Ægir

Årgang

Ægir - 2019, Side 14

Ægir - 2019, Side 14
14 framleiddi lang stærstan hluta búnaðar í vinnslusalinn, þ.e. tvær FleXicut vatns- skurðarvélar, flokkara, samvals- og flokkunarbúnað fyrir ferskvöru, færi- bönd, vinnustöðvar fyrir gæðaeftirlit og fleira. Flökunarvélar áttum við fyrir, bæði fyrir bolfisk og karfa, en bættum við flökunarvél fyrir stóran fisk. Síðan keyptum við tvo mjög öfluga skoska lausfrysta og höfum um 180 fermetra frystirými í þeim á fjórum böndum. Skaginn 3X hannaði og framleiddi allan búnað fyrir móttöku og innmötun og Kælismiðjan Frost var með kæli- og frystikerfi hússins. Hönnuður hússins er Helgi Már Halldórsson hjá ASK arkitekt- um og þetta eru stærstu aðilarnir að baki framkvæmdunum,“ segir Guðmund- ur Smári. Tvennt markar nýrri vinnslu G.Run ehf. algjöra sérstöðu en það er annars vegar að í húsinu eru tvær aðskildar vinnslulínur hlið við hlið, þ.e annars vegar vinnslulína fyrir þorsk, ufsa og ýsu og hins vegar sérlína fyrir karfa. Í báðum tilvikum er hægt að stýra afurð- um hvort heldur sem er í pökkun í fersk- ar afurðir eða lausfrystingu, allt eftir því hvers markaðurinn óskar hverju sinni. FleXicut skurðarvél er á hvorri línu fyrir sig. Hitt atriðið er ný hönnun móttöku og innmötunar frá Skaganum 3X sem ekki hefur sést í fiskvinnslu hér á landi. Þeg- ar fiskikör koma úr skipi fara þau á kældan hráefnislager og þaðan tekur lyftari karastæður og setur í nokkurs konar „magasín“ sem með alsjálfvirkum hætti tekur hvert karið af öðru, losar úr því inn á vinnslulínur húsins, skilar tómu kari áfram í sjálfvirkan þvott og að endingu staflar vélbúnaður tómum, hreinum körum upp í stæður sem lyft- aramaður færir síðan úr húsi þaðan sem þau fara um borð í skip á nýjan leik. Að- eins þarf því einn mann í hráefnisinn- mötun vinnslunnar. Hátt í tvöföldun afkastagetu „Með tilkomu nýja hússins verður gjör- breyting á öllum sviðum fiskvinnslunnar hjá okkur. Afkastagetan mun hátt í tvö- faldast þó mannaflinn verði sá sami og gjörbylting verður á þeim möguleikum sem við höfum til að vinna í fjölbreyttar afurðir, nákvæmni upp á gramm í bita- skurðinum og þannig má áfram telja. Erfiðustu störfin verða vélræn og erf- iðasti hluti snyrtingarvinnunnar færist yfir í vélbúnað. Verulega aukin afkasta- geta gerir líka að verkum að við komum til með að sækja meira út á fiskmarkað- ina og til annarra eftir hráefni þar sem Helstu verktakar og búnaðarframleiðendur ASK arkitektar: Hönnun vinnsluhúss Verkís: Hönnun burðarvirkja, loftræsikerfa, vatnsúðakerfa, hreinlætis- og vatnskerfa, raflagna, lýsingar, reykskynjarakerfa, myndavélakerfa, fjarskiptakerfi Ístak: Bygging vinnsluhúss Marel: Vinnslulínur, færibönd, vatnsskurðarvélar Skaginn 3X: Innmötunarkerfi, karaþvottakerfi Kælismiðjan Frost: Kæli- og frystikerfi Ragnar og Ásgeir ehf.: Flutningar ■ Í vinnslusalnum. Hér sjást FleXicut skurðarvélarnar frá Marel, ein á hvorri vinnslulínu hússins. Nýja vinnslan er að því leyti frábrugðin flestum öðrum að í húsinu eru tvær vinnslulínur, þ.e. önnu fyrir bolfisk og hin fyrir karfa.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.