Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Síða 6

Ægir - 2019, Síða 6
Ægir er að þessu sinni að stærstum hluta helgaður fiskvinnslunni sem óhætt er að segja að gangi nú í gegnum skin og skúrir sam- tímis. Uppsjávarvinnslur fá mikið högg vegna loðnubrests og ekki aðeins fyrirtækin sjálf heldur og ekki síður sá mikli fjöldi fólks sem hefur haft vinnu og tekjur af loðnuvinnslunni. Loðnubrestur- inn kemur hvað harðast við byggðirnar á Austurlandi þar sem byggðar hafa verið upp öflugar vinnslur í bæði frystingu og mjöl- vinnslu en vitanlega mun þessa áfalls gæta á mörgum sviðum sjávarútvegsins og raunar samfélagsins alls. Það mun ekki fara hjá því að þess gæti þegar svo mikilvægar útflutningstekjur tap- ast. Ljósið í myrkrinu er þó að náðst hafi samningar við Færeyjar um gagnkvæmar veiðiheimildir sem tryggja íslenskum uppsjávar- útgerðum veiðar á kolmunna en tíminn verður síðan að leiða í ljós hvernig staðan verður á loðnustofninum í mælingum í haust og næsta vetur. Önnur og betri staða er hins vegar í bolfiskvinnslunni og staða þorskstofnsins sterk um þessar mundir. Tækniþróun í landvinnsl- unni er mikil og hún er drifkraftur í þeirri þróun að dregið hefur úr sjófrystingu og vinnslan verið að færast í land. Hér er fjallað sérstaklega um tvö hús þar sem miklar breytingar hafa átt sér stað að undanförnu, annars vegar hjá Vísi hf. í Grindavík og hins hjá G.Run í Grundarfirði. Í blaðinu er einnig viðtal við Kristján Hallvarðsson, sviðsstjóra hjá Völku en það fyrirtæki hefur þróað og framleitt tæknibúnað fyrir landvinnslu ÚA á Akureyri og er að takast á við stærsta verkefni fyrirtækisins hingað til á þessu sviði hér á landi sem verður ný vinnsla Samherja hf. á Dalvík sem áformað er að verði komin í gagnið að ári. Það atriði sem forsvarsmenn þessara vinnsla sem hafa verið að tæknivæðast nefna fyrst er starfsumhverfið. Tæknin er að leysa af hólmi erfiðustu störfin. Á því eru tvær hliðar, bæði minna líkamlegt álag fyrir starfsmenn og líka hitt að líklegt er að það verði æ erfiðara að fá fólk til þessara starfa. Umræða um að tæknin leysi erfiðari störf af hólmi í fiskvinnslu hefur oftast snú- ist um að störf hverfi, starfsfólki muni þar með fækka en í ljósi reynslunnar er nær að tala um að störf breytist, færist til. Líkt og Rósa Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri G.Run bendir á þá er starfsmannahópurinn sá sami eftir breytingar hjá fyrirtækinu en enginn í nákvæmlega sama starfi og hann var áður. Rauður þráður í þessum tæknibreytingum öllum eru afurða- gæðin og samfella í meðhöndlun allt frá veiðum til endanlegra af- urða. Gæðin felast líka í stöðugleika framleiðsluvaranna, t.d. í bitaskurðinum þar sem hægt er að mæta æ fleiri óskum kaupenda um bitastærðir. Í reynd eru þessar tæknivæddu fiskvinnslur þannig búnar að þær ráða við sérvinnslu fyrir hvern og einn. Fiskvinnsla gengur út á að mæta óskum og þörfum kaupenda er- lendis. Svo einfalt er það. En aðalatriðið er að gæðin séu alltaf í fyrsta sæti og stöðug. Nú er það áleitin spurning hvort við komum til með að sjá meiri samþjöppum í vinnslum en verið hefur. Tæknin er dýr og til að standa undir stærstu vinnslukerfunum þarf stöðugan og mik- inn afla. Enda sýnir sig að afkastageta þessara húsa er mun meiri en áður. Tvöföld eða jafnvel enn meiri. Vinnsluþróunin kann því að framkalla frekari sameiningar fyrirtækja en það er ekki endi- lega þar með sagt að hún geti ekki nýst smáum vinnslum. Þær geta nýtt sér ákveðna þætti vinnslutækninnar til framþróunar og þjónað afmörkuðum sérþörfum viðskiptavina eða markaða. Því er óhætt að segja að bolfiskvinnslan sé í hröðu umbreytingaferli og hún er á margan hátt sterkari en oft áður. Jóhann Ólafur Halldórsson skrifar Skin og skúrir fiskvinnslunnar Vökvakerfislausnir Vökvadælur, vökvamótorar og stjórnbúnaður Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100 www.danfoss.is Stjórnbúnaður skipa. Tæknibúnaður sem ætlaður er til notkunar á sjó mætir erfiðustu hugsanlegu skilyrðum. Álag óblíðrar náttúru, miklar hitabreytingar og stöðugur ágangur af söltum sjó, eykur þörf viðskiptavina fyrir áreiðanlegan og skilvirkan búnað. Út gef andi: Ritform ehf. ISSN 0001-9038 Rit stjórn: Ritform ehf. Glerárgötu 24, Ak ur eyri. Rit stjór i: Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.) GSM 899-9865. Net fang: johann@ritform.is Aug lýs ing ar: Inga Ágústsdóttir. inga@ritform.is Hönnun & umbrot: Ritform ehf. Suðurlandsbraut 30, Reykjavík. Sími 515-5215. Á skrift: Hálfsársáskrift að Ægi kostar 6800 kr. Áskriftar símar 515-5215 & 515-5205. Af Ægi koma út 10 tölublöð á ári. Eft ir prent un og ívitn un er heim il, sé heim ild ar get ið. Leiðari 6

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.