Morgunblaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 31
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur til sölu
Læknabók handa alþýðu á
Íslandi Jónassen 1884, Íslensk
ljóðabók Jón Þorláksson,
Bægisá, fyrri deild 1842,
Stafrófskver handa börnum H. Kr.
Friðriksson 1874, 2. útgáfa, fal-
leg sálmabók 1886, Manntal á
Íslandi 1703, Bíldudalsminning,
Sunnanfari 1-13 ib.U.S., Gestur
Vestfirðingur 1-5, Galdrahver
Ísleifs Einarssonar 1857, Klaust-
urpósturinn 2-12 1820, 1-12
1821, Ljóðmæli Þorláks Þórarins-
sonar ný útgáfa 1858, Kvæði og
kviðlingar Bólu-Hjálmar 1882, 93
hugvekjusálmar Jón Hjaltalín
1835, Krókrefssaga 1866, Kvæði
Eggerts Ólafssonar 1832, ekki
stafheil, Óður einykrkjans tölu-
sett og árituð, Gróusögur, Kvæði
og nokkrar greinir um skáldskap
Benekikt Gröndal 1853, Ísafjarð-
arprent uppkast 1859, Ódáða-
hraun Þorvaldar Thoroddsen
1885, Egilssaga 1809.
Uppl. í síma 898 9475
Bækur til sölu
Laxnes/Arnaldur
42 bækur Laxness innbundnar
með kápu kr. 55.000. 19 fyrstu
bækur Arnaldar innbundnar með
kápu, kr. 55.000.
Uppl. í síma 898 9475
Hljóðfæri
Gítarinn ehf.
Stórhöfði 27
Sími 552 2125
www.gitarinn.is
Gítarar
í miklu úrvali
erð við allra h Kassagítara
r
á tilboði
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Aðalfundur Lóðarfélagsins
Móhella 4ae, verður haldinn
mánudaginn 29. júní 2020, kl
17.00. í sal Kænunnar
Óseyrarbraut 2 í Hafnarfirði
1. Fundur settur.
2. Skýrsla stjórnar og umræður um
hana.
3. Framlagning ársreikninga til
umræðna og samþykktar.
4. Kosning formanns.
5. Kosning tveggja stjórnarmanna.
6. Kosning tveggja varamanna.
7. Kosning skoðunarmanna
reikninga.
8. Framlagning rekstraráætlunar
fyrir næsta ár til umræðna og
samþykktar.
9. Framlagning framkvæmda
ætlunar fyrir næsta ár til
umræðna og samþykktar.
10. Ákvörðun húsgjalda fyrir
komandi ár.
11. Lagabreytingar.
12. Önnur mál.
13. Fundargerð lesin og leiðrétt.
14. Fundi slitið.
Reikningar félagsins vegna ársins
2019 liggja frammi á sama stað frá
kl. 16.00 – 17.00 föstudaginn 26.
júní – einnig verða þeir
aðgengilegir á heimasíðu félagsins
www.mohella.is frá 24. júní og
fram yfir aðalfund
Samkvæmt ofanrituðu verða
mikilvæg mál tekin fyrir á fundinum
til ákvörðunar og umræðu. Hér með
er eindregið skorað á eigendur að
mæta á fundinn til að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri og
taka þátt í ákvörðunum. Fundur
þessi er boðaður í samræmi við
ákvæði fjöleignarhúsalaga nr.
26/1994 og verður fundurinn
haldinn samkvæmt fyrirmælum
þeirra. Fundarboð þetta er kunngert
félagsmönnum með birtingu
auglýsingar í Morgunblaðinu og
einnig á heimasíðu félagins.
Stjórn Móhellu 4, a-e
SANDBLÁSTUR
& MÁLUN
Á stáli, tré ofl
WWW. blastur.is
Þú kemur til okkar
eða við til þín!
Verkstæði & verktakar
Helluhrauni 6, 220 Hf.
s: 555-6005
Veiði
Silunganet • Sjóbleikjunet
Fyrirdráttarnet • Bleikjugildrur
Nýtt á afmælisári
Kraftaverkanet • margar tegundir
25% afmælisafsláttur
af Stálplötukrókum fyrir
handfæraveiðar
Að auki fylgja silunganetum
vettlingar í aðgerðinni
Bólfæri
Netpokar fyrir þyngingu
Og eitthvað meira skemmtileg
Heimavík 25 ára
01.05.1995 - 01.05.2020
Tveir góðir úr nýju netunum
Reynsla • Þekking • Gæði
heimavik.is, s. 892 8655
Húsviðhald
✝ RagnheiðurJúlía Gísladótt-
ir fæddist í Meiri-
Hattardal í Álfta-
firði vestra 7. októ-
ber 1923. Hún lést
á Hjúkrunarheim-
ilinu Eyri á Ísafirði
21. mars 2020.
Foreldrar Ragn-
heiðar voru Hans-
ína Sigurðardóttir,
f. 16.10. 1900, d.
22.8 1965, og Gísli Júlíus Ólafs-
son, f. 29.8. 1889, d. 6.6. 1924.
Fyrri kona Gísla var Stein-
unn Ólafsdóttir, f. 24.4 1892, d.
11.10. 1922.
Þau áttu börnin Hallfríði, f.
1911, Ólaf, f. 1912, Ingva Lín-
dal, f. 1915, Gunnar Ágúst, f.
1916, Sigrúnu, f. 1918, og Ósk, f.
1920.
Seinni kona Gísla var Hans-
f. 1.7. 1946. Með fyrri konu sinni
Önnu Gísladóttur, f. 17. júní
1949, d. 11.10. 2001, eignaðist
hann þrjár dætur, elsta dóttirin
Margrét Helga, f. 1.3. 1966, d.
23. desember 1984. Seinni kona
Sawai Sara Kham. Gísli Garð-
arsson, f. 16.2 1952. Maki Krist-
ín Jónsdóttir og eiga þau þrjá
syni. Hansína Guðrún Garð-
arsdóttir, f. 27.9. 1954. Maki
Finnbogi Hermannsson og eiga
þau fjögur börn. Gerður Ragna
Garðarsdóttir, f. 4.9. 1958. Maki
Ægir Sigurgeirsson og eiga þau
þrjú börn. Smári Garðarsson
maki Karítas Ása Halldórsdóttir
og eiga þau tvö börn.
Langömmubörnin eru 44 og
langalangömmubörn 12.
Ragnheiður Júlía ól allan sinn
aldur í Súðavík og var þar hús-
móðir og fiskverkakona. Henni
féll aldrei verk úr hendi á
mannmörgu og gestkvæmu
heimili. Hún var lengi elsti íbúi
Súðavíkur.
Útför hennar verður gerð frá
Súðavíkurkirkju í dag, 20. júní
2020, og hefst athöfnin klukkan
14.
ína Sigurðardóttir
og eignuðust þau
börnin Steinunni
Ósk, f. 1922, Ragn-
heiði Júlíu, f. 1923,
og Gísla Ólaf, f.
1924. Hann lést síð-
astur þeirra systk-
ina 20. apríl 2020.
Ragnheiður gift-
ist árið 1947
Garðari Sigur-
geirssyni, f. 8.5.
1922, d. 24.7. 2002.
Börn þeirra: Margrét Helga
Garðarsdóttir, f. 17.1. 1942, d.
30.1. 1994. Fyrri maður Árni
Þorgilsson og eignuðust þau
tvær dætur. Með síðari manni
sínum Birni Jónssyni eignaðist
hún eina dóttur. Sigurgeir
Garðarsson, f. 24.1. 1945, maki
Jónína Hansdóttir og eiga þau 4
börn. Þráinn Ágúst Garðarsson,
Ragnheiður Júlía fæddist í
Meiri-Hattardal í Álftafirði vestra
þann 7. október 1923, dóttir
þeirra Hansínu Sigurðardóttur úr
Furufirði í Grunnavíkurhreppi og
Gísla Ólafssonar bónda í Meiri-
Hattardal. Gísli kom ekkjumaður
frá Kleifastöðum í Kollafirði norð-
ur að Djúpi. Hansína kom sem
ráðskona til Gísla sem þá þegar
átti fimm börn fædd vestra með
eiginkonu sinni Steinunni Ólafs-
dóttur. Þau Hansína eignuðust
þrjú börn saman; Steinunni,
Ragnheiði Júlíu og Gísla.
Ragnheiði Júlíu var komið í
fóstur eftir lát föður síns rétt eins
árs hjá þeim hjónum Þuríði
Magnúsdóttur og Grími Jónssyni
útgerðarmanni og kaupmanni í
Súðavík.
Lífið var enn saltfiskur um
1930 og Ranka fór snemma að
taka til hendi á saltfiskreitunum
og kynntist þá verðandi lífsföru-
naut sínum. Ungur sveinn spratt
upp í Súðavík á þessum dögum og
hét Garðar Sigurgeirsson, ljúf-
menni sem ekkert aumt mátti sjá.
Eitthvað hefur Ragnheiður séð
við Garðar en þau felldu kornung
hugi saman og fóru að búa um tví-
tugt. Keyptu lítið hús af Grími og
Þuríði og fengu útmælda lóð í
kaupbæti. Fyrsta barnið, Mar-
grét Helga, fæddist 17. janúar
1941 og var þá stríð fyrir strönd-
um. Hún varð öllum harmdauði er
hún lést eftir löng veikindi 30. jan-
úar 1994. Sigurgeir kom næstur,
þá Þráinn Ágúst, Gísli og Hansína
Guðrún. Síðust í röðinni voru þau
Gerður Ragna og Smári, samtals
sjö börn.
Garðar sótti snemma sjóinn og
vann það sem til féll í landi. Einn-
ig átti fjölskyldan kindur sem aðr-
ir þorpsbúar og varð hlutverk
allra vinnandi handa að heyja fyr-
ir féð sumartímann.
Þegar þrjú börn voru fædd,
þótti þeim Rönku og Dabba, eins
og þau hjón voru jafnan kölluð af
sínum nánustu, ekki tjóa lengur
að lifa í óvígðri sambúð. Garðar
hafði verið á vertíð suður á Akra-
nesi og Ragnheiður skellti sér
suður. Þetta var vorið 1947. Séra
Bjarni pússaði þau saman og var
giftingardagurinn 22. maí. Síðan
var haldið rakleitt vestur að
stinga upp kartöflugarðinn og
pota niður útsæði, það var þeirra
brúðkaupsferð.
Það má með sanni segja að
Ragnheiður Júlía hafi staðið sína
plikt í þessu afskammtaða lífi. Síð-
ustu árin prjónaði hún ullarsokka
á afkomendur sína sem nú eru
orðnir 84. Þegar hún heyrði af
jarðskjálftum og snjóflóðum aust-
ur í Nepal sendi hún heilt partí af
ullarsokkum til bágstaddra í Nep-
al, þá á tíræðisaldri.
Þess verður að geta hér að
Ragnheiður fór til starfa í íshúsi
staðarins, Frosta, þegar börnin
voru vaxin úr grasi utan tvö
yngstu og togari kominn í plássið.
Þar starfaði hún um langt skeið
og lét ekki sitt eftir liggja innan
um aðrar bónusdrottningar.
Það eru vissulega tímamót þeg-
ar Ragnheiður Júlía safnast til
feðra sinna. Hún var óskoruð ætt-
móðir og afkomendur hennar
báru óskipta virðingu fyrir henni
og Garðari ættföður sínum. Eins
og þetta hafi verið ástir sam-
lyndra hjóna alla tíð enda ekki
annað að sjá en að þau hafi verið
jafn ástfanginn og þegar þau fóru
að draga sig saman upp úr ferm-
ingu í litla sjávarþorpinu fyrir 80
árum.
Ragnheiður lést á hjúkrunar-
heimilinu Eyri á Ísafirði þann 21.
mars 2020, 96 ára að aldri.
Meira: mbl.is/andlat
Finnbogi Hermannsson.
Fyrstu minningarar um ömmu
eru við eldhúsborðið á Bakkaveg-
inum í Hnífsdal. Amma og afi í
Súðó komin í heimsókn á skódan-
um sínum einu sinni sem oftar.
Amma og afi töluðu af kappi og
við systur höfðum mjög gaman af
, hlógum og hlustuðum af athygli
á frásagnir þeirra án þess að
þekkja persónur né leikendur í
frásögnunum. Afi var mikill
nammikarl og laumaði iðulega
Smartís til okkar í þessum heim-
sóknum.
Sláturtíð var einstaklega
spennandi í okkar huga. Þá mætti
amma í Hagkaupssloppnum, með
rúllur í hári og net. Slátur hrært í
bölum og myndin af ömmu blóð-
ugri upp að olnbogum gleymist
seint, þvílík upplifun og skemmt-
un fannst okkur.
Æskujólin með ömmu og afa
eru ljóslifandi í hugum okkar.
Spennan á aðfangadag þegar beð-
ið var eftir að skódinn renndi inn
götuna í Hnífsdalnum, þá fyrst
voru jólin komin. Jólin eftir að
amma og afi fengu sér örbylgju-
ofn gleymast seint. Afkomendur
þeirra , sem voru nú ekki fáir,
höfðu allir fengið sömu snilldar
jólagjafahugmyndina sem var að
gefa þeim búnað til að matreiða í
ofninum góða. Í lok kvöldsins sátu
þau skellihlægjandi í hrúgunni af
tupperwereinu, plastboxunum og
hinum ýmsu hjálmum í örbylgj-
una.
Amma missti mikið þegar afi
dó. Þau voru samrýnd og gengu
saman í að gera hlutina, sama
hvort það bakstur eða önnur verk.
Til fjölda ára hefur amma
hringt á hverju kvöldi, á sama
tíma í mömmu. Þessi föstu samtöl
gáfu þeim báðum mikið og voru
þær nánar. Amma hafði einlægan
áhuga á því sem fram fór hjá okk-
ur afkomendum hennar og fékk
fréttir af okkur og okkar börnum
daglega. Hún hafði stálminni og
mundi allt sem við hana var sagt
og var því vel inní lífi okkar.
Amma naut þess að geta búið
nánast til æviloka í fallega báru-
járnklædda húsinu sínu á Víkur-
götunni. Hún naut aðstoðar og
samvista við afkomendur sína
sem gerði henni kleift að halda
sjálfstæði sínu svo lengi. Amma
naut góðvildar og samvista við
fleiri en afkomendur sína og voru
þær Helga og María henni góðar
vinkonur, reyndust henni einstak-
lega vel og fyrir það erum við
þakklát.
Nú hefur amma kvatt. Við er-
um þakklátar fyrir samveruna og
tímann sem við fengum með
ömmu. Fyrir börnin okkar hafa
það verið forréttindi að eiga lang-
ömmu í Súðó, getað fengið faðm-
lag og gengið í skápinn og sótt
dýrin sem hver kynslóðin á fætur
annarri hefur leikið með. Oftar en
ekki var svo farið heim með
ömmusokka.
Ömmu Rönku verður sárt
saknað af okkur og fjölskyldum
okkar. Finnbogi Örn langömm-
ustrákur komst vel að orði þegar
hann sagði „Langamma Ranka
lifir í mér“ þegar honum var tjáð
að hún hefði kvatt.
Amma lifir í okkur afkomend-
um hennar.
Innilegar samúðarkveðjur
elsku mamma, missir þinn er mik-
ill.
Auður Finnbogadóttir,
Rannveig Hera Finn-
bogadóttir og fjölskyldur.
Hringrás lífsins
Frá þeim degi er við fæðumst í
heiminn.
Og horfum í sólina sperrt.
Þá er meira að sjá en tjá nokkur má.
Meira að gera en nokkur fær gert.
Það er allt of margt til að læra.
Meira að finna en nokkur fær séð.
Sífellt sólin fer um uppi á
himninum.
Sérhvern dag og hún fylgist með.
Þetta er lífsgleðin sjálf.
Sem við lútum öll.
Á ævinnar leið.
Í auðlegð sem neyð.
Uns við finnum stað.
Sem að hentar okkur.
Gegnum lífið og lífsferilinn.
Stanslaus lífsgleðin, já.
Sem við lútum öll.
Hvert líf, ég og þú.
Í vonum og trú.
Uns við finnum stað.
Sem að hentar okkur.
Gegnum lífið.
Já, lífsferilinn.
(Þýðing: Ólafur Haukur Símonarson og
Þorsteinn Eggertsson)
Ég vil þakka þér fyrir að
prjóna marga hlýja sokka á mig.
Takk fyrir allar hlýju móttökurn-
ar í Súðó og að hafa fengið að leika
með dýrin í skápnum öll þessi ár.
Ég vona að þú sért að prjóna
sokka á himnum. Eins og Lion
King þá lifir þú áfram í mér.
Þinn langömmustrákur.
Finnbogi Örn Rúnarsson.
Ragnheiður Júlía
Gísladóttir
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Sálm. 16.1-2
biblian.is
Varðveit mig, Guð,
því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi
við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég
á engin gæði nema
þig.”
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744