Morgunblaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 4
Danir Nicolai Volqvartz, til hægri,
og Janne Færch, kona hans.
Eftir þriggja mánaða stopp fóru
Kynnisferðir í gær í fyrsta leiðang-
urinn með erlenda ferðamenn út á
land. Vegna kórónaveirunnar hefur
ferðaþjónustan verið í dái, en er
nú að komast aftur á skrið. „Þetta
er gleðidagur,“ sagði Haukur Júl-
íusson hjá Kynnisferðum við
Morgunblaðið í gær þegar lagt var
upp í ferðina í gærmorgun. Ellefu
manns af ýmsu þjóðerni voru í
hópnum sem fór Gullhringinn; það
er Þingvelli, Geysi og Gullfoss og
kom í bæinn síðdegis.
Við erum veirulaus
Meðal farþega í ferðinni í gær
voru Danirnir Nicolai Volqvartz og
Jannes Færch kona hans. „Ferða-
takmarkanir í Danmörku hafa ver-
ið miklar, en nú er landið að opn-
ast,“ sagði Volqvartz. „Við gátum
samkvæmt reglum stjórnvalda val-
ið um að fara til Noregs, Þýska-
lands eða Íslands sem varð nið-
urstaðan. Við komuna til landsins í
gær fórum við í próf á Keflavíkur-
flugvelli og erum veirulaus sam-
kvæmt smáskilaboðum sem við
fengum í morgun. Við getum því
notið ferðarinnar áhyggjulaus á Ís-
landi, en hingað höfum við komið
oft áður og finnst alltaf jafn
áhugavert.“
Út júlímánuð verða Kynnisferðir
aðeins með á áætlun ferðir um
Gullna hringinn og suðurströndina;
það er úr Reykjavík og austur í
Vík í Mýrdal. Farið er eftir bók-
unum hverju sinni. Íslendingar eru
svo farnir að stimpla sig inn og
spyrja talsvert um ferðir í Þórs-
mörk og Landmannalaugar.
„Mér finnst eftirtektarvert að
spurningarnar í ferðinni núna eru
hefðbundnar, um landið og söguna,
en ekki kórónaveiruna eða Co-
vid-19. Slíkt segir mér að rétt hafi
verið staðið að upplýsingamiðlun
vegna veirunnar og efasemdum
verið eitt með skýrum svörum,“
segir Halldór Björnsson Jensen,
leiðsögumaður og fararstjóri í leið-
angri gærdagsins. sbs@mbl.is
Kynnisferðir aftur af stað
Fyrsta ferð eftir stopp Gullhringur Engar áhyggjur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hópur Lagt af stað. Halldór Björnsson leiðsögumaður lengst til vinstri.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
Bláa lónið opnaði dyr sínar á ný í gær eftir
rúmlega þriggja mánaða lokun, en loka þurfti
lóninu 23. mars vegna kórónuveirufaraldurs-
ins. Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri
sölu-, markaðs- og vöruþróunarsviðs Bláa
lónsins, segir það mikið fagnaðarefni að geta
tekið á móti gestum á ný. „Það var sérstaklega
ánægjulegt að geta boðið gesti velkomna á ný.
Bláa lónið skartaði sínu fegursta og veðrið lék
við gesti. Konur voru leystar út með glaðningi
í tilefni kvenréttindadagsins og gestum var
meðal annars boðið upp á flotupplifun og ýms-
ar kræsingar. Dagurinn var fallegur og við er-
um glöð með góðar og jákvæðar viðtökur,“
segir Helga. Hún segir Íslendinga hafa verið í
miklum meirihluta við opnunina. „Þó svo að
áætlaður fjöldi gesta í sumar verði ekki í lík-
ingu við það sem við eigum að venjast á þess-
um árstíma virðist áhugi Íslendinga vera mik-
ill og þeir áhugasamir að upplifa allt það sem
Bláa lónið hefur upp á að bjóða. Við hlökkum
sérstaklega til þess að taka á móti þeim.“
Helga segir gesti hafa verið um 400 talsins.
Eitthvað var um erlenda ferðamenn en megin-
þorri gesta voru þó Íslendingar. Meðan á lok-
uninni stóð var tíminn nýttur til þess að sinna
framkvæmdum og umbótum á staðnum. Auk
lónsins sjálfs hafa tvö hótel og fjórir veitinga-
staðir fyrirtækisins opnað að nýju. Bláa lónið
býður nú upp á ýmis tilboð til að höfða til Ís-
lendinga, bæði fyrir lónið sjálft og svo hótelin
sem þar eru.
Morgunblaðið/Eggert
Bláa lónið Fjölmennt var í Bláa lóninu í gær eftir að það var opnað að nýju eftir þriggja mánaða lokun vegna kórónuveirufaraldursins. Íslenskir gestir voru í miklum meirihluta.
Hundruð gesta í lóninu á fyrsta degi
Bláa lónið var opnað á ný eftir rúmlega þriggja mánaða lokun vegna heimsfaraldurs kórónuveiru
Tilnefningar óskast
til viðurkenninga
umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar
eftir tilnefningum til verðlauna sem
afhent verða á Degi íslenskrar náttúru,
16. september.
Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins verða veitt
fjölmiðli, ritstjórn, blaða- eða fréttamanni,
dagskrárgerðarfólki, ljósmyndara
eða rithöfundi fyrir umfjöllun um
umhverfismál og/eða íslenska náttúru
undangengna tólf mánuði (ágúst – ágúst).
Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar
í Brattholti verður veitt einstaklingi
sem hefur unnið markvert starf á sviði
náttúruverndar.
Tilnefningar ásamt rökstuðningi skal
senda í síðasta lagi 20. ágúst 2020 á
netfangið postur@uaris
Stjórnarráð Íslands
Umhverfis- og
auðlindaráðuneytið