Skessuhorn - 24.06.2020, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 202018
Varðskipið Óðinn lagðist að bryggju á Akranesi laust eft-
ir hádegið á föstudag. Um borð voru félagar í Hollvina-
samtökum Óðins, sem hafa lagt kraft í varðveislu skips-
ins, viðhald þess og umhirðu. Skipið er hluti af Sjóm-
injasafninu í Reykjavík, en varðveitt í því ásigkomulagi
sem það kom til safnsins og er að líkindum stærsti ein-
staki safngripur hér á landi. Í nokkur ár hafa gamlir fyr-
verandi vélstjórar unnið við að koma vélum skipsins í
siglingarhæft ástand og var þessi sigling á Akranes lið-
ur í því að láta á þær reyna og jafnframt að bjóða vel-
unnurum og hollvinum að njóta siglingar með skipinu.
Þetta var fyrsta sigling skipsins í 14 ár ef undan er talið
reynsluferð út á sundin þegar vélar skipsins voru gang-
settar í fyrsta skipti. Skipherra í ferðinni á Akranes var
Vilbergur Magni Óskarsson fagstjóri í skipstjórnargrein-
um í Tækniskólanum en hann er gamalreyndur á skipinu
sem fyrrum skipherra og stýrimaður.
Varðskipið Óðinn var smíðað í Álaborg í Danmörku
árið 1959. Það er 910 að þyngd, 63 metrar að lengd og
tíu metra breitt. Það er sérstaklega styrkt fyrir siglingar
í ís og tvær aðalvélar þess skila því 18 mílna ganghraða.
Siglinga- og fjarskiptatæki voru ætíð af bestu gerð.
Óðinn tók þátt í öllum þremur þorskastríðunum á 20.
öld. Öflugasta vopn skipsins var 57 mm fallbyssan á pall-
inum framan við brúna. Þekktasta og árangursríkasta
vopnið í þorskastríðunum voru þó togvíraklippurnar svo-
kölluðu. Óðinn reyndist sérlega vel sem björgunarskip í
sinni tíð, dró tæplega 200 skip til lands eða í var vegna
bilana, veiðarfæra í skrúfu eða eldsvoða um borð. Þá dró
hann flutninga- og fiskiskip 14 sinnum úr strandi.
Við komuna til Akraness á föstudag færði Sævar Freyr
Þráinsson bæjarstjóri hollvinasamtökunum og skipstjóra
Óðins blómvönd og gjafir. Guðmundur Hallvarðsson,
formaður Hollvinasamtaka Óðins, færði þeim Sævari og
Gísla Gíslasyni, hafnarstjóra Faxaflóahafna, skjöld merkt-
an varðskipinu að gjöf. Að svo búnu var gestum boðið að
stíga um borð og skoða skipið. Fjölmargir þáðu það og gaf
að líta ríflega 60 ára gamalt skip sem er í mjög góðu ásig-
komulagi. Hollvinum Óðins var svo boðið í mat í Jónsbúð
og í skoðunarferð niður á Breið að vitunum áður en siglt
var suður að nýju um miðjan daginn.
kgk/ Ljósm. kgk/gó/gsv
Varðskipið Óðinn lagðist að bryggju á Akranesi
Óðinn á siglingu skammt fyrir utan Akranes í fylgd lóðsbátsins Haka og björgunarbáts BA, Margréti Guðbrandsdóttur.
Ljósm. gsv
Skipinu bakkað að bryggjunni. Ljósm. kgk
Bæjarstjórinn bauð skipstjóra og Hollvinasamtök Óðins velkomin á Akranes og
skipst var á gjöfum. Ljósm. kgk
Beðið á meðan verið var að binda skipið við bryggju. Ljósm. kg.
Um 80 manns voru um borð í Óðni á siglingunni frá Reykjavík til Akraness.
Ljósm. kgk
Sjómenn horfa alltaf til hafs. Ljósm. kgk Fallbyssan góða með 57 mm hlaupvídd. Ljósm. kgk
Strákunum á Óðni fellur aldrei verk úr hendi. Ljósm. kgk Karlarnir í brúnni. Ljósm. gsv
Siglt af stað áleiðis til Reykjavíkur. Ljósm. gsv
Togvíraklippurnar frægu sem beitt var í þorskastríðinu við
Breta. Ljósm. g.