Ægir

Volume

Ægir - 2019, Page 11

Ægir - 2019, Page 11
Fiskvinnslan Gúmmísteypa. Þ. Lárusson ehf. Sérhæfð í færiböndum fyrir sjávarútveginn Gúmmísteypa Þ. Lárusson er gam- algróið fyrirtæki, að grunni til frá því á 6. áratug síðustu aldar og hefur það alla tíð tengst sjávarútvegi. Í upphafi annaðist fyrirtækið m.a. viðgerðir á gúmmíblökkum sem notaðar voru við síldveiðar en með tilkomu fiskitrolls- ins fækkaði þeim verkefnum og fór fyrirtækið þá að framleiða færibönd sem meðal annars voru notuð í malar- vinnslu og í álverum. Eftir að Gúmmí- steypan keypti Reimaþjónustuna árið 2017 styrktust tengslin við sjávarút- veginn enn frekar og framleiðir Gúmmísteypan nú færibönd fyrir fisk- vinnslu- og önnur matvælafyrirtæki, vítt og breitt um landið. Kubbaböndin góður kostur Berglind Steinunnardóttir, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, segir að sala og þjónusta við færibönd fyrir matvælaiðn- að sé nú orðinn stór þáttur í þjónustu Gúmmísteypunnar og að byggður hafi verið upp góður lager af reimum til að geta brugðist við krefjandi markaði. „Við útvegum reimar og færibönd fyrir nánast hvaða starfsemi sem er, allt frá fínustu matvælavinnslum upp í grófustu malarvinnslur og stóriðjuver. Við erum að sækja í okkur veðrið í svokölluðum kubbaböndum sem eru auðveld og þægi- leg í samsetningu fyrir viðskiptavininn. Þau koma sér t.d. vel þegar band skemm- ist úti á sjó, þá er hægur leikur fyrir hvern sem er að laga það. Við ætlum að vera með stóran lager af slíkum böndum og bjóða upp á neyðarþjónustu allan sól- arhringinn. Hjá okkur starfar fólk með mikla reynslu og þekkingu á þörfum ís- lenskra sjávarútvegsfyrirtækja auk þess sem við fylgjumst vel með iðnaðinum á alþjóðavísu til að kynna nýjungar jafnóð- um og þær koma fram. Einnig tökum við þátt í þróunarstarfi með íslenskum iðn- fyrirtækjum sem framleiða vélar og ró- bóta fyrir fiskiðnaðinn,“ segir Berglind. Vörur steyptar úr gúmmíi Berglind segir Gúmmísteypu Þ. Lárusson leggja mikið upp úr vandaðri vöru og þjónustu. „Við framleiðum sterkar og endingar- góðar vörur og höfum alla tíð lagt mikið upp úr þjónustunni í kringum þær. Við- skiptavinir okkar eru um allt land og við mætum þangað sem okkar er þörf,“ segir Berglind. Eins og nafn fyrirtækisins gefur til kynna steypir fyrirtækið ýmsar vörur úr gúmmíi fyrir atvinnulífið, s.s. útgerðar- félög, sveitarfélög, verktaka, stóriðjuver, vélsmiðjur og fyrirtæki í verslun og þjónustu. „Hvað sjávarútveginn varðar fram- leiðum við t.d. pressuhjól í flestar gerðir netaspila og sjóvéla, gúmmíklæðum ál- kefli fyrir spil og blakkir og önnumst viðgerðarþjónustu á netaniðurleggjurum svo dæmi séu tekin. Við bjóðum upp á matvælavottað gúmmí, hita- og olíuþolið gúmmí og efni sem litar ekki út frá sér. Einnig flytjum við inn ýmsa gúmmíhluti t.d. þéttilista fyrir lestarlúgur og vatns- þétt skilrúm. Gúmmísteypan er alltaf með á lager færibanda- og gúmmíreimar allt frá 50 til 1200 mm á breidd en við sérpöntum aðrar stærðir sem og prófíl- reimar. Útgerðaraðilar og sjómenn vita að hverju þeir ganga þegar Gúmmísteyp- an er annars vegar, enda áhersla lögð á skjóta þjónustu og varahluti á lager þeg- ar viðhalds er þörf,“ segir Berglind að lokum. 11 Vaskir starfsmenn Gúmmísteypunnar. Frá vinstri: Kristján V. Kristinsson, Stefán Hólm Vinson, Berglind Steinunnardóttir, framkvæmdastjóri, Þorsteinn Lárusson,eigandi, Kristján Þórðarson, Andrius Kacinskas og Deividas Kacinskas.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.