Skessuhorn - 24.06.2020, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 24. JúnÍ 202030
Hvaða ávana hefur þú og
værir til í að laga?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Íþróttamiðstöðinni
í Borgarnesi)
Ingunn Jóhannesdóttir
„Ég slekk öll ljós, sumir sem
vilja að ég hætti því.“
Konráð J. Brynjarsson
„Væri til í að hætta að drekka
mjólk af stút.“
Marinó Þór Pálmason
„Hætta að slæsa í golfi.“
Gestur Andrés Grétarsson
„Hætta að söngla þegar ég
geispa.“
Arnar Smári Bjarnason
„Hætta að vera rauðhærður.“
Skallagrímur sigraði Samherja, 4-0,
í fyrsta leik liðsins í 4. deild karla
í knattspyrnu. Leikið var í Borg-
arnesi á þriðjudagskvöld í liðinni
viku.
Borgnesingar mættu ákveðnir til
leiks og komust yfir á 21. mínútu
leiksins, þegar Magnús Helgi Sig-
urðsson komst einn í gegn og skor-
aði eftir góða sendingu frá Viktori
Inga Jakobssyni. Magnús bætti síð-
an öðru marki við á 32. mínútu eftir
langa sendingu frá Sölva G Gylfa-
syni og vandræðagang í vörn gest-
anna. Borgnesingar leiddu því með
tveimur mörkum gegn engu þegar
flautað var til hálfleiks.
Skallagrímsmenn voru áfram öfl-
ugri í síðari hálfleik. Tómas Sjö-
berg kom sér inn fyrir vörn gest-
anna með frábærri gabbhreyfingu
og kom Skallagrími í 3-0 á 51. mín-
útu leiksins. Það var síðan Declan
Redmond sem innsiglaði 4-0 sigur
Borgnesinga á 76. mínútu með góð-
um skalla eftir aukaspyrnu Sölva.
Skallagrímur situr í 2. sæti C-rið-
ils 4. deildarinnar með þrjú stig eft-
ir fyrsta leik sumarsins, eins og Ber-
serkir og Hamar sem einnig unnu
sína leiki. næst leika Borgnesingar
á morgun, fimmtudaginn 25. júní,
þegar þeir mæta liði KM á útivelli.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sas.
Körfuknattleiksdeild Snæfells hef-
ur samið við Halldór Steingríms-
son um að þjálfa meistaraflokka
Stykkishólmsliðsins. Halldór samdi
við Snæfell til tveggja ára.
Hann hefur um árabil verið við-
loðandi íþróttastarf og þjálfun og er
menntaður í íþróttastjórnun, að því
er fram kemur í tilkynningu á Fa-
cebook-síðu Snæfells.
Halldór starfaði fyrir kkd.
Fjölnis um 17 ára skeið, sem þjálf-
ari auk þess að vinna önnur störf
innan félagsins. Á síðasta ári þjálf-
aði hann meistaraflokk karla hjá
Sindra á Höfn og var yfirþjálfari
yngri flokka. Þá er hann einnig að-
stoðarþjálfarai U20 ára landsliðs
karla.
kgk
Snæfell nældi sér í eitt stig þegar
liðið heimsótti Björninn í Graf-
arvoginum síðastliðinn laugar-
dag í fyrstu umferð 4. deildar B-
riðils karla í knattspyrnu. Bæði
mörkin komu seint í leiknum og
með mínútu millibili. Það voru
gestirnir frá Stykkishólmi sem
skoruðu fyrsta markið á 83. mín-
útu þegar Mateusz Roman Kubas
skilaði boltanum í netið. Strax á
84. mínútu jafnaði Guðbjörn Al-
exander Sæmundsson metið fyr-
ir Grafarvogsliðið. Liðin skildu
því jöfn eftir fantagóða baráttu.
næsti leikur Snæfells er gegn
SR á Stykkishólmsvelli næst-
komandi föstudag og hefst kl.
20:00.
glh/ Ljósm. þa
Skagakonur mættu Víkingi Reykja-
vík fyrir helgi í fyrstu umferð 1.
deildar kvenna í fótbolta.
Liðin skiptust á um að sækja í
upphafi leiks og voru bæði til alls
líkleg. ÍA átti dauðafæri á 25. mín-
útu þegar Víkingur bjargaði á línu
eftir mikinn darraðadans í teignum.
Stuttu seinna náði nadía Atladótt-
ir að koma Víkingskonum yfir á 31.
mínútu eftir að hafa unnið boltann
í teig Skagakvenna og var staðan
1-0 í hálfleik fyrir heimastúlkur.
ÍA-konur komu ákveðnar í síðari
hálfleikinn, pressuðu hátt upp völl-
inn og voru áræðnar á varnarlínu
Víkings. Rétt undir lokin, á ann-
arri mínútu í uppbótartíma, náðu
Skagastúlkur að jafna metin. Þá
barst boltinn út á Maríu Björk rétt
fyrir utan vítateig Víkings og lagði
María knöttinn laglega framhjá
Höllu Margréti í marki heima-
stúlkna. Liðin skildu jöfn með sitt-
hvort stigið í vasanum eftir fyrstu
umferð.
næsti leikur ÍA fer fram á Akra-
nesvelli gegn Gróttu frá Seltjarnar-
nesi næstkomandi föstudag. Leik-
urinn hefst kl. 19:15 glh
Íslandsmótið í fyrstu deild karla í
knattspyrnu hófst um helgina og
gerði Víkingur Ólafsvík sér lítið
fyrir og sigraði Vestra frá Ísafirði
á laugardag þegar liðin áttust við í
fyrstu umferð. Leikurinn fór fram á
Ólafsvíkurvelli.
Heimamenn voru sterkari í byrj-
un leiks og spiluðu boltanum vel
á milli sín. Vestri átti þó eitraðar
skyndisóknir þess á milli en alltaf
virtist Víkingur vera með yfirhönd-
ina. Það var svo á hinni frægu mar-
kamínútu, þ.e. 43. mínútu þegar
dró til tíðinda. Gonzalo Zamorano
fékk boltann á vinstri kantinum og
lagði hann snyrtilega í fjærhornið
og kom þannig heimamönnum yfir
áður en flautað var til hálfleiks.
Víkingur hélt uppteknum hætti í
síðari hálfleik og var liðið áræðið í
sínum sóknaraðgerðum. Þeir upp-
skáru svo á 75. mínútu þegar Har-
ley Bryn Willard átti glæsilegt skot
fyrir utan teig sem söng í marki
gestanna. 2-0 fyrir heimamenn.
Ekki náði Vestri að ógna það sem
eftir lifði leiks og Víkingur með
öruggan sigur og þrjú stig í fartesk-
inu eftir fyrstu umferð.
næsti leikur Ólafsvíkinga verður
sunnudaginn 28. júní gegn Keflavík
á Ólafsvíkurvelli kl. 16:00.
glh
Gonzalo Zamorano leikmaður Víkings fagnar marki sínu af innlifun. Ljósm. af.
Öruggur sigur Víkings
í fyrstu umferð
Jafntefli ÍA-kvenna
Hart barist í teignum. Ljósm. sas.
Frá undirritun samningsins við Halldór. Ljósm. Kkd. Snæfells.
Halldór Steingrímsson
þjálfar Snæfell
Jafntefli í Grafarvoginum
Borgnesingar byrjuðu á sigri