Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Áætluð framlög Jöfnunarsjóðs sveit- arfélaga til sameiningar sveitarfé- laga í ár nema 800 milljónum króna. Framlög sjóðsins til verkefna af því tagi hafa margfaldast á undanförn- um árum, eins og sést á meðfylgj- andi línuriti. Stjórnvöld stefna að því að gera átak í sameiningu sveitarfélaga á næstu sex árum með því að lögbinda lágmarksfjölda íbúa í sveitarfélagi. Jöfnunarsjóði er ætlað hlutverk í því verki. Tvö verkefni studd í ár Unnið hefur verið að samein- ingum á nokkrum stöðum, óháð nýrri stefnu stjórnvalda og einhver af þeim sveitarfélögum sem reiknað er með að þurfi að sameinast öðrum eru byrjuð að undirbúa sig. Dæmi um það er Dalabyggð sem fengið hefur 4,4 milljóna króna styrk úr Jöfnunarsjóði til að gera athugun á því hvert er vænlegast að snúa sér. Þreifingar um sameiningu fimm sveitarfélaga á Suðurlandi hafa stað- ið lengur yfir en þau hafa fengið 23,8 milljón króna styrk á þessu ári til sinnar vinnu. Að þeim viðræðum standa Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdals- hreppur og Skaftárhreppur. Stuðningur við sameiningu sveitarfélaga, bæði vegna undirbún- ings sameiningar og verkefna að loknu því ferli, er hluti af lögbundnu hlutverki sjóðsins, samkvæmt upp- lýsingum samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytisins. 800 milljónir til sameininga í ár Framlög v. samein- inga sveitarfélaga M.kr. 2013-2020 700 600 500 400 300 200 100 0 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 800 413 330 93 Áætlun fyrir 2020 28 m.kr. það sem af er ári  Jöfnunarsjóður styrkir verkefni Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Álagning hjá okkur hefur verið að lækka þannig að þjónustan hefur skilað sér í lægra verði til við- skiptavina okkar,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi. Vísar hann í máli sínu til verðlækkana er tengja má innleiðingu sjálfsaf- greiðslukassa í verslunum Krón- unnar. Hefur um- ræddum afgreiðslukössum fjölgað verulega hér á landi und- anfarin ár. Að sögn Eggerts hefur slíkt leitt til verðlækkunar vara í verslunum fyrirtækisins. Þá er afgreiðslan sömuleiðis liður í aukinni þjónustu við viðskiptavini. „Þetta hefur klárlega skilað sér til viðskiptavina. Laun hafa hækkað svakalega og fækkun fólks var ein af þeim leiðum til að tryggja gott verð. Við lítum líka þannig á þetta að þetta sé skref í því að bæta þjónustuna. Þú ferð hraðar í gegn og þarft ekki að standa í röð,“ segir Eggert og bætir við að þróunin muni halda áfram næstu ár. Þegar fram líða stundir verði viðskiptavinum ekki gert að standa í röð til að ganga frá kaupum á vörum. „Eftir nokkur ár held ég að fólk muni afgreiða sig sjálft án þess að þurfa að fara á kassa. Þetta er spurning um tíma. Þú verður bara með símann og stimplar vörurnar inn sjálfur,“ segir Eggert. Ólíkt forstjóra Festi segir Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá verðlagseftirliti Alþýðusambands Ís- lands (ASÍ), að verð hafi ekki lækk- að. Það sé jafnframt ekki nýtt enda skili lækkun rekstrarkostnaðar fyr- irtækja sér sjaldan í hagstæðara verði. Þannig hafi verð hækkað tals- vert undanfarin misseri. Verðhækkanir skili sér strax „Ef við tökum tímabilið fyrir far- aldur kórónuveiru lækkaði verð ekk- ert. Á þessu tímabili, frá því að kass- arnir komu og þangað til veiran barst til landsins, var engin lækkun. Það er þó auðvitað ekki hægt að al- hæfa eða staðfesta hvort einhverjir aðrir þættir hafi haft þar áhrif,“ seg- ir Auður og bætir við að verð hafi hækkað talsvert eftir að heimsfar- aldur kórónuveiru barst hingað til lands. Það megi þó að hluta rekja til gengisbreytinga íslensku krón- unnar. Að hennar sögn er sjaldgæft að verðlækkanir skili sér til við- skiptavina. „Við sjáum verð mjög sjaldan lækka á meðan hækkun skil- ar sér yfirleitt strax,“ segir Auður. Segja verðlag lækka með sjálfsafgreiðslu  Deildar meiningar um verðlækkanir  Sjálfsafgreiðsla eykur þjónustuna Morgunblaðið/Eggert Afgreiðsla Nýir afgreiðslukassar eiga að lækka verð í verslunum. Eggert Þór Kristófersson Snorri Másson snorri@mbl.is Eldsvoði á Bræðraborgarstíg eitt mun að öllum líkindum koma til með að hafa áhrif á eldvarnir á Íslandi, að sögn Jóns Viðars Matthíassonar, slökkviliðsstjóra á höfuðborgar- svæðinu. „Saga eldvarna er því miður oft hörmungasaga. Það kemur eitthvað fyrir, menn læra af því og færa það síðan inn í löggjöfina og endurbæta þar með hlutina. Hvort það muni eiga sér stað núna kemur í ljós þeg- ar Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skilar sinni skýrslu, því það er þeirra hlutverk að hafa áhrif á lög- gjöf, reglugerðir og annað út frá þeirri reynslu sem við göngum í gegnum,“ segir Jón sem telur að bruninn sé einn sá mannskæðasti hér á landi á síðastliðnum 30 - 40 ár- um. 115 flutt úr húsinu á 13 árum Sjónarmiðin sem Jón segir að slökkviliðið muni setja fram í þessu samhengi muni meðal annars varða ábyrgð eigenda. „Þú gerir ekki breytingar á hús- næði nema að fá nýtt byggingaleyfi og að menn séu meðvitaðir um allt slíkt. Við erum að lenda í því alltof mikið núna að menn séu ekki með- vitaðir, breyta húsnæði og kollvarpa allri starfsemi, segir hann. Annað sjónarmið sem slökkviliðið mun koma á framfæri að sögn Jóns Viðars er að búið verði þannig um hnútana að einhvers konar flöggun eigi sér stað í kerfi þjóðskrár ef íbúatala er orðin of há miðað við fer- metrafjölda. 73 eru með skráð lögheimili á Bræðraborgarstíg samkvæmt Þjóð- skrá, sem stingur í stúf við þær upp- lýsingar lögreglu að sex hafi verið búsett á efri hæðinni. Samkvæmt upplýsingum sem Þjóðskrá hefur veitt Morgunblaðinu hefur enginn þessara 73 verið skráð- ur þar til búsetu lengur en frá 2015. Samtals hafa 188 einstaklingar skráð sig til búsetu í húsinu frá 2007 og því hafa 115 manns flutt úr hús- inu frá þeim tíma. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fundur Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn og Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri fóru yfir málin. Mun að öllum líkindum hafa áhrif á eldvarnir  Slökkviliðsstjóri segir sögu eldvarna „hörmungarsögu“ Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ARCO gólflampi Achille & Pier Giacomo Castiglioni 1962 Verð 349.000,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.