Skessuhorn - 24.06.2020, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 202020
17. júní hátíðarhöld á Vesturlandi
Þjóðhátíðardagurinn fór fram í einmuna blíðu í Stykkishólmi. Lúðrasveit Stykkishólms lék lög fyrir íbúa dvalarheimilisins í
upphafi skrúðgöngu og sömuleiðis söng kór Stykkishólmskirkju þar áður en haldið var á hátíðarsvæðið þar sem aðal dag-
skráin fór fram. Ljósm. sá
Á hátíðarsvæðinu í Stykkishólmi var boðið upp á galdra,
ávarp fjallkonu, sem hér gengur inn á svæðið, og ræðumann
dagsins sem að þessu sinni var Einar Bergmann Daðason.
Einar er yngstur til að útskrifast frá Tækniskóla Íslands með
ótakmörkuð alþjóðlegum réttindum á öll skip. Ljósm. sá
Dagskráin í Stykkishólmi endaði á froðurennibraut í boði Slökkviliðs
Stykkishólmsbæjar. Ljósm. sá
Þjóðhátíðardeginum var fagnað í Grundarfirði. Kvernár- og Grundarhlaupið
var á sínum stað ásamt því að keppt var í sundi. Að því loknu var uppskeruhátíð
Ungmennafélags Grundarfjarðar. Þar voru grillaðar pylsur og krökkunum
afhentar gjafir eftir uppskeru vetrarins. Vinkonurnar Ellen Alexandra, Jódís
Kristín og Telma Dís fögnuðu deginum eins og aðrir Grundfirðingar. Ljósm. tfk
Þá var nokkuð óhefðbundin skrúðganga í Grundarfirði þar sem fólk safnaðist
saman við Grundargötuna á meðan stelpurnar í Mæk tóku nokkur vel valin lög á
meðan þær keyrðu í gegnum bæinn. Ljósm. tfk
Mikið fjör á ærslabelgnum í Grundarfirði. Ljósm. tfk
Fjallkonan í Borgarbyggð var
Arna Jara Jökulsdóttir.
Ljósm. Ágúst Elí Ágústsson
Nýi sveitastjórinn í Borgarbyggð, Þórdís Sif Sigurðardóttir, hélt sínu fyrstu 17. júní hátíðar-
ræðu á þjóðhátíðardaginn. Ljósm. glh
Í Reykholtsdal og Hálsasveit héldu íbúar þeirri hefð að
fara ríðandi til kirkju í Reykholti. Áð var í Höskuldargerði
og hrossin geymd þar meðan síra Geir Waage hélt sína
síðustu 17. júní hugvekju. Fánaberi var Þóra Árnadóttir á
Brennistöðum. Ljósm. bh.
Gosbrunnurinn með listaverkinu „Stúlka með löngu”
eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal var formlega vígð í
skrúðgarðinum við Suðurgötu á Akranesi eftir endurbætur á
17. júní. Ljósm. akranes.is
Þjóðhátíðardagurinn var haldinn hátíðlegur í Snæfellsbæ
líkt og áður. Þó var bryddað uppá nýjungum sem taldar
voru heppilegar í ljósi þeirra tilmæla sem í gildi eru varðandi
fjöldasamkomur. Fjallkonan í Ólafsvík að þessu sinni
var Samra Begic. Hún flutti ljóðið Til fánans eftir Einar
Benediktsson. Ljósm. þa
Kirkjukórar Ólafsvíkurkirkju og Ingjaldshólskirkju fluttu tvö
lög í Sjómannagarðinum. Ljósm. þa
17. júní var með óhefðbundnu sniði í Búðardal. Ræðuhöld, ásamt ávarpi fjall-
konu, fóru fram á Dvalarheimilinu Silfurtúni en þetta mun vera í fyrsta skipti í
sögunni sem það er lokaður viðburður en almenningi bauðst að fylgjast með í
beinu streymi á facebook síðu Dalabyggðar. En börnin fengu sína dagskrá við
stjórnsýsluhúsið í Búðardal og þar var ýmislegt skemmtilegt í boði. Meðal annars
buðu skátarnir gestum upp á að grilla sykurpúða ásamt því að vera með sölubás á
hátíðarsvæði. Ljósm. sm