Skessuhorn - 24.06.2020, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 2020 19
Íslandsmót barna og unglinga í hesta-
íþróttum fór fram á Brávöllum á Sel-
fossi um helgina. Tvær stúlkur úr
hestamannafélaginu Borgfirðingi
komu heim með gullverðlaun. Það
voru þær Kolbrún Katla Halldórs-
dóttir sem stóð uppi sem sigurvegari í
A úrslitum í fjórgangi unglinga og því
Íslandsmeistari í þeirri grein. Í barna-
flokki varð Íslandsmeistari Kristín Eir
Hauksdóttir Holaker á Ísar frá Skán-
ey. Höfðu Kristín Eir og Ísar mikla
yfirburði á næstu keppendur.
Um helgina lauk einnig Meistara-
deildinni í hestaíþróttum eftir frekar
óvenjulegan vetur vegna Covid. Jak-
ob Svavar Sigurðsson úr hmf. Dreyra
var með nokkuð örugga forystu fyr-
ir lokakvöld mótsins og náði hann
að halda henni og er því Meistarinn
2020. Jakob hlaut 48,5 stig. Þetta er
annað árið í röð sem hann sigrar í
deildinni. Í öðru sæti varð Viðar Ing-
ólfsson með 35 stig og í því þriðja var
Konráð Valur Sveinsson með 28 stig.
mm/ Ljósm. aðsendar
Ofan við bílastæðin þar sem lagt er
við Deildartunguhver í Reykholts-
dal eru tveir veitingastaðir. Annars
vegar Krauma en hins vegar einn
minnsti veitingastaður landshlut-
ans og nefnist sá Staldrið. Um er að
ræða matarvagn þar sem í boði eru
fjórir réttir auk drykkjarfanga. Þá er
auk þess selt nýtt grænmeti á pall-
inum en það er allt ræktað í gróð-
urhúsunum í Víðigerði. Bragi Geir
Gunnarsson keypti garðyrkjustöð-
ina Víðigerði fyrir tveimur árum.
Hann var áður vert í Hvernum á
Kleppjárnsreykjum en ákvað eftir
að hann keypti garðyrkjustöðina að
setja upp lítinn veitingastað í skjóli
við gróðurhúsin. Þegar blaðamaður
staldraði við í Staldrinu um helgina
var fjöldi fólks á svæðinu og mik-
ið að gera í matarvagninum. Flestir
voru þó gestirnir í náttúrulaugun-
um í Krauma og nutu þess að sóla
sig í pottunum.
Bragi Geir segir að langflest-
ir ferðamenn nú séu Íslendingar
en þó er hann farinn að taka eft-
ir að erlendum ferðamönnum er
að fjölga, en opnað var fyrir komu
þeirra til landsins á mánudaginn í
síðustu viku.
mm
Á sumrin nýta menn gjarnan tím-
ann til að fegra sitt nánasta um-
hverfi hvort sem það er með palla-
smíði eða tiltekt í garðinum. Þess-
ir íbúar á Fagurhólstúni í Grund-
arfirði eru þar ekki undanskilin en
þarna má sjá risavaxið tré sveima
yfir húsunum eins og ekkert væri
sjálfsagðara. Ekki veit fréttaritari
Skessuhorns hvað varð um þetta
tré en fannst sjónin sem við honum
blasti nokkuð óvenjuleg. tfk
Hægt er að tylla sér niður inni í gróðurhúsinu.
Staldrið við
Deildartunguhver
Bragi selur grænmeti sem hann ræktar sjálfur í gróðurhúsunum. Meðal annars
tómata, gulrætur og maís.
Á pallinum við matarvagninn Staldrið.
Svífandi tré
Jakob S Sigurðsson er Meistarinn
2020.
Kolbrún Katla og Kristín Eir
Íslandsmeistarar
Kolbrún
Katla Hall-
dórsdóttir.
Kristín Eir Hauksdóttir Holaker.
Stykkishólmur
4. júlí 2020
SKOTTHÚFAN
Í FÓTSPOR FJALLKONU
Gamla Stykkishólmskirkja kl. 10:30
KOMIN MEÐ BÚNING, HVAÐ SVO?
Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir
Eldfjallasafnið kl. 13:00
HELGIGRIPUR EÐA VEISLUKLÆÐI?
Anna Karen Unnsteinsdóttir
Eldfjallasafnið kl. 13:30
DANSINN OG BÚNINGARNIR
Atli Freyr Hjaltason
Eldfjallasafnið kl. 14:00
BÚNINGASKART
Júlía Þrastardóttir gullsmíðameistari
Norska húsið kl. 11:00 - 17: 00
MYNDATAKA
Myndataka við Norska húsið kl. 15:00
KAFFIBOÐ Í BETRI STOFUNNI
Gestum í þjóðbúningum er boðið upp á kaffi og rjóma-
pönnukökur að hætti kvenfélagskvenna í Stykkishólmi.
Norska húsið kl. 15:15
DANSVINNUSTOFA
Sporin kennd, æfð og stigin fyrir kvöldið.
Eldfjallasafnið kl. 17:00
DANSINN STIGINN
Atli Freyr, Eydís Gauja, Elizabeth Katrín og
Hrefna stýra balli í Eldfjallasafninu kl. 21:00
Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla - Norska húsið
norskahusid.is f norskahusid f skotthufan