Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
Borgartúni 7C, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
RÍKISKAUP
SKATTURINN OG SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI (SRS) - LEIGUHÚSNÆÐI
Athygli er vakin á breyttum fyrirspurnarfresti og skilatíma tilboða.
21161 - Ríkiskaup f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu fyrir nýjar
höfuðstöðvar Skattsins og SRS. Umsjónaraðili er Framkvæmdasýsla ríkisins.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 30 ára, fullbúið til notkunar með föstum innréttingum
og búnaði, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um sérhúsnæði á góðum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu,
gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi og næg bílastæði bæði fyrir viðskiptavini og starfs-
fólk. Einnig er gerð krafa um að húsnæðið liggi vel við almenningssamgöngum m.a. fyrirhugaða borgarlínu.
Skilyrði er að húsnæðið verði tilbúið til notkunar eigi síðar en 18 mánuðum eftir undirritun leigusamnings.
Húsnæðisþörf Skattsins og Skattrannsóknarstjóra er áætluð um 9.800 fermetrar. Húsnæðið skal vera skrifstofu-
og þjónustuhúsnæði sem miðast við þarfir Skattsins og SRS. Æskilegt er að húsnæðið sé ekki meira en 6 hæðir.
Tilboðsgjafar (leigusalar) mega setja fram í leigutilboði þann valkost að bjóða ríkinu að taka á leigu til viðbótar,
við áætlaða 9.800 fermetra fyrir Skattinn og SRS, allt að 2.000 fermetra af hefðbundnu skrifstofu- og þjónustu-
húsnæði á sömu lóð og er þá miðað við að aðrir ríkisaðilar myndu nýta umrædda 2.000 fermetra fyrir sína
starfsemi.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla voru aðgengilegar í rafræna kerfinu
TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/ miðvikudaginn 3. júní 2020.
Fyrirspurnir varðandi auglýsinguna (Skatturinn og SRS – Leiguhúsnæði) skulu sendar rafrænt í gegnum kerfið
TendSign og verða svör birt þar.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 14. ágúst 2020 en svarfrestur er til og með 21. ágúst 2020.
Leigutilboðum skal skila rafrænt í TendSign eigi síðar en kl. 12:00, mánudaginn 31. ágúst 2020. Ekki verður
tekið við tilboðum eftir að tilboðsfresti lýkur. Tilboðsgjafar eru því hvattir til að skila tilboðum tímanlega.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið
1. mgr. 11. gr. Framboðið húsnæði þarf að vera komið vel áleiðis í byggingarfasa til að geta komið til álita.
Skipulag lóðar og ytri hönnun þarf jafnframt að liggja fyrir.
Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa m.a. að innihalda eftirfarandi upplýsingar:
• Afhendingartíma húsnæðis
• Staðsetningu, stærð og aldur húsnæðis og tillöguteikningar auk upplýsinga um efnisval s.s. veggjagerða,
gólfefna o.s.frv.
• Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu
• Leiguverð per/m2 og heildarleiguverð
• Húsgjöld
• Gildandi deiliskipulag svæðis þ.e. lóðar og aðlægra lóða
• Tilvísun í gildandi aðalskipulag
• Skal leigusali leggja fram úttektarskýrslu (ástandsskýrslu), frá óháðum aðila, í henni skal m.a. skoða sérstak-
lega hvort húsnæðið sé myglulaust. Það skal gert áður en skrifað er undir leigusamning.
• Önnur gögn sem eru tilskilin til að uppfylla kröfur húslýsingar.
Nánar er fjallað um kröfur til tilboðsgjafa, um gagnaskil, leiguferli og matslíkan í köflum 3 til 6 í húslýsingu.
Leigutaki hefur skipað valnefnd til að meta innsend tilboð. Við val á hagkvæmustu lausn notast valnefnd við
fyrir fram skilgreint matslíkan þar sem búið er að skilgreina hvaða matsþættir eru lagðir til grundvallar og
hámarks vægi hvers og eins liggur fyrir. Þessir matsþættir eru:
• Leiguverð
• Gæði
• Staðsetning
• Nýsköpun & umhverfismál
Hér er því verið að vega saman ofangreinda matsþætti og eru tilboðsgjafar hvattir til að bjóða mismunandi
útfærslur í tilboðum sínum.
Leigutaki áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum.
Nánari upplýsingar um kröfur til leigusala, mat tilboða o.fl. koma fram í húslýsingu og fylgigögnum hennar.
LEIGUHÚSNÆÐI ÓSKAST Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
NETVERSLUN gina.is
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Verð kr. 12.500
Verð kr. 11.900
Verð kr. 13.500
Sími 588 8050.
- vertu vinur
SANDBLÁSTUR
& MÁLUN
Á stáli, tré ofl
WWW. blastur.is
Þú kemur til okkar
eða við til þín!
Verkstæði & verktakar
Helluhrauni 6, 220 Hf.
s: 555-6005
Veiði
Silunganet • Sjóbleikjunet
Fyrirdráttarnet • Bleikjugildrur
Nýtt á afmælisári
Kraftaverkanet • margar tegundir
25% afmælisafsláttur
af Stálplötukrókum fyrir
handfæraveiðar
Að auki fylgja silunganetum
vettlingar í aðgerðinni
Bólfæri
Netpokar fyrir þyngingu
Og eitthvað meira skemmtileg
Heimavík 25 ára
01.05.1995 - 01.05.2020
Tveir góðir úr nýju netunum
Reynsla • Þekking • Gæði
heimavik.is, s. 892 8655
Húsviðhald
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu
starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting
og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings
að vel takist til.