fimmtánda skipti í sumar og
stendur fram í ágúst. Markmiðið
með verkefninu er að sinna forvörn-
um með því að leiðbeina og aðstoða
ferðamenn ásamt því að stytta við-
bragð björgunarsveita komi til út-
kalla á hálendinu. Á hverju sumri
taka um 200 manns þátt í verk-
efninu og sinna rúmlega 2.000 út-
köllum, margir sjálfboðaliðar nýta
þannig hluta af sumarfríinu sínu og
standa vaktina í góðum félagsskap í
viku í senn. Hálendisvaktin verður
staðsett á þremur stöðum: Land-
mannalaugum, nýjadal á Sprengi-
sandi og Drekagili norðan Vatna-
jökuls. mm/Ljósm. úr safni.
Hólmarinn Einar Bergmann
Daðason útskrifaðist með full
skipstjórnarréttindi frá Skipstjórn-
arskólanum föstudaginn 29. maí
síðastliðinn. Einar er nýorðinn 18
ára gamall og er yngsti útskriftar-
nemi Skipstjórnarskólans frá upp-
hafi. Hann var færður upp um
bekk á grunnskólaaldri, fór upp úr
7. og í 8. bekk og var því yngri en
bekkjarfélagarnir síðustu þrjú ár
grunnskólans. Hann var því 15 ára
gamall þegar hann hóf nám í Skip-
stjórnarskólanum haustið 2017,
þaðan sem hann útskrifaðist með
full réttindi nú í lok maí. Það er þó
ekki svo að hann megi taka í stýrið
á hvaða skipi sem er enn sem kom-
ið er. „Ég er kominn með réttindi
sem undirstýrimaður á ótakmark-
aðri stærð skipa. Þá má ég vera
undirstýrimaður á öllum skipum,
en ég þarf að byrja að safna sjótím-
um. Ég þarf að vinna í tólf mán-
uði sem undirstýrimaður og síðan
í tólf til viðbótar sem yfirstýrimað-
ur. Að því loknu má ég verða skip-
stjóri á öllum gerðum skipa,“ út-
skýrir Einar í samtali við Skessu-
horn.
Snemma beygist krókur
Aðspurður segist hann líklega allt-
af hafa stefnt á skipstjórnarnám og
starf til sjós. „Ég bý við þau for-
réttindi að amma og afi eiga hlut
í eyjafélagi í Breiðafirði og hlut í
húsi í Flatey. Á sumrin var ég mik-
ið með þeim í kringum allt sem
því tengist og mikið úti á sjó. Ætli
ég hafi ekki verið í leikskóla þeg-
ar ég ákvað að verða skipstjóri. Ég
allavega man ekki hvenær áhuginn
kviknaði og mamma man það ekki
heldur,“ segir Einar. „Svo skemm-
ir ekki fyrir að stjúpi minn er skip-
stjóri og fjölskyldan hefur stutt vel
við bakið á mér í þessu alla tíð,“
segir hann. „Síðan byrjaði ég á 14.
ári í bláskelinni heima í Hólmi. Þá
var þetta endanlega ákveðið. Það
árið var ég bæði þar og í afleysing-
um á ferjunni Baldri,“ bætir hann
við. Starfið í bláskelinni var bæði
við veiðar og vinnslu skeljarinnar.
Á Baldri hóf Einar störf í el-
dhúsinu og fór svo fljótlega eft-
ir það að leysa af sem háseti bæði
í Breiðarfjarðarferjunni og ein-
nig á útsýnisbátnum Særúnu. „Svo
smám saman vatt þetta upp á sig.
Fjölskyldan flutti til Vestmannaey-
ja þegar stjúpi hætti hjá Sæferðum
og tók við sem skipstjóri á Her-
jólfi. Ég fylgdi honum þangað um
borð, ásamt því að hafa tekið nok-
kra túra á togurum og núna síðast
á varðskipinu Tý. Mér bauðst að
fara á hann sem háseti í afleysing-
um og að öllu óbreyttu fer ég aftur
á Tý núna í lok júlí,“ segir Einar.
Stefnan sett á sjóinn
Spurður hvert hann stefni þeg-
ar hann er búinn að safna sjótím-
unum er svarið einfalt: „út á sjó,“
Hefur stefnt á skipstjórn frá leikskólaaldri
Einar Bergmann Daðason. Ljósm. sá.
segir Einar léttur í bragði. „En það
er nú ekki beint ákveðið. Ég hef
fengið þessa spurningu oft upp á
síðkastið og svara því alltaf þannig
að tíminn verði að fá að leiða það
í ljós. Það heillar að fara erlendis,
annað hvort á skemmtiferðaskipin
eða í olíuborpallaiðnaðinn í nor-
egi, að vera á skipum sem þjónusta
þá,“ bætir hann við. En hvað er það
sem heillar hann við þessar grein-
ar? „Það er allt svo mikilfenglegt
í skemmtiferðaskipaiðnaðinum.
Risastór skip sem litlir menn geta
stjórnað. Það heillar mig. Eins
held ég að það sé fjölbreytt starf
að þjónusta olíuborpallana í nor-
egi og skipin þar eru öll búin full-
komnustu tækni og kerfum sem til
eru,“ segir hann.
Í sumar kemur hann til með að
starfa á Herjólfi og við afleysingar
á Tý. Hvað tekur við að því loknu
þarf að fá að koma í ljós, eins og
Einar sagði áðan. „Ég var í fyrsta
skipti stýrimaður á Herjólfi um
síðustu helgi, þegar ég var 2. stýri-
maður. Ég verð örugglega svolítið
mikið á Herjólfi í sumar og hug-
sanlega í vetur líka. Annars er það
allt saman opið, mig langar að pró-
fa sem flest og sigla sem víðast,“
segir Einar Bergmann Daðason að
endingu. kgk
Hálendisvaktin hafin
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Forsetakosningar
Kjörfundur vegna forsetakosninga í Dalabyggð
verður í fundarsal stjórnsýsluhússins á 2. hæð
(lyfta er komin í gagnið í húsinu) að Miðbraut 11
í Búðardal og stendur frá kl. 10:00 til kl. 22:00.
Kjósendum ber að framvísa persónuskilríkum á
kjörstað.
Kjörskrá fyrir Dalabyggð mun liggja frammi á skrifstofu Dalabyggðar,
virka daga frá kl.9:00-13:00
Sýnum tillitsemi og virðum sóttvarnir að fullu á kjörstað.