Morgunblaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þeir sem hafa séð Dont LookBack- heimildamyndina hafaséð Dylan hlæja og fíflast.
Viðtöl undanfarin ár, sjaldgæf
vissulega, sýna jafnframt að hann
getur talað, tjáð sig og hefur skoð-
anir á ómerkilegustu hlutum. Engu
að síður er þetta sá dægurtónlistar-
maður sögunnar sem hefur náð að
búa til hvað mesta mýtu í kringum
sig. Elvis, Len-
non, Syd Barrett
... enginn kemst
nálægt Dylan að
þessu leytinu til.
Hann er dýrk-
aður. Og mað-
urinn er
Nóbelsverðlaunahafi. Popphjartað í
mér tók aukakipp þegar það gerð-
ist, en ein sönnunin á því að það fæl-
ist dýpt og alvara í geira sem ætíð
er slengt saman við skemmtan og
afþreyingu. Er ég einn um það að
sjá svo Dylan fyrir mér skellilhlæj-
andi að þessu öllu saman? Mýtunni,
umræðunum og stanslausa snill-
ingatalinu? „Ég er dans- og söngva-
maður,“ sagði hann eitt sinn og
glotti við tönn.
Ég las einhvers staðar, gott ef
hann sagði það ekki sjálfur, að hann
væri hættur að semja lög, þau
kæmu ekki lengur til hans. Þetta er
ástæðan fyrir því að síðustu þrjár
plötur hafa allar verið tökulaga-
plötur, þar sem efniviðurinn er
meira og minna gömul amerísk
dægurlög. Shadows in the Night
(2015) innihélt lög sem Frank Si-
natra hafði fengist við (!) og hún er
frábær. Líður svo létt um að á köfl-
um er eins og maður sé að hlusta á
„ambient“ plötu eftir Brian Eno.
Rosalegt andrúmsloft og eiginlega
meistaralegt. Fallen Angels (2016)
var meira af því sama, óinnblásnari
og Triplicate (2017) var þreföld og
enn meira af því sama. Mistæk en
allar eiga þessar plötur það sameig-
Margslunginn er sá maður
Meistarinn Dans- og söngvamaður eða mögulega lítið eitt meira? Nóbelsverðlaunahafinn Bob Dylan.
inlegt að lulla áfram í torkenni-
legum gír, eru svona varla á staðn-
um einhvern veginn. Til bölvunar
og blessunar.
Áður en ég lýsi nýju plötunni
langar mig aðeins til að nefna
nokkrar af síðustu plötum Dylan.
Margir sverja reyndar og sárt við
leggja að síðasta meistaraverk Dyl-
ans sé Time out of Mind (1997) sem
hann tók upp með Daniel Lanois.
Eftir hana gaf hann út tvær plötur
með tónleikasveit sinni, Love and
Theft (2001) og Modern Times
(2006), svo þéttar að vatnið kemst
ekki á milli. Þessi dampur datt dá-
lítið niður á Together Through Life
(2009) en jólaplata Dylans það sama
ár kom honum aftur á kúrs, alger-
lega magnað verk (og það er önnur
umræða. Flettið því upp!). Tempest
(2012) fylgdi svo svipuðum línum og
allar þessar plötur. Amerísk tónlist,
í sinni víðustu mynd, í forgrunni.
Blús (mikið af honum), djass, rokka-
billí, þjóðlagatónlist, tex-mex
o.s.frv.
Forsmekkurinn að nýju plöt-
unni var svo allsvakalegur. „Mur-
der Most Foul“ er sautján mínútna
lag sem fjallar um morðið á John F.
Kennedy. Lag sem er varla lag,
hljóðfæraleikur svo fjarlægur og
afstrakt að byggingin minnti um
margt á ambient-sprettina á áður-
nefndum tökulagaplötum. „I Conta-
in Multitudes“ kom svo þremur vik-
um síðar. Styttra, en í sama gír
samt. Nöfn og vísanir út og suður
og sveittir Dylan-fræðingar garf-
andi í gömlum ljóðabókum, finnandi
heimildir og vísbendingar. Þriðja
lagið sem við höfum fengið að
heyra, „False Prophet“ gaf svo loks
til kynna að við yrðum ekki bara
svífandi um í ókennilegri hljóma-
þoku. Grimmur og dökkur blúsari,
með hörðum riffum og rífandi rödd.
Þetta er skrifað á fimmtudegi
og ég er loksins komin með plötuna
í hendur. Dómar hafa verið að birt-
ast og eru allir á eina lund. Meist-
araverk. Hún rúllar núna í forstof-
unni og mér líst vel á, verð ég að
segja. En hún þarf að vera til aðeins
lengur áður en stóridómur verður
felldur. Maður hefur svona á tilfinn-
ingunni að þessi langa bið sé að
byrgja fólki gagnrýnissýn og
ábyggilega margt til í því. En Dylan
ypptir væntanlega öxlum. Hann
þarf ekki að sanna nokkurn skap-
aðan hlut lengur.
» Viðtöl undanfarinár, sjaldgæf vissu-
lega, sýna jafnframt að
hann getur talað, tjáð
sig og hefur skoðanir á
ómerkilegustu hlutum.
Ný plata frá Bob Dylan, með nýju og frumsömdu efni, kom út í gær. Kallast hún Rough and Rowdy Ways.
Síðasta plata með slíku efni, Tempest, kom út fyrir átta árum og spennan því mikil.