Morgunblaðið - 20.06.2020, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 2020
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
liljahrund@mbl.is
Þingmenn stjórnarandstöðu flokka á
Alþingi segjast ekki hafa heyrt af
þeim möguleika ríkisstjórnarflokk-
anna að rifta samkomulagi sem
kveður á um að stjórnarandstaðan
fari með formennsku í þremur fasta-
nefndum Alþingis. „Við höfum ekk-
ert heyrt af því að þetta væri í um-
ræðunni nema í fjölmiðlum. Það eru
fundir mörgum sinnum á dag um
hvernig eigi að ljúka þessu þingi en
þetta hefur ekkert verið rætt þar og
ekki heldur innan nefndanna. Ef
stjórnarflokkarnir eru óánægðir
verða þeir bara að finna út úr því,“
segir Helga Vala Helgadóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar og for-
maður velferðarnefndar. Samkvæmt
samkomulagi sem gert var við upp-
haf kjörtímabilsins fer stjórnarand-
staðan með formennsku í stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefnd, umhverfis-
og samgöngunefnd og velferðar-
nefnd. Heimildir Morgunblaðsins
herma að töluverðrar óánægju gæti
meðal þingmanna stjórnarflokkanna
með fyrirkomulagið.
Erfitt á báða bóga
Steingrímur J Sigfússon, forseti
Alþingis, segir fyrirkomulagið vera
flókið fyrir báða aðila. „Það er ekki
hægt að segja annað en að það hafi
gengið á ýmsu í kringum þetta. Þetta
er ekki einföld staða, fyrir hvorugan
aðilann. Þetta gerir ákveðnar kröfur
til beggja aðila og það kannski geng-
ur misvel að uppfylla þær,“ segir
Steingrímur. Hann segir fyrirkomu-
lagið hafa komið til sögunnar í kjöl-
far sameiningar Alþingis í eina mál-
stofu árið 1991. „Fyrstu
stjórnarandstæðingarnir eftir það
eru formenn í nefndum á því kjör-
tímabili og því næsta, ég var til dæm-
is formaður sjávarútvegsnefndar
sem stjórnarandstæðingur frá 1995
til 1998. Síðan var þessu hætt, það
náðist ekki samkomulag um þetta, á
meðan á einhverjum kjörtímabilum
stóð. Með breytingum á þingsköpum
2011 er það sett skýrt inn að það sé
almenna reglan að menn deili for-
ystustörfum innan þingsins með
þessum hætti. Þetta var við lýði á ár-
unum 2013 til 2016 með fínum ár-
angri, en það náðist ekki samkomu-
lag á stutta tímabilinu 2016 til 2017.
Þegar þessi ríkisstjórn er mynduð
var boðið upp á þetta og niðurstaðan
var að stjórnarandstæðan fengi for-
mennsku í þessum þremur nefnd-
um,“ segir Steingrímur. Hann segir
það væntanlega vanefndir á núver-
andi samkomulagi ef að formennsk-
an væri tekin frá stjórnarandstöð-
unni í einhverri nefndanna. „Það
væru án efa vanefndir á samkomu-
laginu ef formennskan væri tekin af
stjórnarandstöðunni. Það væri erfitt
að líta á þetta öðruvísi en svo að sá
hluti samkomulagsins væri að
minnsta kosti fallinn. Menn þyrftu
síðan að meta hvað yrði með aðra
þætti þess og finna samstöðu von-
andi um það,“ segir Steingrímur.
Mótfallin fyrirkomulaginu
Samkvæmt samkomulaginu fara
þingmenn Miðflokksins, Pírata og
Samfylkingarinnar með formennsku
í nefndunum þremur. Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður og
þingmaður Miðflokksins, segist allt-
af hafa verið mótfallin hugmyndinni
um að stjórnarandstaðan fari með
formennsku í nefndum. „Bæði þegar
ég hef verið í meirihluta og minni-
hluta og það eru ýmsar ástæður fyrir
því. Mér finnst stjórnarmeirihlutinn
einfaldlega eiga að bera ábyrgð á
sínum málum. Hitt getur skapað ým-
is vandamál. Hins vegar er í gildi
samkomulag og samningar verða að
standa þó að ég sé almennt þessarar
skoðunar. Það var búið að semja um
þetta fyrir þetta kjörtímabil og ef
menn vilja gera breytingar á því er
það ekki hægt án þess að fara yfir
nefndarskipan í heild sinni,“ segir
Sigmundur. Halldóra Mogensen,
þingflokksformaður Pírata, segir
það vera í ósamræmi við stjórnar-
sáttmála ríkisstjórnarinnar ef að
samkomulaginu verði slitið. „Ég hef
svo sem alveg orðið vör við þetta eða
grunað að þau skyldu fara í þessar
pælingar. Það væri bara í hrópandi
ósamræmi við stjórnarsáttmálann.
Fyrir utan það að þetta sprettur
kannski upp frá því að Þórhildur
Sunna segir af sér í stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd. Ef þetta er svar
ríkisstjórnarinnar við því væri það
mjög furðuleg niðurstaða,“ segir
Halldóra. „Ætla þau að hafa þing-
mann meirihlutans sem formann
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar?
Nefnd sem var búin til eftir hrun til
að veita framkvæmdavaldinu aðhald.
Hugmyndin fyrir þá nefnd var alltaf
að stjórnarandstaðan myndi leiða þá
nefnd,“ segir Halldóra. „Ef þetta er
svar ríkisstjórnarinnar frekar en að
líta inn á við og skoða þennan sam-
skiptavanda sem hefur verið, ef svar-
ið er að taka formennskuna af
stjórnarandstöðunni því við erum of
erfið fyrir þau, það væri í besta falli
furðulegt,“ segir Halldóra.
Flókin staða fyrir báða aðila
Forseti Alþingis segir samkomulag um formennsku minnihlutans flókið fyrir báða aðila Þingmað-
ur Pírata segir það í ósamræmi við stjórnarsáttmála fari formennska nefnda til þingmanna meirihlutans
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Ágreiningur er uppi um formennsku minnihlutans í nefndum.
Steingrímur J.
Sigfússon
Helga Vala
Helgadóttir
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Halldóra
Mogensen
Höfum fengið í sölu stórglæsilegt samtals 609 fm einbýlishús á sjávarlóð
við Hrólfsskálavör 2 á sunnanverðu Seltjarnarnesi. Einstakt útsýni er úr
húsinu, sjávar- og fjallasýn. Húsið er teiknað af arkitektum hjá Granda
Studio. Innanhússhönnun var í höndum Grímu Bjargar Thorarensen hjá
GBT Interiors og Selmu Ágústsdóttur hjá Namó Desing.
Tvöfaldur bílskúr. Mjög mikil lofthæð er í húsinu. Gólfsíður gluggar með rennihurðum. Allar
innréttingar í húsinu eru sérsmíðaðar. Gegnheilt síldarbeinsparket úr reyktri eik. Marmari.
Innbyggt hljóðkerfi. Stofa, borðstofa, eldhús, fjögur herbergi, bókaherbergi, æfingasalur og
fimm baðherbergi. Steypt setlaug, heitur pottur og gufubað. Stórar þaksvalir og einnig stórar
útsýnissvalir. Einstök staðsetning á sjávarlóð.
Sverrir Kristinsson
Lögg. fasteignasali
S. 861 8514
sverrir@eignamidlun.is
HRÓLFSSKÁLAVÖR
EINSTÖK EIGN
Á SJÁVARLÓÐ Á
SELTJARNARNESI
SALA FASTEIGNA SÍÐAN 1957 GRENSÁSVEGUR 11 SÍMI 588 9090 WWW.EIGNAMIDLUN.IS