Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. www.kofaroghus.is - sími 553 1545 339.000 kr. Tilboðsverð BREKKA 34 - 9 fm 518.000 kr. Tilboðsverð STAPI - 14,98 fm 389.000 kr. Tilboðsverð NAUST - 14,44 fm 34mm 34mm44mm Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik má finna á vef okkar VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM! Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Fært er orðið frá Hringveginum á Mývatnsöræfum alla leiðina í Herðubreiðarlindir, að Drekagili og í Öskju. Þórir Stefánsson hjá Vega- gerðinni á Húsavík fór þessa leið nú í vikunni, heflaði burt ójöfnum og ruddi snjó. „Hér fyrir norðan hafa verið mikil hlýindi að undanförnu svo snjórinn var ekki mikill, nema rétt á smá kafla fyrir innan Drekagil áður en komið er á Vikraplan. Nú er ég á leiðinni aftur til byggða, er að fínpússa veginn og búinn að mæta tveimur bílum á leiðinni,“ sagði Þór- ir við Morgunblaðið í gær. Margar fleiri leiðir á hálendinu eru nú orðnar færar, svo sem inn í Kverkfjöll. Nokkrir dagar eru síðan Kjalvegur var opnaður, svo leiðin er greið milli Biskupstungna og Blöndudals. „Vegurinn er heflaður, flottur og fær öllum bílum. Alveg drossíufæri. Ástandið hefur ekki verið svona gott í mörg ár. Umferðin er þó ekki mikil, en ég veiti því eft- irtekt að nú er maður aðeins farinn að sjá aftur og mæta útlendingum hér á Kjalvegi. Slíkt veit á gott og segir mér að landið sé að rísa og ferðaþjónustan að ná sér á strik að nýju,“ segir Páll Gíslason stað- arhaldari í Kerlingarfjöllum. Sprengisandsleið er enn lokuð og ekki verður hugað að opnun hennar fyrr en eftir svo sem tíu daga héðan í frá, að sögn Jóns Ingólfssonar vega- verkstjóra á Húsavík. Þar kemur til að enn er talsverður snjór á norður- hluta leiðarinnar, það er milli Nýja- dals og Fjórðungsvatn og vegurinn þess utan mjög blautur. Á austan- verðu landinu er ófært frá Kára- hnjúkavegi í Snæfell vegna aur- bleytu, en flestar leiðir aðrar orðnar færar. Ljósmynd/Þórir Stefánsson Snjómokstur Enn er talsverður snjór nærri Öskju, en hefillinn komst í gegnum stálið svo nú er leiðin greið. Fært í Dreka og Öskju en Sprengisandur enn lokaður  Drossíufæri á Kjalvegi  Aurbleyta við Snæfellið eystra Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Kosningar til embættis forseta Ís- lands fara fram í dag. Kjörfundur hefst klukkan 9 og lýkur klukkan 22. Heildarfjöldi á kjörskrá eru 252.217 og skiptist sá fjöldi nær jafnt milli kynjanna. Alls eru 125.667 karlar kjörgengir og 126.550 konur. Langstærstur hluti kjörgengra einstaklinga kemur úr Suðvestur- kjördæmi, eða rétt um 29%. Alls eru 72.695 einstaklingar á kjörskrá í kjör- dæminu. Önnur kjördæmi skiptast þannig að 37.439 kjósa í Suðurkjör- dæmi, 46.059 í Reykjavíkurkjördæmi norður, 44.818 í Reykjavíkurkjör- dæmi suður, 21.511 í Norðvesturkjör- dæmi, 29.695 í Norðausturkjördæmi. Snemma í kvöld munu kjörstjórnir hefjast handa við flokkun atkvæða. Í kjölfar lokunar kjörstaða hefst form- leg talning. Hefst talningin um klukk- an 22 þegar öllum kjörstöðum hefur verið lokað. Skömmu síðar eða rétt um hálftíma eftir að kjörfundi lýkur fara fyrstu tölur að birtast úr öllum kjördæmum. Ráðgera má að tölur fyrir landið allt birtist fyrir miðnætti. Stutt bið eftir fyrstu tölum Reglur kveða á um að opna verði kjörstaði milli klukkan 9 og 12 að morgni. Þó er misjafnt hversu lengi kjörstaðir eru opnir og fer slíkt eftir aðstæðum á hverjum stað. Kjör- stjórnir geta tekið ákvörðun um að byrja síðar og hætta fyrr. Nálgast má kjörfundarupplýsingar á vefjum sveitarfélaga. Kjósendur greiða at- kvæði í sínum heimahverfum eða bæjum, skv. nánari upplýsingum frá kjörstjórnum á hverjum stað. Oft og tíðum hafa fyrstu tölur kosn- inga borist úr Suðvesturkjördæmi. Ekki er ólíklegt að svo verði í ár. Að sögn Hugins Freys Þorsteinssonar, formanns yfirkjörstjórnar kjördæm- isins, má búast við fyrstu tölum um hálftíma eftir að kjörstöðum lokar. „Það er aðeins breytilegt hvenær kjörstaðir opna en flestir opna um klukkan 9. Þeim er síðan lokað klukk- an 22 og rétt um hálftíma síðar fara að berast fyrstu tölur,“ segir Huginn. Óvíst er hvenær fyrstu tölur verða birtar úr Reykjavíkurkjördæmunum tveimur, en ráðgera má að slíkt verði rétt eftir klukkan 23. „Það fer eftir framgangi talningar. Við hefjum taln- ingu þegar kjörstaðir loka klukkan 22. Við gerum ráð fyrir að það verði á bilinu 23-23:20,“ segir Erla S. Árna- dóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Í kjör- dæmunum norðanlands er aðeins breytilegt hvenær kjörstaðir opna. Fyrstu kjörstaðir opna klukkan 9 og ráðgert er að tölur taki að birtast upp úr klukkan 23. „Við byrjum að flokka áður en lokar og svo hefst talning þegar kjörstöðum hefur verið lokað. Rétt um klukkan 23 ættu að berast tölur héðan,“ Gestur Jónsson, for- maður yfirkjörstjórnar í Norðaustur- kjördæmi. Forseti kosinn í 9. sinn Líkt og áður hefur komið fram eru tveir í framboði til embættis forseta Íslands. Frambjóðendurnir eru Guðni Th. Jóhannesson, sitjandi for- seti, og Guðmundur Franklín Jóns- son, viðskipta- og hagfræðingur. Guðni hefur notið umtalsvert meira fylgis í skoðanakönnunum í aðdrag- anda kosninganna. Er þetta jafn- framt í 9. sinn sem Íslendingar kjósa forseta í almennum kosningum. Sá fyrsti, Sveinn Björnsson, var aftur á móti kjörinn af Alþingi við lýðveld- isstofnunina árið 1944. 252 þúsund manns á kjörskrá í dag  Gera má ráð fyrir að fyrstu tölur birtist skömmu eftir lokun kjörstaða  Líklegt að línur skýrist snemma í kvöld  Forsetakjör í 9. sinn frá lýðveldisstofnun  Kjörstaðir opna víðast hvar klukkan 9 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kosningar Um 53 þúsund manns kusu utan kjörfundar og var mikill erill í Laugardalshöllinni í gær. Tekist hefur að ná samkomulagi um þinglok og er vonast til þess að störfum þingsins verði lokið á mánudaginn. Þetta staðfesti Stein- grímur J. Sigfússon, forseti Alþing- is, í samtali við mbl.is í gær. Í sam- komulaginu felst meðal annars að eitt þingmannamál frá hverjum flokki verður afgreitt fyrir þinglok og að þing komi stutt saman undir lok ágúst. „Það tókst að lokum að fylla út í rammann sem lagt var upp með í samkomulagi við forystumenn flokkana í byrjun júní. Nú er búið að sortera það út hvað á að afgreiða á þessu vori. Það er bara mjög gott að það loksins tókst. Við erum að hamast við að taka fyrir þau mál sem eru á þeim lista,“ segir Stein- grímur. Hann útskýrir að ekki er öruggt að takist að afgreiða öll mál á mánudag og að fundur geti staðið fram á nótt. Þá gæti farið svo að einnig verði fundað á þriðjudag. „Það horfir ágætlega með það að þetta sé að hafast.“ gso@mbl.is Samkomulag um þinglok í höfn  Eitt mál afgreitt frá hverjum flokki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.