Morgunblaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
ÁRBÆJARKIRKJA | Helgistund kl.
11. Sr. Þór Hauksson þjónar. Organisti
er Krizstina K. Szklenár. Kaffi og spjall
eftir messu.
ÁSKIRKJA | Helgihald liggur niðri til
sunnudagsins 9. ágúst 2020 vegna
sumarleyfa sóknarprests og starfs-
fólks Áskirkju.
BESSASTAÐASÓKN | Hjólreiða-
messa í Garðabæ og Hafnarfirði. Lagt
af stað frá Ástjarnar- og Vídalínskirkju
kl. 9.30. Hjólað á milli kirkna og endað
í sumarmessu og kirkjukaffi í Garða-
kirkju kl. 11 en fyrir þá sem vilja hjóla
lengra er í boði að hjóla að því loknu í
Bessastaðakirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa kl.
20 sunnudag. Breytt snið og form í tali
og tónum á sunudagskvöldum í allt
sumar. Einsöngvari Margrét Hann-
esdóttir, fiðluleikari Hjörleifur Valsson,
organisti Jónas Þórir. Messuþjónar og
sr Pálmi Matthíasson annast þjónustu.
DIGRANESKIRKJA | Í sumar er sam-
starf milli kirknanna í Kópavogi um
helgihald. Á sunnudag kl. 11 verður
guðsþjónusta með skírn í Digra-
neskirkju kl. 11. Guðsþjónustan er í
umsjá sr. Gunnars Sigurjónssonar og
Matthíasar V. Baldurssonar (Matta
Sax).
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30
á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á
pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl.
18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 18
er vigilmessa og messa á pólsku kl.
19.
DÓMKIRKJAN | Guðþjónusta kl. 11.
Séra Sveinn Valgeirsson, Kári Þormar
dómorganisti og Dómkórinn.
FELLA- og Hólakirkja | Sameiginleg
guðsþjónusta Breiðholtssafnaðanna.
Gönguguðsþjónusta. Sunnudag 21.
júní er guðsþjónusta kl. 11 í Selja-
kirkju. Gengið verður frá Breiðholts-
kirkju kl. 10.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 14. Séra Hjörtur
Magni Jóhannsson leiðir stundina.
Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn
við Tjörnina leiða tónlistina ásamt
Gunnari Gunnarssyni.
GLERÁRKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sönghópur úr kór Glerárkirkju syng-
ur. Organisti: Petra Björk Pálsdóttir.
Prestur: Sindri Geir Óskarsson.
GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudag-
inn 21. júní verða fermingar og er því
ekki kaffihúsamessa þennan sunnu-
daginn. Fermingarathafnirnar verða kl.
11 og 13.
GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Félagar úr Kór Grensáskirkju leiða
söng ásamt Ástu Haraldsdóttur org-
anista. Messuþjónar aðstoða. Prestur
er Pálmi Matthíasson. Kaffispjall og
hressing eftir messu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Fermingarguðsþjónusta sunnudag kl.
10.30. Prestar eru Leifur Ragnar Jóns-
son og Pétur Ragnhildarson. Organisti
er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríð-
arkirkju syngur. Meðhjálpari er Guðný
Aradóttir og kirkjuvörður er Lovísa Guð-
mundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sum-
armessa í Garðakirkju kl. 11. Hjólreiða-
messa. Hjólað af stað frá Hafnarfjarð-
arkirkju kl. 10. Prestur er Þórhildur
Ólafs. Organisti er Guðmundur Sig-
urðsson. Kirkjuþjónn er Einar Örn
Björgvinsson. Kaffi í Króki eftir messu.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa 11. Sr.
Sigurður Árni Þórðarson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn
Óskarsdóttur. Hópur messuþjóna að-
stoðar. Félagar úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngja. Organisti er Lára
Bryndís Eggertsdóttir. Messukaffi í
Suðursal að lokinni messu. Bæna-
stundir kl. 12 miðvikudaga til föstu-
daga.
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Félagar í Kordíu kór Háteigskirkju
leiða messusöng. Organisti er Kristín
Jóhannesdóttir. Prestur er Eiríkur Jó-
hannsson.
HÓLADÓMKIRKJA | Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir vígslubiskup prédikar og
þjónar fyrir altari. Messukaffi í boði
Hólanefndar.
Tónleikar kl. 16. Tvíund: Ólöf Þorvalds-
dóttir, fiðla, og Guðrún Edda Gunn-
arsdóttir, söngur. Aðgangur ókeypis.
HVERAGERÐISKIRKJA | Göngu-
messa kl. 17. Lagt af stað frá Hvera-
gerðiskirkju kl. 17 og gengið að lista-
verkinu Þetta líður hjá. Stoppað á 2-3
stöðum á leiðinni til íhugunar og bænar
og er gangan um klukkustundarlöng.
Boðið upp á kaffisopa í lok stund-
arinnar og akstur aftur að kirkjunni fyrir
þau sem vilja. Kirkjukórinn leiðir söng.
Prestur er Ninna Sif Svavarsdóttir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Service. Translation
into English. Samkoma á ensku kl. 14.
English speaking service. Samkoma á
spænsku kl. 16. Reuniónes en esp-
añol.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudags-
kvöld kl. 20 verður göngumessa er
hefst á tröppum Keflavíkurkirkju. Geng-
ið verður um gamla bæinn í Keflavík.
Helgi Valdimar Biering flytur fróðleik á
nokkra merkisreiti. Arnór organisti leið-
ir söng við ukulelespil. Sr. Erla fer með
bæn og blessun. Göngumessan endar
á heimili sóknarprestsins þar sem boð-
ið verður upp á kvöldkaffi.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar
úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng.
Organisti er Steingrímur Þórhallsson.
Prestur er Skúli S. Ólafsson. Kaffisopi
og samfélag á Torginu eftir messu.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni |
Guðsþjónusta kl. 14. Almennur safn-
aðarsöngur undir stjórn Sigrúnar Stein-
grímsdóttur organista. Prestur er Krist-
inn Ágúst Friðfinnsson.
SELJAKIRKJA | Gönguguðsþjónusta
safnaðanna í Breiðholti. Gengið frá
Breiðholtskirkju kl. 10 til Seljakirkju
þar sem guðsþjónusta hefst kl. 11. Sr.
Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar,
félagar úr Kór Seljakirkju leiða safn-
aðarsönginn og organisti er Tómas
Guðni Eggertsson. Veitingar að lokinni
guðsþjónustu.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi-
stund um sumarsólstöður á Lyfja-
fræðisafninu við hlið Nesstofu kl. 11.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik
Vignir Stefánsson mætir með harm-
ónikkuna. Ragnhildur Dóra Þórhalls-
dóttir leiðir almennan safnaðarsöng.
Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn.
ORÐ DAGSINS:
Ríki maðurinn og
Lasarus
(Lúk. 16)
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Seltjarnarneskirkja.
Við kveðjum nú
vin okkar og við-
skiptafélaga Árna
Björn. Ég, Haf-
steinn, kynntist Árna Birni fyrst
árið 1996 þegar ég hóf störf hjá
Línuhönnun. Undir ötulli stjórn
Árna Björns var byggð upp rúm-
lega 120 manna verkfræðistofa
sem seinna varð síðan grunnur-
inn í samruna fjögurra fyrirtækja
og til varð Efla hf.
Mikil umhyggja og aðstoð
vakti undrun og lengi velti ég því
fyrir mér hvort ske kynni að Árni
Björn væri ekki allur þar sem
hann var séður, því vandfundinn
er eins vel gerður maður. Upp frá
þeim tímapunkti þegar ljóst var
að þetta væri allt satt hófst mikill
og traustur vinskapur. Ófáar
voru veiðiferðirnar og þá var
Árni Björn leiðtoginn og leiðbein-
Árni Björn
Jónasson
✝ Árni BjörnJónasson fædd-
ist 19. júlí 1946.
Hann lést 31. maí
2020.
Hann var jarð-
sunginn 19. júní
2020.
andinn. Alltaf lið-
sinnti hann okkur,
þekkti alla steina og
tökustaði og leyndi
engu. Árni Björn
var mikill keppnis-
maður og góður
skákmaður. Með
kænsku og réttu út-
spili náðust góðir
samningar í hús og
það þýddi sigur en
hagnaður var oft
aukaatriði. Hann var stöðugt að
miðla og tengja fólk saman og var
skemmtilegur.
Darri kynnist Árna Birni árið
2006 þegar við þrír festum kaup á
Villa-Luckendorf, yfir 100 ára
gömlu, fallegu húsi í Þýskalandi.
Hann lagði allan sinn metnað í
endurbætur og að gera húsið upp
í sem næst upprunalegum stíl.
Hann lagðist í ferðalög til að
finna réttu húsgögnin. Þarna átt-
um við og fjölskyldur okkar góð-
ar stundir. Hann nýtti húsið í við-
skiptaerindum og til funda. Hann
sýndi svæðinu og sögu hússins
gríðarlegan áhuga.
Auk upplifunar í viðskiptaferð-
um standa heimsóknir hans, vina
og viðskiptafélaga til vínbænda
vítt og breytt um Evrópu upp úr.
Þar var hann virkilega á heima-
velli, þekkti vínræktarhéruð og
sérkenni þeirra. Árni Björn
skipulagði vínsmökkunarferðir
með þátttöku viðskiptafélaga.
Þessar stundir virkuðu eins og
lím í samskiptunum og þannig
byggðist upp traust. Minnisstæð
er ferð sem við fórum með honum
til Króatíu og Bosníu Hersegó-
vínu. Að vanda var Árni Björn vel
undirbúin og lék á als oddi. Hann
var búinn að lesa sér til um sögu
svæðanna og iðulega með átaka-
sögu og stríðsrekstur tuttugustu
aldar í héruðunum á takteinun-
um. Af sinni nákvæmni skráði
hann ávallt öll vín sem við smökk-
uðum skilmerkilega niður með
sinni fallegu rithönd. Hann var
eins og sannur landkönnuður
fyrri alda, lagði áherslu á að
heimsækja minna þekkt vínhér-
uð.
Árni Björn var öðlingur heim
að sækja, opnaði gjarnan áratuga
gamalt eðalvín og sagði frá sögu
þess. Margir vínbændur hafa
heimsótt þau hjón heim og sýnir
það velvilja, einlægni og hlýhug
hans til sinna viðskiptafélaga.
Árni Björn var einstaklega
hlýr og umhyggjusamur maður,
leitaðist við að spjalla við fólk og
sýna því áhuga. Alltaf kurteis og
hógvær. Árni Björn sýndi vinum
sínum en einnig starfsmönnum
sínum og fjölskyldum þeirra ætíð
mikla umhyggju og skilning, ekki
síst þegar eitthvað bjátaði á eða
einhver var veikur. Hann las
gjarnan úr bók fyrir fólk á
sjúkrabeði.
Við lítum upp til þessa góða
manns og kveðjum traustan og
sannan vin. Vottum við og fjöl-
skyldur okkar Gunnu og fjöl-
skyldu innilega samúð.
Hafsteinn og
Hróbjartur Darri
Kær vinur og veiðifélagi, Árni
Björn Jónasson, er fallinn frá.
Hann lést við urriðaveiðar í Laxá
í Aðaldal 1. júní síðastliðinn. Árni
Björn var einstaklega ljúfur og
geðþekkur maður, hæglyndur,
hjálpfús, vinnusamur og örlátur.
Árni Björn var frábær veiði-
félagi og snjall veiðimaður. Þær
eru margar ógleymanlegar veiði-
ferðirnar með honum í uppá-
haldsána, Laxá í Laxárdal.
Elsku Árni Björn, takk fyrir
margar ánægjulegar samveru-
stundir við veiðar. Takk fyrir hlý-
hug og velvilja í minn garð í
gegnum árin. Hvíl þú í friði.
Elsku Guðrún, Ragna, Jónas,
Páll og fjölskyldur. Samhryggist
ykkur innilega. Megi góður guð
styrkja ykkur í sorg ykkar.
Minningin um góðan dreng mun
ætíð lifa.
Hilmar Ragnarsson.
Messur á morgun
Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag?
Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is.
Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur
í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð
erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti.
Katla Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Okkar ástkæri,
JÓHANNES LEIFSSON
gullsmíðameistari,
lést á Landspítalanum 11. júní.
Útförin fer fram frá Seljakirkju mánudaginn
22. júní klukkan 13.
Davíð Jóhannesson Guðlaug Bjarnþórsdóttir
Ólafur Már Jóhannesson Ragna Júlíusdóttir
og fjölskyldur
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN ELÍAS GUÐJÓNSSON,
Hallgeirsey,
lést sunnudaginn 14. júní á Kirkjuhvoli.
Hann verður jarðsunginn frá Stórólfs-
hvolskirkju á Hvolsvelli þriðjudaginn 23. júní
klukkan 14.
Guðjón Jónsson Bryndís Bára Bragadóttir
Sigurður Jónsson Ástdís Guðbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
amma og langamma,
JÓNÍNA SIGRÍÐUR ÞORGEIRSDÓTTIR,
Sísí,
Skarðsbraut 17, Akranesi,
lést sunnudaginn 14. júní. Útför hennar fer
fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 23. júní klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Umhyggju - félag
langveikra barna.
Leifur Ívarsson
Sigurður Ívar Leifsson Ruchikarn Parimarn
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg frænka okkar,
KATRÍN MAGNÚSDÓTTIR,
Munaðarnesi,
er látin. Útför hefur farið fram samkvæmt
ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Soffía, Jón,
börn, tengdabörn og barnabörn
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og mágur,
JÓHANN HÓLM RÍKARÐSSON
bóndi í Gröf, Laxárdal,
lést 12. júní í faðmi fjölskyldunnar á
líknardeild Landspítalans.
Útför hans fer fram frá Hjarðarholtskirkju þriðjudaginn 23. júní
klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag
Breiðfirðinga.
Jónína Kristín Magnúsdóttir
Bergþóra Hólm Jóhannsd. Katarínus Jón Jónsson
Sigurður Loftur Jóhannsson Helga Ingibjörg Þorvaldsdóttir
Helga Dóra Hólm Jóhannsd. Ísak Sigfússon
Jóhann Elís og Þorvaldur Ingi
Ríkarður Jóhannsson
Margrét Ríkarðsdóttir Jón Bjarni Guðlaugsson
Útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
HENDRIKS SKÚLASONAR
úrsmiðs,
Víðigrund 13, Kópavogi,
fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
25. júní klukkan 13.
Íris Sigurjónsdóttir
Hjördís Hendriksdóttir Jón Smári Úlfarsson
Anna Bryndís Hendriksdóttir David Dominic Lynch
Agla Elísabet Hendriksdóttir Sigurður Hafsteinsson
Sigurjón Hendriksson Jóhanna Bragadóttir
Erla Hendriksdóttir Bragi Jónsson
og barnabörn