Morgunblaðið - 08.06.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2020
60 ára Laufey ólst upp
í Stykkishólmi og
Reykjavík en býr í Kópa-
vogi. Hún er skrifstofu-
maður hjá Landsvirkjun
og hefur tekið ýmis
námskeið í skrif-
stofustörfum.
Maki: Valur Marteinsson, f. 1961, slökkvi-
liðsmaður á höfuðborgarsvæðinu.
Börn: Ingibjörg Kristín, f. 1986, Aðalsteinn
Helgi, f. 1988, og Marta Júlía, f. 1991.
Barnabarn er Hafdís Birna
Aðalsteinsdóttir.
Foreldrar: Karl Torfason, f. 1932, d. 2004,
verkamaður, og Ingibjörg Júlíusdóttir, f.
1934, fv. bankamaður, búsett í Borgarnesi.
Laufey Karlsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur lagt hart að þér og nú
ferð þú að sjá fram á árangur erfiðis þíns.
Búðu þig undir að fyrr eða síðar reyni á út-
sjónarsemi þína.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er orðið tímabært að þú dekrir
svolítið við sjálfan þig. Gerðu þér grein fyr-
ir því hvað skiptir máli svo þú vitir fyrir
hverju þú ert að vinna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur sæst við hlutina sem þú
ræður ekkert við. Láttu flugeldasýningar
annarra sem vind um eyru þjóta því þeir
eru síst betri menn en þú. Láttu því vera
að taka stórar ákvarðanir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Slíðraðu sverðin og láttu ekki
ómerkilegar þrætur eyðileggja ágætan
dag. Veittu það sem þú vilt veita og getur
veitt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ættir að líta yfir farinn veg í dag
og velta því fyrir þér hvar þú viljir verða
eftir tíu ár. Láttu samt ekki hugfallast því
annars gæti gott tækifæri farið forgörðum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vani getur verið þægilegur. Breyttu
vinnulaginu svo þú náir sem mestum ár-
angri á þeim tíma sem þú ætlar þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ættir að slaka svolítið á og hvíla
þig. Mundu að hrapa ekki að álitinu. Láttu
samt öfund annarra ekki draga þig niður
heldur láttu sem ekkert sé.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert nú loksins í þeirri að-
stöðu að geta ráðið ferðinni. Leyfðu því
öðrum að njóta sín og sinntu þínu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er allt í lagi að vita ekki
hvað tekur við. Undirbúðu þig vandlega og
komdu svo beiðni þinni á framfæri.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Sköpunargáfa þín er með
mesta móti í dag. Léttu á huga þínum og
þá öðlastu þá ró sem þú þarfnast svo
mjög.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert á góðri leið með að taka
til í þínum eigin garði. Fólk er til í að vinna
með þér, allt sem þú snertir verður að
gulli.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert sannfærður um að þínar að-
ferðir til að ná árangri séu þær bestu á all-
an hátt. Nú er rétti tíminn til að ræða til-
finningamálin.
sagt alltaf að sinna yndislegum
börnum sem þurfti að hafa svolítið
fyrir.“ Ragna Freyja var í Ofvirkni-
hópi Barna- og unglingageðdeildar
Landspítalans, hélt fyrirlestra á
vegum hópsins og gaf út Ofvirkni-
bókina fyrir kennara og foreldra
2001 og birti greinar í blöðum.
Ragna Freyja sat í stjórn Félags
íslenskra sérkennara 1970-1974 og
var formaður 1986-1990, var vara-
bæjarfulltrúi í Kópavogi 1978, sat í
félagsmálaráði Kópavogs 1973-78,
formaður Alþýðubandalagsins í
Kópavogi 1976-78 og formaður
MFÍK 1980-1982. Hún var útnefnd
heiðursfélagi Félags íslenskra sér-
kennara 2012 og hlaut sérstaka við-
urkenningu ADHD-samtakanna.
Helstu áhugamál Rögnu Freyju
hafa verið garðyrkja og steinasöfn-
un. „Ég hef slípað mikið steina og
er núna að mála myndir með eldri
borgurum í Gullsmára í Kópavogi.
Ég á enn stóran hluta af steinasafni
mínu og svo fannst mér mjög gam-
an að taka ljósmyndir og á meira en
20 möppur af þeim.“
Fjölskylda
Eiginmaður Rögnu Freyju er
Gísli Ólafur Pétursson, f. 31.3. 1940,
kennari og fararstjóri. Þau gengu í
hjónaband 31.3. 1959 og eru búsett
í Kópavogi. Foreldrar Gísla voru
hjónin Pétur Sumarliðason, f. 24.7.
1916, d. 5.9. 1981, kennari í Austur-
bæjarskóla, og Guðrún Gísladóttir,
f. 5.9. 1920, d. 2.7. 2013, bóka- og
R
agna Freyja Karls-
dóttir fæddist 8. júní
1940 á Siglufirði og
ólst þar upp. Hún var
í sveit 6-7 ára í Gríms-
ey hjá föðurömmu sinni og -afa, þar
sem þau bjuggu í torfbæ. „Þar var
hvorki vatn né rafmagn. Þar voru
kýr, ær og hænsni og þar var algjör
sjálfsþurftarbúskapur, þ.e.a.s slegið
var með orfi og ljá, strokkað og
kýrnar mjólkaðar með höndunum,“
segir Ragna Freyja. Ellefu ára var
hún í barnagæslu á Vatnsenda í
Kópavogi og næstu sumur vann
hún í búð, í frystihúsi og við skóg-
rækt.
Ragna Freyja var í barnaskóla
Siglufjarðar til 11 ára aldurs þegar
fjölskyldan flutti í Kópavog. Hún
gekk í Kópavogsskóla, lauk lands-
prófi í Flensborg í Hafnarfirði og
kennaraprófi frá Kennaraskóla Ís-
lands 1960. Eftir kennarapróf
kenndi hún í grunnskóla Grindavík-
ur tvo vetur, síðan átta vetur við
Kópavogsskóla. Veturinn 1968-1969
fór Ragna Freyja fyrst í framhalds-
nám í sérkennslufræðum við Kenn-
araháskóla Íslands. Þar var hún ein
af níu nemendum í sérkennslunámi
og voru þeir fyrstu menntuðu ís-
lensku sérkennararnir sem útskrif-
uðust þaðan. 1969-1970 var síðan öll
fjölskyldan í Noregi og þar lauk
Ragna Freyja prófi um vorið frá
Sérkennaraháskólanum í Osló. Sér-
grein hennar var kennsla nemenda
sem áttu í félagslegum, tilfinninga-
legum og geðrænum erfiðleikum.
Hún var síðan í starfsleikninámi við
KHÍ 1987-89.
Eftir námið í Osló vann Ragna
Freyja við sálfræðiþjónustu í
Garðabæ 1970-71 og var skólastjóri
við heimavistarskóla í Hlaðgerðar-
koti í Mosfellssveit 1971-72. Þá var
hún forstöðumaður sérkennslu-
stöðvar í Kópavogi 1972-83 og
skólastjóri Dalbrautarskóla 1984-
97. Síðan var hún sérkennari við
Smáraskóla í Kópavogi og við Mýr-
arhúsaskóla á Seltjarnarnesi og
2000-2010 var hún sjálfstætt starf-
andi kennsluráðgjafi, sérstaklega
um nemendur með ADHD og ann-
an hegðunarvanda. „Ég var sem
skjalavörður á Orkustofnun.
Börn Gísla og Rögnu Freyju eru
1) Ólafur Freyr, f. 12.9. 1959,
tæknifræðingur í Reykjavík, fyrr-
verandi maki: Lilja Sigurðardóttir.
Börn þeirra eru a) Ólafur Ari
Sigurbjörnsson, f. 1981, barn Lilju
af fyrra hjónabandi, maki: Hall-
fríður Björgvinsdóttir, þeirra börn:
Sigurbjörn Hörður, Björgvin Ágúst
og Kristín Lilja Aradóttir; b) Assa
Ósk, f. 1987, maki: Steinar Smári
Hilmarsson, þeirra börn: Aþena
Ísey og Jökull Arnar, c) Arna
Björt, f. 1989, d) Ágúst Örn, f. 1994;
2) Ragna Freyja, f. 11.11. 1960,
kennari á Möltu, maki: Þórir Hálf-
dánarson. Dóttir þeirra er Berta
Rögn Zhu, f. 2004. Dóttir Rögnu
Freyju með fv. eiginmanni, Gunn-
laugi Ragnari Magnússyni, er Lind,
f. 1983; 3) Freyja Rún, f. 7.6. 1962,
ferðafræðingur í Noregi. Dóttir
hennar með fv. sambýlismanni,
Björnar Bergseng, er Íris Hild, f.
1993; 4) ættleiddur sonur, Davíð
Karl Sigursveinsson, f. 7.1. 1978,
var hjá Rögnu Freyju og Gísla frá 6
Ragna Freyja Karlsdóttir, sérkennari á grunn- og framhaldsskólastigi – 80 ára
Við Tungnaá Ragna Freyja ásamt börnum sínum, systurdóttur og bróður.
Sinnti alltaf yndislegum börnum
Nýgift Ragna Freyja og Gísli Ólafur
á brúðkaupsdeginum.
Afmælisbarnið Ragna Freyja.
40 ára Eva er Reyk-
víkingur, ólst upp á
Skólavörðuholtinu og
býr í Vogunum. Hún er
með BA-gráðu í sagn-
fræði frá Háskóla Ís-
lands og er heima-
vinnandi.
Maki: Stefán Þórhallur Björnsson, f.
1979, endurskoðandi hjá EY.
Dætur: Hildur Emma, f. 2007, Elín Ósk,
f. 2010, og Freyja Sif, f. 2014.
Foreldrar: Benedikt Hjartarson, f. 1957,
bakari og eigandi Hagabakarís, og Elín
Borg, f. 1959, hjúkrunarfræðingur á
Landspítalanum. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Eva Dögg Benediktsdóttir
Til hamingju með daginn
www.flugger.is
Viðarvörnina fyrir
pallinn færðu
hjá Flügger
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is