Morgunblaðið - 08.06.2020, Page 15

Morgunblaðið - 08.06.2020, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020 Sumarsæla Sumarið er tíminn, söng skáldið. Svo virðist sem þessi gæs hafi í það minnsta notið sín þar sem hún flaug vængjum þöndum, umvafin fagurri sumarbirtu. Eggert Við í meirihluta borgarstjórnar höfum nú samþykkt Græna planið, áætlun Reykjavíkurborgar um hvernig umhverfismálin muni leiða efnahagslega viðspyrnu og endur- reisn eftir efnahagsáfallið sem Reykjavík, líkt og heimsbyggðin öll, varð fyrir vegna Covid-19. Endurreisnin þarf að vera græn og sjálfbær. Við viljum skilja við okkur betri borg heldur en við fengum hana í fangið, það á við um lífsgæði, loftgæði og loftslag en líka rekstur borgarinnar. Skilaboðin frá þjóð- inni eru líka skýr, eins og fram kom í könnun Capacent sem birt var í vikunni. Þjóðin vill að stjórnvöld taki loftslagsbreytingar jafn alvar- lega og áskorarnir vegna Co- vid-19. Við getum ekki ýtt loftslags- vandanum eða efnahagsáfallinu á undan okkur til komandi kyn- slóða, heldur er það á okkar ábyrgð að bregðast við þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir. Í Covid fylgdum við vísind- unum og við sáum hvað stofn- anir, fyrirtæki og einstaklingar voru snögg að bregðast við breyttum aðstæðum. Nú þurfum við að takast á við enn stærri áskorun, sem eru umhverfismálin. Í græna planinu eru mikilvæg skref til að auka lífsgæði, loftgæði og bæta loftslag. Þar má nefna bættar samgöngur og uppbyggingu Borgarlínu, bætta innviði fyrir hjól og áherslu á orkuskipti, græna uppbyggingu húsnæðis og umhverfisvæns borgarlands. Það er einnig mikilvægt að halda áfram í ábyrgum og græn- um fjárfestingum, t.d. í gegnum græn skulda- bréf og með því að láta grænar skuldbindingar vera leiðarljós sjálfbærra verkefna og nýsköp- unar. Það þarf einnig að hefja samtal við at- vinnulífið, ekki síst ferðaþjónustuna, um hvern- ig við getum staðið saman í því að byggja upp borgina okkar á umhverfisvænan hátt. Íslendingar skilja alvöruna og skilja að að- gerðirnar sem þörf er á til að sporna við lofts- lagsbreytingunum eru á það stórum skala að þær þurfa að ná til allra anga samfélagsins. Það þarf að bregðast við umhverfisvandanum af festu og sú festa þarf að vera sýnileg í ákvörð- unum borgarinnar. Atvinnulífið, fólk og opin- berir aðilar, í okkar tilviki Reykjavíkurborg, eiga að standa saman að því að reisa okkur við eftir Covid og endurreisnin á að vera græn. Eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur » Það þarf að bregðast við umhverfisvandanum af festu og sú festa þarf að vera sýnileg í ákvörðunum borg- arinnar. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavík og formaður borgarráðs Græna planið til endurreisnar Margt veldur áhyggjum litið út í heim frá Íslandi á þessum vordögum. Höfum við þó við ær- in vandamál að glíma, m.a. tengd framvindu efnahagsmála í kjölfar veirufaraldursins, sem vel hefur tekist til að halda hér í skefjum. Ástand og þróun mála í Bandaríkjunum á síðustu vik- um yfirskyggir allt annað, þar sem saman fara vettlingatök og ráðleysi gagnvart veirunni sem þegar hefur kostað þar á annað hundrað þúsund manns lífið, og við hefur síðan bæst uppreisn almennings gagnvart landlægu kynþáttamisrétti. Við stjórnvölinn situr forseti sem á sér nú orðið fáa formælendur erlendis og grípur helst til ráða sem magna átök og sundrungu heima fyrir, m.a. með hótunum um að beita hervaldi gagnvart eigin borgurum. Þeldökkir sem annars flokks fólk Bandarískt þjóðfélag er afar margbrotið, landfræðilega, sögulega og hvað efnahag og menningu snertir. Ríkidæmi er þar meira og stéttaskipting djúptækari en annars staðar þekkist. Auður hefur þar eins og víðar hlaðist á æ færri hendur síðustu áratugi og við það þrengt að millistéttum, að ekki sé talað um þá sem höllustum fæti standa. Í þeim hópi eru þeldökkir yfirgnæfandi, afkomendur inn- fluttra þræla frá fyrri tíð en einnig innflytj- endur frá Rómönsku Ameríku og Asíu sem stöðugt fer fjölgandi. Þetta er sá jarðvegur sem linnulaus mótmæli síðustu vikna sprettur úr og endurspeglar djúpstæðan og vaxandi klofning í samfélaginu. Mótmælin nú eru langt frá því að einskorðast við þel- dökka, eins og sjá má af myndum. Í ljósi þessa verður skiljanlegt það mikla fylgi sem Bernie Sanders fékk í forkosningum demókrata fyrr á árinu. Hann var af andstæð- ingum stimplaður sem sósíalisti, þar eð hann vísaði m.a. til Norð- urlanda sem fyrirmyndar um sæmilegan jöfnuð og almanna- tryggingakerfi. Málstaður hans virtist einkum njóta stuðnings meðal ungs fólks, en ekki sér- staklega úr röðum þeldökkra. Sá sem hér heldur á penna þekkir Bandaríkin aðeins af nokkrum heimsóknum og ferðum á liðinni öld, en nóg til þess að skynja augljósa mismunun í garð þel- dökkra. Vonir voru bundnar við forsetatíð Obama með sínar afrísku rætur, en viðsnún- ingurinn síðan stefnir í þveröfuga átt. Forystuhlutverk Bandaríkjanna dvínandi Það kemur ekki á óvart að Bandaríkin eru nú óðum að glata því forystuhlutverki sem þau höfðu meðal vestrænna ríkja lengst af allt frá seinni heimsstyrjöldinni. Hernaðaríhlutun þeirra, einkum í vestanverðri Asíu, í Írak, Afg- anistan og víðar, hefur reynst samfelld rauna- saga, sem og stuðningur þeirra við ramma aft- urhaldsstjórn í Sádi-Arabíu. Það sama á við um stuðning þeirra við útþenslustefnu Ísraels- ríkis gagnvart Palestínu, þvert á alþjóða- samþykktir. Þá er andstaða Trump-stjórn- arinnar gegn Parísarsamningnum 2015 og markmiðum hans um að draga úr hlýnun and- rúmsloftsins hörmulegur blettur á annars um margt framsækinni stefnu bandarískra stjórn- valda í umhverfismálum fyrr á tíð. Þegar Trump nú reynir að draga bandarískt herlið út úr feninu í Afganistan virðast hermálayfirvöld í Washington ætla að beina kröftum og áhrif- um í norðurátt, að Norður-Íshafinu og grann- svæðum. Um það ber vott nýlegt tilboð Trumps til Danmerkur um að Bandaríkin „kaupi“ Grænland. Í sömu átt hnígur stefna stjórnarinnar í Washington að Bandaríkin eigi að fjárfesta mun meira en hingað til í vígbún- aði á norðurslóðum, þ.e. í Arktís, til að mæta meintum ógnunum af hálfu Rússa og Kínverja. Ísland fer nú með formennsku í Arktíska ráðinu annað árið í röð. Öryggis- og varnarmál eru ekki rædd innan ráðsins, en áherslan er á umhverfi, vísindi, lífríki o.fl. Á fundi í Arktíska ráðinu fyrir ári gerðu Bandaríkjamenn óvænt athugasemdir við undirbúna starfsáætlun ráðsins, vísuðu framlögðu uppkasti frá og lögðu fram eigin texta. Engin sameiginleg áætlun kom því frá fundinum. Rússar taka þar við formennsku af Íslandi að ári, og við þá hef- ur verið gott samstarf að sögn starfsmanna ut- anríkisráðuneytisins. Allt frá dögum Gor- batsjoffs hafa Rússar líka lagt áherslu á Arktís sem friðarsvæði. Nató sem hernaðarbandalag er ekki svipur hjá sjón frá því sem var á dögum kalda stríðs- ins. Því veldur vaxandi óeining vegna stefnu Bandaríkjanna og Stoltenberg hinn norski er ekki öfundsverður sem framkvæmdastjóri. Hver verður niðurstaða forsetakosninganna vestra? Ekkert eitt málefni fyrir utan veirufarald- urinn upptekur alþjóðasviðið jafn mikið og væntanlegar forsetakosningarnar í Banda- ríkjunum eftir fimm mánuði. Augljóslega veltur á miklu fyrir Bandaríkin og heims- byggðina hver niðurstaðan verður. Þar ber afstöðuna til loftslagsmálanna langhæst í al- þjóðlegu samhengi. Glímunni á vegum COP, þ.e. aðildarríkja loftslagssamningsins um sameiginlegar leikreglur, var frestað um ár. Vinna að því að ná þar niðurstöðu verður mál mála á árinu 2021. Um horfur í þeim efnum í framhaldi af kórónuveirunni fjallar tímaritið The Economist í leiðara sínum 23. maí sl. und- ir fyrirsögninni „Seize the moment“ – grípið tækifærið. Aðildarríki Parísarsamningsins þurfi að mati ritstjórans að átta sig á, að við- brögðin við veirunni geti reynst lykillinn að því að bjarga umhverfinu. – Hvort Bandaríkin verða við það borð ræðst þann 5. nóvember nk. Ekki líst öllum andstæðingum Trumps nógu vel á mótherja hans, Joe Biden, sem þá verður senn 78 ára gamall. Í viðtali við viku- ritið Die Zeit 20. maí sl. undir fyrirsögninni „Wir waren nie eine Demokratie“ (Við vorum aldrei lýðræðisríki) segir bandaríski rithöf- undurinn Paul Auster að Biden sé hvorki sóknharður í kosningum né góður ræðumað- ur. „Tíð mismæli hans koma til af því að hann stamaði sem barn og sagði bara eitthvað ef hann rak í vörðurnar, sama hvað það var. Það sama gerir hann enn í dag. En fólki þykir vænt um hann. Hann getur unnið kosning- arnar fái hann til þess stuðning þeldökkra Ameríkana.“ – Við sjáum hvað setur. Eftir Hjörleif Guttormsson » Þróun mála í Bandaríkj- unum yfirskyggir nú allt annað þar sem saman fara vettlingatök gagnvart veirunni og nú uppreisn almennings gegn kynþáttamisrétti Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Misréttið í Bandaríkjunum, kynþáttahatur og yfirþyrmandi náttúruvá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.