Skessuhorn - 24.06.2020, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 2020 27
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Athygli er vak-
in á því að ný krossgáta er birt í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@
skessuhorn.is fyrir klukkan 15:00 á mánudögum, 12 dögum eftir að
hún birtist. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með
lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á:
„Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja
þarf lausnir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að hún birt-
ist). Dregið er úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn
bók að launum.
Lausn á síðustu krossgátu var: „Samhengi.“ Heppinn þátttakandi
er Kristrún Líndal Gísladóttir, Dalbraut 33, 300 Akranesi.
Form
Beita
Dæs
Korn
Ofn
Slá
Venja
Land-
bára
Erta
Gelt
Gola
Ung-
dómur
Röð
Veski
Dá
Knæpa
Óregla
Flan
Gæfa
Ótti
Sýl
Grípa
Gjöful
Óreiða
Starf
Mánuð-
ur
1 Sam-
þykkir
Starf
Afkvæmi
Skelin
Flan
Órói
Dugur
Háð
Árnaði
Dýpi
Dug-
laus
Ókunn
Gaumur
Mallar
4
Ungviði
Samþ.
Dæld
Matur
Finnur
leið
Hæfni
Getur
Tími
Klaki
Niður
Alltaf
Títt
Fræða
Afar
Rifrildi
Tónn
Spyr
Trjáteg.
Skel-
plata
6 3
Óhóf
Fisk
Samhlj.
Stika
Kunn-
ingjar
Menn
Áfellur
51
Böðlast
Gömul
Ennþá
5
Bál
Fattur
Ókunn
Óreiða
Þófi
Tíma-
bil
Hlaupa
Fljót
Fær
Vanta
Spann
Mál
Haddur
Snerill
Fruma
Útjörð
Á fæti
Ugga
Hnika
Eind
Gróður-
ey
Mögla
Offur
Tóm
Í golfi
Flan
Óttast
2 Ekrur
Vein
Hæðir
Orka
Skaði
Hratt
Laun
Afar
Brókaði
Reipi
Spurn
Röð
Ógn
Rugl
Værð
Skst.
7
Dreifði
Bumba
Tiplar
Hjól
Skálin
1 2 3 4 5 6 7
Ö L Æ R H L J Ó Ð K A R L
L O T A N A U T O Í U Ó Á
K I M I S K R A F L M Á
K R A M K A K A T Ó B U R
Æ Ó R A A F T U R A R R A
T A K R Ó L A Ð A L L E G A
I Ú R T A K A S I L K I T
R Á F Ö T A M R A Ð I N
I Ð G A U R K R Ú N A
Ö G N M A R S Í R I F
L Á N H A K L U M S A R Ó
L A K K A N A Æ Ð U R
G L Á S R Ó R I L L A X
R Æ Ð A T Ó L R A D D I R
Æ Ð A R O K M A T U R A N E
T N T A U G Ó M I N N I
I L B A R R G R A S K O M
R Æ N A N L A Ú R T A K
S A M H E N G I
L
A
U
S
N
Ú
R
S
ÍÐ
A
S
T
A
B
L
A
Ð
I
Í síðustu viku kom út Borgfirðinga-
bók, ársrit Sögufélags Borgarfjarð-
ar, og vinna félagar nú að dreifingu
hennar til áskrifenda. Meðfylgjandi
texti er formáli bókarinnar:
„Segja má að okkur Íslendingum
sé mikil og sérstæð ábyrgð á hendur
falin um allt það, er lýtur að gæzlu
þjóðlegra fræða,” ritar Guðmund-
ur Böðvarsson í formála að Borg-
firzkum æviskrám. Hefur þetta
gæslustarf verið leiðarljós í þeirri
starfsemi sem Sögufélag Borgar-
fjarðar hefur staðið fyrir. Borg-
firðingabókin sem nú er komin út
er 21. árgangur þess rits og hefur
hún þróast frá því að vera eins kon-
ar yfirlit yfir starfsemi sveitarfélaga
og frjálsra félaga á svæðinu, yfir í
„gæzlu þjóðlegra fræða“ með því
að birta frásagnir frá eldri tímum
ásamt því að fjalla um markverða
atburði úr samtímanum. Atburðir
líðandi stundar eru jú einnig þjóð-
leg fræði og skrásetning þeirra get-
ur geymt mikilvæga vitneskju fyrir
komandi kynslóðir og tengt þannig
fortíð við framtíð.
Eins og áður höfum við lagt okk-
ur fram við að höfða til sem flestra,
því reynum við að hafa fjölbreytt-
an hóp greinahöfunda og leggj-
um áherslu á að hver og einn haldi
sínum einkennum í máli og stíl. Í
þessari bók eru höfundar nálægt 25
talsins, í gegn um tíðina skipta þeir
hundruðum. Sem fyrr hefur gengið
afar vel að afla efnis og eigum við
fyrningar sem gott er að geyma til
næsta árs. Þökkum við kærlega öll-
um er lögðu lið fyrir óeigingjarnt
starf. Oft er hugmyndum að efni í
bókina stungið að ritnefndarfólki
á förnum vegi, þá er alltaf einhver
hætta á að hugmyndin glatist áður
en hún kemst á efnislistann, von-
um við að fólk veigri sér ekki við að
minna okkur á ef ástæða virðist til.
Óhjákvæmilega hefur það verið
sérstakt að koma þessari bók saman
meðan heimsfaraldur ógnar nánast
öllum jarðarbúum. Það hefur leitt
hugann að hinum raunverulegu
verðmætum og er þekking á menn-
ingu og sögu þar mikilvæg. Það er
dýrmætt að vita hvernig fyrri kyn-
slóðir tókust á við erfiðleika og
ógnir og einnig hvernig þær nutu
lífsins. Auðvitað er líka forvitnilegt
að vita hvort þjóðfélagið taki var-
anlegum breytingum vegna þessa
ástands, en það er á fárra færi að
vita það nú.
Eins og komið hefur fram í
fyrri Borgfirðingabókum er útgáfa
þeirra bóka megin verkefni félags-
ins um þessar mundir. Þó erum
við enn að gæla við að gefa út eitt
íbúatal enn, en útgáfa þess var ein-
mitt fyrsta verkefni Sögufélags-
ins. Kannað hefur verið hvort ný
persónuverndarlög setji einhverjar
hömlur á að birta þær upplýsingar
sem áður hafa verið í íbúatölunum,
svo virðist vera að enhverju leyti,
þannig að ekki er ljóst hver end-
anleg ákvörðun verður. Þannig að
enn um sinn einbeitir félagið sér
að Borgfirðingabók. Áskrifenda-
hópurinn fer heldur stækkandi og
þökkum við mjög góðar viðtökur
við bókinni. Hægt er að leita upp-
lýsinga um útgefið efni Sögufélags-
ins og hvernig hægt er að nálgast
það á fésbókarsíðu félagsins: Sögu-
félag Borgarfjarðar – Borgfirskar
æviskrár. Einnig er hægt
að hafa samband við rit-
nefndarfólk.
Að lokum vill félagið
minnast Árna Guð-
mundssonar á Beigalda,
en hann lést 1. ágúst
2019. Hann var einn
af dyggum greinarhöf-
undum Borgfirðinga-
bókar. Eftir hann er
efni í fjölda þeirra, þar
sem hann meðal ann-
ars fjallar á afar grein-
argóðan hátt um líf-
ið einkum frá sínum
yngri árum. Í síðustu
bókinni, sem kom út
skömmu áður en hann
lést í hárri elli, fjallar
hann um ættmenni sín
og gaf lesendum þann-
ig innsýn í lífið og til-
veruna um aldamótin
1900 og áratugina þar
í kring. Hafðu kæra
þökk fyrir allt sem þú
lagðir til samfélags-
ins.“
mm
Forsíða Borgfirðinga-
bókar 2020. Ingibjörg
Rósa Jónsdóttir er
fyrirsætan og klæðist
peysu eftir Guðríði
Ebbu Pálsdóttur með
mynstrinu Hvalsporði
og öldum.
Borgfirðingabók er komin út