Skessuhorn - 24.06.2020, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 202026
Bæjarhátíðir eru haldnar víða
um land á sumrin og þar á með-
al hér á Vesturlandi. Skessuhorn
tók saman upplýsingar um helstu
hátíðir landshlutans í sumar. Í
ljósi ástandsins vegna Covid-19
er ljóst að hátíðarhöld verði með
töluvert breyttu sniði í ár. Þá
hafa hátíðir einnig verið blásn-
ar af, bæði vegna faraldursins en
einnig af öðrum ástæðum.
Brákarhátíð
Um komandi helgi verður
Brákarhátíð haldin í Borgarnesi.
Á morgun, fimmtudag, verð-
ur Slökkviliðið í Borgarnesi með
uppákomu við Þórðargötu. Íbúar
eru hvattir til að halda götugrill
á föstudagskvöldinu og á laugar-
daginn verður ýmislegt skemmti-
legt í boði í gamla bæ Borgar-
ness. nánari upplýsingar um há-
tíðina má finna í annarri frétt hér
í blaðinu.
Heim í Búðardal
Í Búðardal verður bæjarhátíðin
Heim í Búðardal, haldin helgina
dagana 3.-5. júlí. Vegna Covid-19
verður hátíðin með aðeins öðru
sniði í ár en lausleg dagskrá er
farin að myndast fyrir hátíðina.
Meðal þess sem verður í boði eru
sölu- og sýningarbásar í Dalabúð
á laugardeginum og ætla nokkrir
íbúar að bjóða heim í kjötsúpu eða
hafa kveikt á grillunum á föstu-
dagskvöldinu. nánari dagskrá
verður hægt að finna á heimasíðu
Dalabyggðar, www.dalir.is, þegar
nær dregur.
Írskir dagar
Á Akranesi verða Írskir dagar venju
samkvæmt fyrstu helgina í júlí, dag-
ana 3.-5. júlí. Fjölbreytt dagskrá
verður í boði fyrir alla fjölskylduna.
Líf og fjör verður við Akratorg,
karnival á Merkurtúni, sandkas-
talakeppni á Langasandi og margt
fleira. Götugrillin verða á sínum
stað á föstudagskvöldinu og Leik-
hópurinn Lotta verður venju sam-
kvæmt í Garðalundi á sunnudeg-
inum. Vegna Covid-19 hefur verið
ákveðið að brekkusöngurinn verði í
streymi að þessu sinni. nánari upp-
lýsingar má finna í auglýsinu á mið-
opnu hér í blaðinu.
Skotthúfan
Í Stykkishólmi hafa Danskir dagar
verið haldnir hátíðlegir um miðj-
an ágúst en nú hefur verið ákveðið
að hátíðin verði aðeins haldin ann-
að hvert ár og þá þriðju helgina í
júní. Árin á móti verður norður-
ljósahátíð að hausti. En Skotthúf-
an er einnig hátíð sem hefur fest
sig í sessi í Hólminum og verð-
ur hún haldin laugardaginn 4. júlí.
Meðal þess sem verður í boði á há-
tíðinni er kaffiboð í betri stofunni
í norska húsinu þar sem gestum í
þjóðbúningum er boðið upp á kaffi
og rjómapönnukökur.
Sandara- og
Rifsaragleði
Sandara- og Rifsaragleði hefur ver-
ið haldin hátíðleg í Snæfellsbæ ann-
að hvert ár á móti Ólafsvíkurvöku.
Að þessu sinni verður hátíðin hald-
in helgina 10.-12. júlí en vegna Co-
vid-19 faraldursins verður hún þó
með örlítið breyttu sniði. nákvæm
dagskrá hefur ekki verið gefin út en
sú breyting hefur verið gerð að göt-
um verður skipt upp í ákveðna liti.
Reykhóladagar
Hinir árlegu Reykhóladagar verða á
sínum stað í ár helgina 24.-26. júlí.
Ekki hefur verið gefin út nákvæm
dagskrá fyrir hátíðina en ljóst er að
hún verði með aðeins breyttu sniði
í ár vegna takmarkana í samfélaginu
á tímum kórónuveirunnar.
Nokkur messuföll
Samkvæmt upplýsingum Skessu-
horns falla nokkrar bæjar- og svei-
tahátíðir niður að þessu sinni. Þar
á meðal eru Hvalfjarðardagar, bæj-
arhátíðin Á góðri stund í Grundar-
firði og Hvanneyrarhátíð.
arg/ Ljósm. úr safni
Eftir því sem líður á júnímánuð
fjölgar þeim laxveiðiám sem veið-
ar eru leyfðar í. Í síðustu viku hóf-
ust veiðar í ám á borð við Langá
á Mýrum og Grímsá í Borgar-
firði. Tíðindamaður Skessuhorns
var við Langá þar sem fimm löx-
um var landað á fyrstu klukkutím-
unum. „Það var gaman að fá fyrsta
laxinn sinn í sumar, en Jógvan Han-
sen veiddi þann fyrsta hérna í ánni
rétt áðan,“ sagði Addi Fannar í
hljómsveitinni Skítamóral sem er
við veiðar í Langá. Það tók Jógv-
an um 15 mínútur að landa þessum
flottum laxi sem var svo sleppt aft-
ur í ána. „Já ég fékk fyrsta laxinn í
Langá og þetta var flottur eins árs-
gamall lax úr sjó,“ sagði Jógvan rétt
eftir að laxinn var kominn á land og
honum svo sleppt að nýju.
Það voru laxar að ganga
Tveggja ára laxinn er víða mættur í
árnar. núna í vikunni er Jónsmess-
ustraumurinn sem gefur jafnan vís-
bendingu um smálaxagöngur sum-
arsins. Göngur af smálaxi hafa oft
verið kraftmiklar á þessum tíma árs.
Verður spennandi að sjá hverning
þær verða í ár, vatnið er gott þessa
dagana og rigning í kortunum líka.
„Við vorum í Kjarará og það
veiddust nokkrir laxar. Um
morguninn þegar við hættum var
lax að ganga upp ána,“ sagði Bubbi
Morthens en hann náði löxum í sí-
num fyrsta túr sumarsins.
nokkru neðar, eða í Þverá, var
Gunnar Örlygsson við veiðar en
þetta var í fyrsta skipti sem hann
veiðir í Þverá í Borgarfirði. ,,Við
fengum þrjá laxa, ég og veiðifélag-
inn á stöngina. Við fengum allsko-
nar veður og það er gaman að veiða
í Þverá, skemmtileg laxveiðiá,“
sagði Gunnar ennfremur. Þverá og
Kjarará er komnar nálægt 150 löx-
um.
nokkru neðar stóðu veiðimenn
við Skugga en þar hafa veiðst tíu
laxar síðan svæðið var opnað, en
þetta svæði hefur verið í einkaleigu
í fjölda ára og litlar fréttir borist
þaðan.
„Mikið vatn er í Straumunum þe-
gar við voru þar og fiskurinn langt
úti í ánni, en lagaðist um morgun-
inn,“ sagði Guðmundur Ágústsson
um stöðuna á svæðinu. ,,Við feng-
um nokkra fiska,“ bætti hann við.
gb
Bæjarhátíðir víða með breyttu
sniði á Vesturlandi
Söngvararnir Svavar Knútur og
Kristjana Stefáns leggja land undir
fót og halda af stað um Vesturland
í júlímánuði og ætla að syngja dú-
etta og spila létta tónlist á vel völd-
um stöðum í landshlutanum. Tón-
leikaröðin ber það ljúfa heiti; Með
faðmlög í farteskinu.
„Tónleikarnir okkar eru af-
skaplega einfaldir og látlausir og
við leikum okkur bara með dú-
ettaformið og það sem við getum
sjálf leikið á hljóðfæri og sungið
saman. Efnisvalið er auðvitað af-
skaplega fjölbreytt, allt frá Páli Ís-
ólfs til Abba, frá Fleetwood Mac
til Sigfúsar Halldórs og Ingibjarg-
ar Þorbergs og allt þar á milli,
enda erum við alltaf að finna ein-
hverja skemmtilega snertifleti hjá
hvert öðru í músík. Svo vill það nú
brenna við hjá okkur að það dett-
ur upp úr okkur alls konar vitleysa
þegar við erum að kynna lögin og í
anda sannra trúða, þá reynum við
að koma sjálfum okkur á óvart eftir
fremsta megni,“ segir Svavar Knút-
ur í samtali við Skessuhorn.
Svavar og Kristjana sungu fyrst
saman í Viðey árið 2008 þegar
Kristjana var beðin um að finna
einhvern listamann úr ólíkri átt til
að gera tónleika með. Samstarf-
ið gekk það vel að dúóið ákvað
að gefa út plötuna Glæður árið
2011. „Samstarfið var svo óskap-
lega skemmtilegt að við ákváðum
að gera það aftur, og svo aftur og
aftur. Platan Glæður gekk svo rosa-
lega vel þegar hún kom út að við
höfum bara haldið áfram að eiga
þetta skemmtilega sumarsamstarf
á hverju ári. Það bætast alltaf við
ný skemmtileg lög í prógrammið
og fólk er alltaf að biðja okkur um
að fá þau á plötu, svo við ákváðum
að hræra bara í eina nýja plötu, en
hún ber nafnið Faðmlög og verður
einmitt með í för í þessari tónleika-
ferð,“ bætir hann við.
Svavar og Kristjana eru vel kunn-
ug í landshlutanum og hafa til að
myndað sungið á Landnámssetr-
inu í Borgarnesi, á Bjarteyjarsandi
og Snæfellsnesi oftar en einu sinni.
„Við höfum nú komið nokkrum
sinnum við á Vesturlandi áður,
enda eru bæði Landnámssetrið og
Bjarteyjarsandur fastir liðir í ferða-
lögunum okkar, bæði saman og sitt
í hvoru lagi. Þá höfum við nokk-
uð reglulega komið í Stykkishólm
og sungið, bæði í kirkjunni og á
Vatnasafninu, en nú langaði okkur
að prófa að spila í gömlu kirkjunni,
því hún er bráðfalleg. Svo vorum
við bara einkar forvitin um félags-
heimilið Brúarás, hvernig stemn-
ingin yrði þar.“
Aðspurður segist Svavar ætla að
nýta ferðalagið til þess að skoða
sig um í landshlutanum. „Við ætl-
um alveg örugglega að koma við
hjá henni Jóhönnu vinkonu okkar á
Háafelli og knúsa nokkrar geitur og
jafnvel skella okkur í Kraumu í bað
til að þvo af okkur ferðasótið. Þá er
auðvitað ómissandi að kaupa afurð-
ir af bændunum á Bjarteyjarsandi.
Vesturlandið er náttúrulega krökkt
af möguleikum og frábærum stöð-
um til að heimsækja. Við hlökkum
endalaust til,“ segir Svavar fullur
tilhlökkunar að lokum.
Fyrstu tónleikarnir í tónleika-
röðinni fara fram í Stykkishólmi
eftir viku, miðvikudaginn 1. júlí, í
gömlu kirkjunni. nánar má fræðast
um áætlun þeirra í Skessuhorni.
glh
Svavar Knútur og Kristjana Stefáns halda í tónleikaferð um Vesturland. Ljósm.
Gunnar Freyr Steinsson.
Svavar Knútur og Kristjana Stefáns
í tónleikaferð um Vesturland
Mokveiði úr Langá á
fyrsta klukkutímanum
Flugunni kastað fyrir laxa í Kjarará.
Addi Fannar með flottan lax úr Langá á Mýrum í morgun.
Gunnar Örlygsson með lax úr Þverá.
Líf og fjör á Írskum dögum í fyrra.