Morgunblaðið - 08.06.2020, Síða 6

Morgunblaðið - 08.06.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020 Pétur Magnússon petur@mbl.is „Þetta var magnaðasta samkoma í sögu Hróksins og þótt víðar væri leitað,“ segir Hrafn Jökulsson, for- maður skákfélagsins Hróksins, um kveðjuviðburð félagsins sem haldinn var í Pakkhúsinu um helgina. „Það var slíkur krafur og eldmóður að ég fylltist trú á þau verkefni sem fram- undan eru.“ Eftir tuttugu og tveggja ára sögu félagsins hafa forsvarsmenn þess ákveðið að láta gott heita og einbeita sér að nýjum verkefnum, en Hrafn segir viðburðinn skemmtilegustu út- för sem hann hafi verið í. Fjölmennt var á viðburðinum, en meðal gesta voru Dagur B. Eggerts- son borgarstjóri, Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, en heiðursgesturinn var Tómas Knúts- son, stofnandi umhverfisverndar- samtakanna Bláa hersins. Safna fyrir börn í Tasiilaq Skákfélagið Hrókurinn var stofn- að árið 1998 og á rætur að rekja til skemmtistaðarins Grand Rokk. Fé- lagið vann fjölda sigra á Íslands- meistaramóti skákfélaga og hefur í seinni tíð staðið fyrir skákkennslu í grunnskólum og unnið hörðum höndum í þágu góðgerðarmála. „Hin ótalmörgu fræ sem flokk- urinn hefur sáð eru löngu orðin að- kraftmiklum jurtum,“ segir Hrafn, en helstu málefni Hróksmanna, eins og heimsóknir í Barnaspítala Hringsins, standa þeim ennþá nærri. Hrafn segir að þjónustu sinni við skákgyðjuna sé nú að mestu lokið og hyggst hann ganga til liðs við Tómas Knútsson og Bláa herinn, sem hefur helgað sig hreinsun strandlengju Ís- lands í þrjá áratugi. Engu að síður stendur Hrókurinn fyrir söfnun fyrir Kalak, vinafélag Íslands og Grænlands, í þágu barna í Tasiilaq, höfuðstað Austur- Grænlands. Söfnunin er kveðjugjöf Hróksins, en hún hófst formlega í gær og mun standa yfir næstu tíu daga. Víkin breyst í öskuhauga Hrafn strengir þess heit að safnist þrjár milljónir króna fyrir sautjánda júní næstkomandi muni hann verja næstu fjórum árum í að hreinsa Kolgrafarvík á Ströndum. Rétt eins og það tók Hrókinn fjögur ár að vinna Íslandsmeistaratitil í skák, segir Hrafn, mun hann taka fjögur ár til að hreinsa víkina. „Kolgrafarvík var ævintýra- heimur bernsku minnar þegar ég var í sveit í gamla daga, en hefur nú breyst í öskuhauga vegna sóðaskap- ar og vanrækslu okkar mannanna.“ Hann segist þegar hafa eytt rúm- lega sjötíu klukkutímum í að hreinsa fjörðinn, en þá sé aðeins 1% af verk- inu unnið. Hann hvetur alla vini Hróksins, að fornu og nýju, til að taka þátt í söfn- uninni, svo kveðjugjöf Hróksins verði sem veglegust. Auk þess heitir hann á vini Árneshrepps og náttúru Íslands og Grænlands að leggja hönd á plóg. „Hér gildir svo sannarlega hið fornkveðna að margt smátt gerir eitt stórt, og það er að sýna sig á fyrstu dögum þessarar söfnunar.“ Skákfélagið Hrókurinn kveður  Saga skákfélagsins Hróksins er á enda, en aðstandendur kvöddu félagið á viðburði um helgina  Stendur fyrir söfnun í þágu barna á Grænlandi  Formaðurinn ætlar að helga sig umhverfisvernd Ljósmynd/Ómar Óskarsson Hrókurinn kvaddur Hrafn ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, en hún var meðal viðstaddra og ávarpaði þá gesti sem saman voru komnir. Ljósmynd/Ómar Óskarsson Kveðjugjöf Stemning var í Pakkhúsinu og taflborðin voru að sjálfsögðu dregin fram. Söfnun í þágu barna í Tasiilaq hófst formlega um helgina. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við höfum verið að fá eitthvað af pöntunum inn í júlí og ágúst. Þangað til núna hafa þetta eingöngu verið af- pantanir,“ segir Sigfús Bjarni Sigfús- son, forstjóri bílaleigunnar Hertz, í samtali við Morgunblaðið. Að hans sögn er pöntunarstaða fyrirtækisins rétt um fimmtungur af því sem hún er í venjulegu árferði. Bindur Sigfús þó vonir við að birta muni til þegar líða tekur á sumarið. „Ég er í sambandi við ferðaskrif- stofur og það er alveg greinilega áhugi á landinu. Þó að pantanirnar séu ekki margar þá er eitthvað að koma inn, sem segir manni að það sé ljós við enda ganganna,“ segir Sigfús sem kveðst einna helst hafa áhyggjur af skorti á upplýsingum frá stjórn- völdum. Þá sé ýmsum stórum spurn- ingum enn ósvarað. „Hvað gerist ef einn ferðamaður greinist jákvæður? Þurfa þá allir sem komu nálægt hon- um að fara í sóttkví? Og þarf viðkom- andi sjálfur að greiða fyrir tvær vikur á hóteli? Það er mjög margt óljóst og við finnum að fólk er að hiksta við að bóka sökum þessa,“ segir Sigfús. Eins og áður hefur komið fram þurfa ferðamenn að greiða fyrir skimun við komuna til landsins. Spurður hvort það hafi haft neikvæð áhrif á viðskiptavini Hertz kveður Sigfús nei við. „Við höfum ekki fundið fyrir því ennþá þó að það kunni að breytast. Aðalmálið er bara að fá svör við öllum stóru spurningunum,“ segir Sigfús. Þrátt fyrir miklar afbókanir ferða- manna hjá bílaleigunni er ljóst að erf- ið staða hefur sömuleiðis skapað tækifæri á nýjum mörkuðum. Að sögn Sigfúsar hefur eftirspurn eftir bifreiðum í langtímaleigu aukist tals- vert undanfarin misseri. Hefur mikill fjöldi fólks í landinu þar mikið að segja. „Það er mikil aukning í lang- tímaleigu. Þetta eru Íslendingar sem eru að nýta sér bílaleigu í nokkra mánuði, eða meðan á dvöl þeirra stendur,“ segir Sigfús. Morgunblaðið/Ómar Bílar Pöntunarstaða bílaleigunnar Hertz virðist eitthvað vera að glæðast. Vonar að birti með haustinu  Skortur á svörum frá stjórnvöldum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.