Skessuhorn - 24.06.2020, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 2020 15
Útför hefur farið fram
samkvæmt ósk hinnar
látnu.
Fyrir hönd aðstandenda
Guðrún Soffía, Jón, börn,
tengdabörn og barnabörn
Elskuleg frænka okkar
Katrín Magnúsdóttir
Munaðarnesi er látin
SUMARSTARF
Óskum að ráða starfsmann í sumar
við þrif á veiðihúsinu við Laxá í Leirársveit
(við Lambhaga).
Um er að ræða 4 tíma starf
annan hvern dag.
Uppl. í 822-4850.
Myndlistarkonan Tinna Rós Þor-
steinsdóttir, sem gengur und-
ir listamannsnafninu Tinna Royal,
er Bæjarlistamaður Akraness árið
2020. Það var Sævar Freyr Þráins-
son bæjarstjóri sem greindi frá val-
inu í sérstöku hátíðarstreymi sem
sent var út á vegum Akraneskaup-
staðar á þjóðhátíðardaginn, þar sem
fallið hafði ferið frá hefðbundinni
hátíðardagskrá vegna Covid-19.
Lýsti hann því að bæjarlistamað-
urinn væri ung, framsækin, skap-
andi og listræn kona sem hefði vak-
ið athygli fyrir mjög frumleg verk
þar sem ákveðin leikgleði skini oft í
gegn. Því næst greindi hann frá því
að Tinna yrði sæmd þessari heið-
ursnafnbót í þetta skiptið.
Stolt af nafnbótinni
Í samtali við Skessuhorn segist
Tinna Rós vera stolt af því að hljóta
þessa heiðursnafnbót. „Mér finnst
æðislegt að fá þennan gæðastimpil
á verk mín. Ég er því mjög þakklát
þeim sem settu nafn mitt í hattinn
og hjálpaði menningar- og safna-
nefnd að komast að þessari niður-
stöðu,“ segir hún. Bæjarlistamaður
hlýtur peningastyrk og lofar jafn-
framt að halda sýningu á starfs-
árinu. „Ég mun örugglega sýna á
Vökudögum í haust, en aðal púðrið
verður þó sett í sýningu sem ég von-
ast til að fá að setja upp á Byggða-
safninu í Görðum næsta sumar, lík-
lega rétt fyrir 17. júní þegar næsti
bæjarlistamaður verður valinn.“
Fann ástina
í garðinum heima
Aðspurð segist Tinna Rós vera
fædd á Akranesi. Foreldrar hennar
kynntust og höfðu sest þar að fyr-
ir fæðingu hennar, móðir hennar
kom úr Dölunum og faðir henn-
ar af Suðurlandinu. Eiginmann
sinn segist Tinna svo hafa fundið í
garðinum heima hjá sér. „Maður-
inn minn heitir Ívar Árnason. Við
kynntumst þegar skólabróðir mín
kynnti mig fyrir honum þegar ég
var 14 ára. Æskuást kviknaði. Við
eigum tvö börn sem eru á fullu að
vaxa úr grasi. Átján ára strák og 13
ára stelpu.“ Tinna segir að lista-
maðurinn hafi blundað í henni alla
tíð. „Ef ég hefði verið spurð þeg-
ar ég var lítil stelpa hvað ég ætlaði
að verða þegar ég yrði stór, hefði
ég viljað segja listamaður, en hefði
örugglega samt sagt búðarkona.
Það þótti ekki sérlega praktískt eða
vænlegt til tekna að vera listamað-
ur og því var ekki beint gælt við
það framan af. Engu að síður ákvað
ég að skrá mig í fornám í Mynd-
listarskólann á Akureyri þar sem
við bjuggum veturinn 2012-2013.
Hélt svo áfram á fagurlistabraut í
þeim skóla veturinn 2014-15. Mig
dreymir um að fara aftur norður og
ljúka því námi,“ segir hún.
Raunsæismálari
Tinna Rós segir að foreldrar henn-
ar og Bjarni Þór Bjarnason lista-
maður og fyrrum myndlistarkenn-
ari hafi verið hennar helsta hvatn-
ing til listsköpunar. Sumarið 2016
hélt hún myndlistarsýningu á Bóka-
safni Akraness og hefur starfað þar
við íhlaupavinnu síðan. Þá hefur
hún haldið sýningar á Vökudögum
og m.a. sýnt í Galleríi Bjarna Þórs.
Aðspurð segir hún að listin sé henni
ástríða, fremur en áhugamál. „Ég
hef hins vegar forðast að gera mér
nokkrar grillur um að geta lifað af
listinni einni saman. Finnst eins og
það gæti hamlað sköpunargleðinni.
Fram undir þetta hef ég auk þess
þvertekið fyrir að mála eftir pönt-
unum, en er nú í tvígang á stuttum
tíma búin að vinna verk sem fólk
hefur pantað hjá mér. Í öðru til-
fellinu valdi kaupandinn allt sem
átti að vera á myndinni og það var
því í sjálfu sér ekkert mál. Í hinu til-
fellinu málaði ég dáldið óvenjulega
fjölskyldumynd. Myndin var ekki
af fólkinu sjálfu, heldur einum skó
af hverjum fjölskyldumeðlim. Sú
mynd tókst held ég bara nokkuð vel
og jók sjálfstraust mitt töluvert.“
Tinna segist skilgreina sig sem
nákvæmnismálara. „Raunsæismál-
un er eitthvað sem ég finn mig í.
Ég lærði að nota olíuliti þegar ég
var í skólanum, en hafði áður mál-
að með acryl. Ég hreinlega elska
að mála með olíulitum. Mitt aðal
vandamál er hins vegar að ég er
vandræðalegur verðleggjari. Hef
verið dáldið óörugg með hvernig
ég á að verðleggja það sem ég geri.
Það er hins vegar að lagast og nú er
ég sömuleiðis að hugsa um að end-
urskoða þessa ákvörðun mína og
byrja að taka pantanir ef fólk óskar
eftir því.“
Búðingsnafn
En hvernig kom til þetta lista-
mannsnafn, Tinna Royal? Það var
alltaf draumur hjá mér að finna
hentugt listamannsnafn. Annað
gengur jú ekki. Hins vegar var það
blaðamaður á DV sem byrjaði með
þetta og þá var ekki aftur snúið.
Hann tók við mig viðtal árið 2015
þegar ég var að steypa og mála
kleinuhringi og skrifaði eitthvað á
þá leið að ég gengi alltaf undir nafn-
inu Tinna Royal. Það var hins veg-
ar bull, en sem betur fer var ég sátt
við þessa óvæntu nafngift. nafnið
er því dregið af Royal búðingnum,
ekki það að ég væri eitthvað kon-
ungborin eða svoleiðis. Tinna Ro-
yal hentar mér bara vel,“ segir hún
að endingu. kgk/mm
Tinna Royal er Bæjarlistamaður Akraness
Hér má sjá efsta hluta nýrrar fjölskyldumyndar sem Tinna Royal er að mála.
Myndin er ekki af fólki, heldur skóm úr þeirra eiga. Hér eru foreldrarnir á
heimilinu.
Tinna Rós Þorsteinsdóttir, Tinna Royal.
Frá opnun sýningar Tinnu á Vökudögum í fyrra.