Morgunblaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Ég var óneitanlega kvíðinn fyrir
byrjuninni, vissi eftir dapurt smá-
laxasumarið í fyrra að það gæti orðið
lítið af tveggja ára laxi í ánni þegar
við opnuðum, en sem betur fer var
mun meira af honum en ég bjóst við.
Við erum komin í 120 laxa núna og
hollið í gær endaði með 31 lax, enda
er smálaxinn farinn að ganga af vax-
andi krafti,“ sagði Einar Sigfússon
staðarhaldari við Norðurá.
Hann sagði Sigurð Má Einarsson
fiskifræðing hafa komið við við ána í
vikunni og spurt sig kankvíslega:
„Er það byrjað?“ Sigurður átti við
hvort smálaxinn væri farin að mæta
en hann hefur spáð öflugum smá-
laxagöngum í ár.
„Ég spái að þetta eigi eftir að
verða skemmtilegt sumar hér við
Norðurá – ég spái 2.300 löxum plús!“
sagði Einar glaðbeittur.
Nú er vaxandi straumur með stór-
streymi í næstu viku og Einar segir
smálaxagöngur hafa byrjað að sýna
sig nú síðustu daga og gangi laxinn
hratt upp ána, endið vatnið gott og
hlýtt fyrir árstíma, hafi verið ellefu
gráður á fimmtudag. Þegar vatnið sé
kaldara fari laxarnir hægar yfir.
„Það er kominn fiskur upp í Poka og
á milli fossa, þegar hann róast þá fer
hann að taka enn betur,“ sagði hann.
„Fáir fiskar og langt á milli“
Veiðimenn sem hafa lagt flugur
sína fyrir laxa í fyrstu hollum sum-
arsins hafa margir upplifað það sama
og veiðimaður sem var í öðru hollinu
í Kjarrá. „Það eru fáir fiskar og langt
á milli þeirra,“ sagði hann. Og það
kemur ekki á óvart eftir hörm-
ungagöngur smálax í fyrra, að ekki
skili sér margir stórlaxar sem eru jú
af sömu kynslóð seiða sem gengu til
hafs. Opnunarhollið í Kjarrá fékk 30
laxa, það næsta 13 og hið þriðja átta.
Mest voru það fallegir stórlaxar sem
veiddust hér og þar í ánni. En á
næstsíðustu vakt varð greinileg
breyting þegar skyndilega birtist
smálaxaganga í hinum góða veiðistað
Runka á neðsta svæði. Vanur veiði-
maður var þar með dóttur sinni og
ráðlagði henni að setjast bara niður
og njóta útsýnisins meðan laxarnir
róuðust og hættu að stökkva og
skvetta sér. Sem þau gerðu og tóku
að kasta eftir hálftíma – en þá var
gangan rokin upp úr hylnum. Að
minnsta kosti einn var þó eftir og
náði dóttirin honum. Önnur ganga
var mætt í hylinn morguninn eftir og
veit á gott, nokkrum dögum áður en
stórstreymt er.
Úr Vatnsdal bárust þær fréttir að
félag Björns K. Rúnarssonar og
Sturlu Birgissonar, sem er staðar-
haldari í Ásum, tæki við rekstri
Vatnsdalsár af Pétri Péturssyni sem
hefur verið í forsvari þar síðan 1997.
Þriðji eigandinn í nýja félaginu er
breska gítarkempan Eric Clapton,
sem á þriðjungshlut, en hann hefur
veitt í Vatnsdal árum saman undir
leiðsögn Sturlu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Togast á Þorsteinn J. landar líflegum 64 cm smálaxi í Runka í Kjarrá. Áin var skoluð síðustu daga og veiðin hæg.
Smálaxinn tekinn að
ganga af vaxandi krafti
„Er það byrjað?“ Clapton meðal leigutaka í Vatnsdal
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Takmarkaðar veiðar verða leyfðar í
Andakílsá í sumar en veiðar hafa leg-
ið niðri frá því á árinu 2017 þegar set
barst fyrir slysni úr lóni Andakíls-
árvirkjunar og fyllti hylji og lagðist
yfir hrygningarsvæði. Veiðarnar
verða í tilraunaskyni til að afla upp-
lýsinga um veiðstaði og hvernig fisk-
urinn tekur við sér. Veiðileyfi verða
ekki seld.
Frá því umhverfisslysið varð hef-
ur verið unnið að hreinsun árinnar á
kostnað Orku náttúrunnar og sleppt
í hana seiðum til að vega á móti þeim
árgöngum sem duttu út.
Ekki sömu hyljir og áður
Ragnhildur Helga Jónsdóttir í
Ausu, formaður Veiðifélags Anda-
kílsár, er nokkuð ánægð með stöð-
una. Tekur þó fram að áin sé ekki
orðin jafngóð og hún var. Aur sé enn
þá í henni en hafi færst neðar. Hyljir
hafi verið í sæmilegu ástandi við
skoðun á dögunum. Hyljir séu þó
ekki þeir sömu og var en hún tekur
fram að þeir geti eigi að síður orðið
góðir. Það eigi eftir að koma í ljós.
Svo eigi eftir að sjá í hve miklu
mæli lax skili sér í sumar og hvernig
tilraunaveiðarnar gangi. Sleppt var
30 þúsund seiðum af stofni árinnar á
síðasta sumri og öðru eins í sumar.
Ragnhildur segir að áfram verði
sleppt seiðum en í minna mæli.
Lífríkið er að jafna sig
Sigurður Már Einarsson, fiski-
fræðingur hjá Hafrannsóknastofn-
un, segir að lífríki árinnar sé smám
saman að jafna sig og telur að það
hafi í raun gerst ótrúlega hratt.
„Hún hefur hreinsað botninn nokkuð
vel og þörunga- og smádýralíf er
orðið virkt og fiskur farinn að
hrygna,“ segir Sigurður og bætir því
við að von sé á laxi í sumar úr seiða-
sleppingum síðasta sumars.
Veiðar hefðu átt að hefjast í Anda-
kílsá í dag, eftir veiðidagatalinu, og
standa út september. Tilraunaveið-
arnar á vegum veiðifélagsins hefjast
15. júlí. Veitt verður á eina stöng, í
stað tveggja venjulega, ekki í fullan
tíma og með ströngum skilyrðum.
Veitt í tilrauna-
skyni í sumar
Lífríki Andakílsár er að jafna sig
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Andakílsá Reynt hefur verið að dæla aur úr ánni frá því slysið varð.
Út er komin hjá Bókaútgáfunni
Hólum bókin Vestmanneyjar - af
fólki, fuglum og ýmsu fleiru, eftir
Sigurgeir Jónsson sem áður hefur
skrifað fjölmarg-
ar bækur um
Eyjar og Eyja-
menn. Nú fjallar
hann um æsku-
slóðir sínar í
byggðinni fyrir
ofan hraun í
Vestmanna-
eyjum, búskap-
arhætti og fólkið
sem þar bjó; rifjar upp kynni sín af
sérstæðum persónum eins og séra
Halldóri Kolbeins, Nýju í Suð-
urgarði og Munda í Draumbæ.
Sigurgeir var á ferðinni í Reykja-
vík í gær og kom færandi hendi til
þríeykisins margfræga, þar sem
hann afhenti fyrstu eintök af bók-
inni. Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir og Víðir Reynisson yf-
irlögregluþjónn eru báðir
Eyjamenn og að sjálfsögðu fékk
Alma D. Möller landlæknir einnig
eintak.
Í bókinni fjallar Sigurgeir einnig
um fjóra eftirminnilega félaga sína,
þá Bjarnhéðin Elíasson, Sævar í
Gröf, Ása í Bæ og Guðmund kantor
og segir af þeim sögur. Ýmis sér-
kenni Vestmannaeyinga á fyrri tíð
eru líka tíunduð, t.d. vatnsbúskap-
urinn í Eyjum áður en vatnsleiðsla
var lögð þangað ofan af landi, auk
þess sem rifjaðar eru upp minn-
ingar frá eldgosinu 1973.
Sigurgeir segir enn fremur frá
nokkrum minnisstæðum atvikum í
lífi sínu, svo sem brúðkaups-
ferðalagi þeirra Katrínar L. Magn-
úsdóttur, og stærðfræðikennslu
sem hann fékk á skólaárum sínum í
Kennaraskólanum hjá vistmanni á
Kleppi. Svo plataði hann mann og
annan í gervi ljóðskáldsins Jóns
Kára, svo nokkur dæmi séu nefnd
um frásagnir í bókinni.
Ný bók með sögum af
fólki og fuglum í Eyjum
Ljósmynd/Gunnar Kr. Sigurjónsson
Afhending Sigurgeir Jónsson kom færandi hendi í gær með eintök af bók-
inni til þríeykisins Þórólfs Guðnasonar, Víðis Reynissonar og Ölmu Möller.
Þríeykið fékk
fyrstu eintökin að
gjöf í gær
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Skoðið // www.hjahrafnhildi.is
Fylgið okkur á facebook
SKOÐIÐNETVERSLUNLAXDAL.IS
LÉTTAR
SUMAR
YFIRHAFNIR
VIND OG VATNSVARÐAR
20%
afsl
áttu
r
Opið laugard. 10-15
Skipholti 29b • S. 551 4422
SMARTLAND