Skessuhorn - 24.06.2020, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 202022
Lunddælingurinn Friðrik Þórs-
son útskrifaðist á laugardaginn
með BA gráðu í Hagfræði, heim-
speki og stjórnmálafræði frá Há-
skólanum á Bifröst. Fyrir lokarit-
gerðina fékk hann tíu í einkunn
en efni ritgerðarinnar var rétt-
mæti Brexit. Blaðamaður Skessu-
horns hitti Friðrik að máli og
ræddi við hann um námið en þó
aðallega um dvöl hans í Kína árið
2016 og ævintýralega heimferð
þaðan með Síberíuhraðlestinni.
Ætlaði í hjálparstarf
Friðrik fór til Kína í hjálparstarf
þar sem hann var að kenna leik-
skólabörnum ensku en fljótlega
komst hann að því að ekki væri í
raun um hjálparstarf að ræða. „Ég
hélt ég væri að fara að gera eitthvað
sem skipti máli en svo var þetta í
raun bara óþarfi. Þetta var rosalega
flottur og ríkur leikskóli og ég var í
raun bara útlendingurinn sem átti
að sýna hversu flottur skólinn var,“
segir Friðrik. Hann dvaldi því að-
eins í þrjá mánuði í Kína en seg-
ir ferðina engu að síður hafa ver-
ið dýrmæta upplifun þar sem hann
fékk að kynnast annarri menningu
og sjá hvernig lífið er hinum meg-
in á hnettinum. „Þetta var líka erf-
itt og margt sem ég þurfti að læra
og venjast. Það héldu til dæmis allir
að ég væri ríkur og fólk vildi þekkja
mig, ekki því það vildi pening frá
mér, heldur snérist það um ákveðna
virðingu. Það snýst allt hjá þeim
um ímynd sem þarf að viðhalda og
þá eru í raun bónusstig fyrir að vera
í sambandi við einhvern frá vest-
rænum löndum,“ útskýrir Friðrik.
Ruggandi um í lest
í tvær vikur
En þar sem ferðin til Kína var ekki
eins og Friðrik hafði séð fyrir sér
ákvað hann að stytta dvöl sína þar
og fara til noregs þar sem hann
fékk vinnu. Þar sem hann var að
leita að ævintýri ákvað hann að fara
með Síberíuhraðlestinni frá Pek-
ing til Oslóar. En hvernig var sú
ferð? „Þetta var bæði geggjað og
ferlegt á sama tíma,“ svarar hann
og hlær. „Ferðin tók tvær vikur og
maður var bara ruggandi þarna um
í lest og mátti ekki einu sinni opna
gluggann. Hitinn í lestinni var um
30 gráður og maður gat ekki baðað
sig,“ bætir hann við. Hann var þó
ekki í tvær vikur stanslaust í lestinni
en á leiðinni tók hann tvö stopp.
„Ég var samt einn hluta leiðarinnar
í níu daga í lestinni án þess að fara
út og það var frekar sérstakt. Það
var ekkert símasamband og ekk-
ert internet svo maður vissi varla
hvað klukkan var. Maður missir allt
tímaskyn á svona ferðalagi og sef-
ur og vakir bara þegar maður vill,
það skiptir einhvern vegin engu
máli. Þetta voru í raun ekki dag-
ar lengur. Þetta var bara tilvera þar
sem maður bara var þarna, þurfti
ekki að gera neitt, átti ekkert er-
indi annað en að vera þarna,“ seg-
ir hann. Hvernig var þá ástandið í
lestinni þar sem ekki var hægt að
baða sig og hitinn mikill? „Ímynd-
aðu þér að vera inni í lokuðu tjaldi
Brautskráðist frá Bifröst með tíu
fyrir lokaritgerð um Brexit
Rætt við Friðrik Þórsson um Brexit, hjálparstarf í Kína og tveggja vikna ævintýraferð með Síberíuhraðlestinni
Lunddælingurinn Friðrik Þórsson fékk glæsilega einkunn fyrir lokaverkefni sitt við Háskólann á Bifröst. Ljósm. arg
Friðrik að kenna í leikskóla í Kína. Friðrik að taka á móti börnunum sem voru að koma í leikskólann í Kína.