Morgunblaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Rakel Olsen, framkvæmdastjóri í Stykkishólmi, og Hrefna Róberts- dóttir þjóðskjalavörður undirrituðu á fimmtudaginn samning um af- hendingu og varðveislu á skjalasafni Sigurðar Ágústssonar, alþingis- manns og kaupmanns í Stykkishólmi (1897-1976), hjá Þjóðskjalasafni Ís- lands. Skjalasafnið er viðamikið, um 11 hillumetrar að stærð. Í samn- ingnum segir að aðgang að skjöl- unum hafi allur almenningur, fræði- menn og aðrir aðilar sem eftir því óska. Skjalaskráin hefur verið gerð öll- um aðgengileg á vef Þjóðskjalasafns. Stólpi í sinni byggð „Það er á vissan hátt tregablandið fyrir mig að standa hér í dag og af- henda íslensku þjóðinni skjalasafn tengdaföður míns og um leið opna öllum aðgang að lífsstarfi hans,“ sagði Rakel í ávarpi við undirrit- unina. Rakel sagði að það hefði löngum verið í senn styrkur og nauð- syn fámennum byggðum eins og Stykkishólmi að eiga fólk sem hefur óbilandi trú á byggðinni sinni og framtíð hennar og heldur tryggð við hana alla tíð. „Ekki síst skiptir það máli þegar í hlut eiga, á hverjum tíma, athafnamenn og drifkraftar því engan veginn er sjálfgefið að menn staðsetji atvinnustarfsemi og umsvif í fámennum byggðum sem sí- fellt eiga undir högg að sækja,“ sagði hún. Rakel sagði að Stykkishólmur hefði verið heimavöllur Sigurðar Ágústssonar. Enginn skyldi samt halda að hann hafi aðeins hugsað og unnið fyrir Stykkishólm, skjalasafn- ið sýni ótrúlega baráttu hans fyrir framförum um allt Snæfellsnes, Breiðafjarðareyjar og inn í Dali. „Hann var tengiliður manna og fyrirtækja við stjórnvöldin fyrir sunnan en allt var á þessum tíma háð sérstökum leyfum. Það var ekki sjálfgefið að vegarspotti væri lagður heim á sveitabæi, rafmagn eða sími, allt var þetta háð leyfum. Ef þú vild- ir kaupa þér bíl, bát, vinnuvél eða annað til að létta þér stritið þurfti að ganga eftir leyfisbréfi,“ segir Rakel. Sigurður hafi valist til fjölda trún- aðarstarfa fyrir heimabyggð sína og héraðið allt. Hann hafi verið í fyr- irsvari fyrir framfarir og atvinnu- uppbyggingu á Vesturlandi öllu. Rakel sagði að Sigurður hefði alla tíð verið reglumaður og passað vel upp á bréf, skjöl og annað sem til- heyrði honum sjálfum, rekstri hans og samskiptum við þá sem til hans leituðu. Hún nefndi að skjalasafnið geymdi m.a. prófverkefni hans þeg- ar hann stundaði verslunarnám í Kaupmannahöfn 1916 til 1917, það geymdi líka kladda yfir tekjur og gjöld og dagbók um hvað hann var að gera meðan hann dvaldi í borg- inni. Einnig er þar að finna bréf frá vinum og ættingjum frá sama tíma. Sigurður hafði mjög fallega rithönd sem er auðlesin. Upphafið 1933 Stofnun Verslunar Sigurðar Ágústssonar má rekja til febrúar 1933, þegar hann kaupir eignir danska verslunarfyrirtækisins Tang & Riis á uppboði í Stykkishólmi. Um var að ræða síðustu leifar selstöðu- verslunar Dana á Íslandi. Verslunar- svæðið var víðfeðmt, bændaverslun mikil og samhliða rekið sláturhús og verkaður þurr- og saltfiskur sem fluttur var út ásamt kjöti, gærum, skinnum og æðardúni. Útibú og slát- urhús voru starfrækt í Dölum og víða um Snæfellsnes. Verslunin var seld í árslok 1966. Sigurður hafði um sína daga mörg járn í eldinum, starfrækti m.a. í áratugi stærsta refabú landsins, rak netagerð, brauðgerðarhús og bif- reiðastöð í samvinnu við aðra. Mikil umsvif voru í saltfiskvinnslu á ár- unum 1970 til 1990. Hraðfrystihús reisti Sig- urður 1941 og var unninn þar bolfiskur í hálfa öld, samhliða var síldar- söltun, salt- og skreiðarverkun. Fiskimjölsverksmiðja var reist 1948, en þar var Sigurður stærsti eigandi. Ágúst, sonur Sigurðar, kom að fyrirtækinu 1958, en árið 1969 voru að hans frumkvæði hafnar veiðar og vinnsla hörpudisks við Breiðafjörð, brautryðjandastarf sem hefur skap- að mikil verðmæti víða og var í rúma þrjá áratugi burðarásinn í rekstri fyrirtækisins. Vegna sýkingar hrundi hörpudisksstofninn árið 2003 og hafa veiðar og vinnsla legið niðri síðan. Árið 1986 var kavíarvinnslan Björg stofnuð í Stykkishólmi með þátttöku fyrirtækisins sem eignaðist hana að fullu 1998. Fullkomin rækjuvinnsla var síðan tekin í notk- un 1993 og samhliða henni var reist pökkunarverksmiðja með áherslu á neytendapakkningar. Það sama ár lést Ágúst og tók Rakel, ekkja hans, við rekstrinum ásamt börnum þeirra. Það er nú rekið undir nafninu Agustson ehf. Mörg spor til heilla „Sigurður Ágústsson markaði mörg sporin til heilla fyrir Stykk- ishólm, Snæfellinga og nágrenni,“ sagði Rakel við athöfnina í Þjóð- skjalasafninu. „Hann var mjög vinnusamur og þótti vera fyrir- greiðslupólitíkus og var hann stoltur af því. Við skulum líka hafa í huga að á starfsævi Sigurðar var enginn tölvupóstur, áratugir í GSM-síma og hringt var lengst af í gegnum mið- stöð. Ég bjó í sambýli við tengdafor- eldra mína í 11 ár meðan Sigurður var enn lifandi, Við bjuggum þá í Clausenhúsinu, sem byggt var 1874. Í þessu gamla húsi var mjög hljóð- bært á milli hæða. Minnist ég þess að ósjaldan sofnuðum við út frá hljóðinu í gömlu Remington- ritvélinni á efri hæðinni þar sem tengdafaðir minn var enn að slá á lyklaborðið með tveimur fingrum, að svara eða sinna áríðandi erindum fyrir umbjóðendur sína.“ Skjöl athafnamanns afhent  Viðamikið skjalasafn Sigurðar Ágústssonar, kaupmanns í Stykkishólmi, varðveitt í Þjóðskjalasafni  Safnið er 11 hillumetrar að umfangi  Skrá yfir skjölin er öllum aðgengileg á vef safnsins Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tengsl Rakel Olsen, athafnakona í Stykkishólmi, er tengdadóttir Sigurðar Ágústssonar sem um langt árabil var burðarásinn í atvinnulífi kaupstaðarins. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Afhending Samningur um afhendingu skjalasafns Sigurðar Ágústssonar handsalaður. Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður t.v. og Rakel Olsen. Sigurður Ágústsson fæddist í Stykkishólmi 1897, sonur Ás- gerðar Arnfinnsdóttur og Ágústs Þórarinssonar sem lengst af var verslunarstjóri við danska verslun í bænum. Árið 1923 kvæntist Sigurður Ingi- björgu Helgadóttur, einkasonur þeirra var Ágúst, fæddur 1934, látinn 1993. Sigurður lauk versl- unarprófi Danmörku 1917. Hann var síðan fulltrúi við verslun Tang & Riis í Stykkishólmi til 1931, en keypti verslunina 1932 og rak hana til 1966 ásamt útgerð, reisti hrað- frystihús í Stykkishólmi 1941 og rak það síðan. Hann var þingmaður Snæfellinga og síðar Vesturlands samfellt í 19 ár, frá 1949 til 1967. Öflugur at- hafnamaður SIGURÐUR ÁGÚSTSSON Sigurður Ágústsson Höfuðstöðvar Agustson ehf. í Stykkishólmi er til húsa í hinu gamla pakk- húsi Tang & Riis sem reist var 1890 en hefur síðan verið endurbyggt. Ljósmynd/Sigurður Ágústsson. Stykkishólmur Myndina tók Sigurður Ágústsson um 1930, en þá voru að- eins örfá hús í kaupstaðnum. Mikið safn ljósmynda hans hefur varðveist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.