Morgunblaðið - 27.06.2020, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 2020
✝ Hafþór IngiJónsson fæddist
í Reykjavík 12. júní
1946. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 11. júní
2020. Faðir hans
var Jón Jóhann-
esson veit-
ingaþjónn, f. 6.10.
1917, d. 22.10. 1996.
Móðir hans var Ey-
gerður Bjarnfreðs-
dóttir húsfreyja, f. 4.1. 1927, d.
4.4. 1991.
Systir Hafþórs er Helga María
Jónsdóttir, f. 5.1. 1952. Synir
hennar og Ingimundar Magn-
ússonar eru Jón Ingi, f. 1972,
Árni Þór, f. 1975 og Björn, f.
1979.
Hafþór kvæntist 20.12. 1980
Kristínu Egilsdóttur ritara, f.
17.6. 1952. Þau skildu 1997. Dótt-
ir þeirra er Eygerður Inga, f.
18.8. 1983, sjúkraþjálfari, búsett í
Saint Augustine í Florida. Eig-
inmaður hennar er Jacob Fouts
Hafþór var fulltrúi á lög-
mannsstofu Þorvaldar Þórarins-
sonar hrl. frá maí-ágúst 1975 og
tók við rekstri stofunnar frá
þeim tíma eftir andlát Þorvaldar
og rak hana til september 1981.
Frá þeim tíma og til september
1989 var Hafþór fram-
kvæmdastjóri Lögmannafélags
Íslands, en frá þeim tíma fram á
mitt ár 2006 rak hann aftur lög-
mannsstofu í Reykjavík, en varð
þá að hætta störfum vegna veik-
inda.
Hafþór var mikill áhugamað-
ur um íþróttir og lék knatt-
spyrnu og handknattleik með
Knattspyrnufélaginu Fram.
Hann gegndi einnig félagsstöfum
fyrir félagið og var um tíma for-
maður stjórnar handknattleiks-
deildar þess. Hann var mikill
stuðningsmaður Manchester
United á Englandi. Hafþór var
einnig áhugamaður um skák og
tefldi talsvert sjálfur.
Útför Hafþórs fór fram 26.
júní 2020 í kyrrþey að hans ósk.
sjúkraþjálfari, f.
1986. Synir þeirra
eru Tristan, f. 2015,
og Kristofer, f. 2017.
Stjúpdóttir Haf-
þórs er Auður Guð-
mundsdóttir, f. 5.6.
1972. Börn hennar
eru Aron, f. 2001, og
Aníta, f. 2003.
Hafþór lauk
verslunarprófi frá
Verzlunarskóla Ís-
lands 1965 og stúdentsprófi frá
sama skóla 1967. Hann lauk emb-
ættisprófi í lögfræði frá Háskóla
Íslands 1974 og stundaði fram-
haldsnám í vátryggingarétti við
Kaupmannahafnarháskóla 1974-
1975. Hann öðlaðist réttindi til
málflutnings fyrir héraðsdómi í
nóvember 1976. Á námsárunum
stundaði Hafþór ýmsa sum-
arvinnu, svo sem hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins á Seyðisfirði og
á Reyðarfirði og gangstétt-
arlagningu og byggingarvinnu í
Reykjavík.
Elsku besti pabbi minn.
Það er svo erfitt að meðtaka að
þú hefur yfirgefið þetta jarðlíf og
orð fá ekki lýst hversu mikið ég
sakna þín. Ég á svo margar góðar
minningar frá mínum uppvaxtar-
árum. Við fórum tvö saman í ótal
gönguferðir upp á Úlfarsfell og
Esjuna. Þegar ég var ca. 9-10 ára
og byrjuð að æfa íþróttir fórum við
reglulega í Elliðaárdalinn og
Heiðmörkina og hlupum saman.
Ég minnist ótal sundlaugaferða og
ísbíltúra, bara við saman. Við
höfðum bæði brennandi áhuga á
íþróttum og við horfðum á alla Ól-
ympíuleika, heimsmeistaramót í
knattspyrnu og frjálsum og vökt-
um fram eftir að horfa á úrslita-
keppni NBA-deildarinnar. Þú
varst svo mikill aðdáandi Man-
chester United og við horfðum á
ófáa leiki saman.
Þú varst mikill áhugamaður um
skák og kenndir mér snemma að
tefla. Þú talaðir um það seinast
fyrir nokkrum mánuðum að kenna
afastrákunum þínum að tefla og
ég heiti því að við munum gera
það. Þú hafðir einnig mikinn
áhuga á tónlist, sérstaklega
kántrýmúsík. Þú varst með sér-
staka kántrýstöð í gegnum kan-
ann og ég man að við hlustuðum
saman á kassettur með kántrý-
músík og sungum saman með.
Það hlýjar mér einnig um
hjartarætur að hugsa um minn-
ingar síðastliðinna ára þegar þú
komst og dvaldir hjá okkur fjöl-
skyldunni á Flórída. Okkur fannst
svo gott að hafa þig. Þú og Jacob
minn gátuð talað tímunum saman
um íþróttir og stundum í gríni
þrætt um hitt og þetta sem við-
kom íþróttum. Ég veit hvað þér
þótti vænt um Jacob og þú elsk-
aðir litlu afastrákana þína út af líf-
inu.
Þú hefur alltaf verið einstak-
lega góður pabbi. Þú hefur kennt
mér svo ótrúlega marga hluti,
fyrst og fremst hlýhug og kærleik
og að vera góð við alla. Þú varst
mjög metnaðarfullur og kenndir
mér snemma að ég þyrfti að leggja
hart að mér til að ná árangri.
Ég hef alltaf verið mjög mikil
pabbastelpa. Ég hef alltaf getað
leitað til þín ef eitthvað bjátaði á
og þú hefur alltaf verið til staðar
fyrir mig. Ég á eftir að sakna mik-
ið okkar reglulegu löngu símtala
og þeirra fjölmörgu tölvupósta
sem við sendum fram og til baka.
Ég finn huggun í því að við bæði
vissum hversu okkur þótti óend-
anlega vænt hvoru um annað. Ég
veit að þú ert kominn á betri stað,
elsku pabbi minn, og þér hefur
verið tekið opnum örmum af
ömmu og afa og þínum bestu vin-
um, Óla Axels og Bóa.
Ég elska þig að eilífu, elsku
pabbi minn. Ég bið Guð um að
varðveita þig. Minning þín mun
lifa að eilífu í hjarta mínu.
Þín
Eygerður Inga (Eyja).
Kær vinur, skólabróðir og
frændi, Hafþór Ingi Jónsson lög-
fræðingur, er fallinn frá. Á þess-
um tímamótum reikar hugurinn
aftur til hinna áhyggjulitlu ung-
dómsára á sjöunda og áttunda
áratug síðustu aldar þegar við
vorum bekkjarbræður í Verzlun-
arskóla Íslands og síðan í laga-
deild Háskóla Íslands. Á þessum
árum störfuðum við einnig tals-
vert saman á sumrin, m.a. hjá
Síldarverksmiðju ríkisins á Aust-
fjörðum og við gangstéttalagn-
ingu í Reykjavík. Þetta var ljúfur
og skemmtilegur tími og ýmislegt
brallað sem oft hefur verið rifjað
upp síðan og haft gaman af. Hvort
sem var við nám eða vinnu var
Hafþór harðduglegur og sam-
viskusamur og hans eðlislæga
skyldurækni ávallt til staðar.
Hann var afar góður samstarfs-
maður þótt hann gæti stundum
verið nokkuð fastur á sinni mein-
ingu um hlutina.
Eftir framhaldsnám í lögfræði
við Kaupmannahafnarháskóla réð
Hafþór sig sem fulltrúi á lög-
mannsstofu Þorvaldar Þórarins-
sonar hæstaréttarlögmanns vorið
1975. Nokkrum mánuðum síðar
féll Þorvaldur óvænt frá og skip-
uðust mál þannig að Hafþór tók
yfir rekstur stofunnar með samn-
ingi við dánarbúið og var hann
þannig orðinn sjálfstætt starfandi
fyrr en áætlað var. Á árinu 1981
tók hann við starfi framkvæmda-
stjóra Lögmannafélagsins og
sinnti því í um átta ár, en hvarf þá
aftur til lögmannsstarfa. Hvort
sem var í lögfræðistörfunum eða
starfi framkvæmdastjóra var
Hafþór farsæll og lét ekki standa
upp á sig með að ljúka verki.
Hafþór var alla tíð mikill
áhugamaður um íþróttir af ýmsu
tagi. Hann var fjölfróður um þau
efni, t.d. um ýmis met og önnur af-
rek, og átti það til að leiðrétta
íþróttaþuli þegar þeir fóru ekki
rétt með í þeim efnum. Hann var
mikill Framari og lék með félag-
inu og tók síðar þátt í félagsstörf-
um innan þess, m.a. sem formaður
handknattleiksdeildar. Hann var
eldheitur stuðningsmaður Man-
chester United og hafði sterkar
skoðanir á því félagi og rekstri
þess. Er enn í fersku minni ferð
okkar og fleiri á Old Trafford,
heimavöll félagsins, og Goodison
Park, heimavöll Everton, sem far-
in var í tilefni af sextugsafmæli
Hafþórs. Það var mjög vel lukkuð
ferð þar sem við sáum bæði
heimaliðin vinna sína leiki og
heimsóttum Bítlasafnið í Liver-
pool í leiðinni.
Sólargeislarnir í lífi Hafþórs
eru Eyja dóttir hans og afastrák-
arnir tveir. Samband þeirra feðg-
ina var greinilega einstaklega gott
og ástríkt og hann studdi hana
með ráðum og dáð, hvort sem var í
náminu eða í íþróttunum, en þar
áttu þau sameiginlegt áhugamál.
Hafþór átti við erfið veikindi að
stríða á síðari árum sem settu æ
meira mark á hans daglega líf, en
nú er hann laus undan því oki. Á
kveðjustundu þakka ég mínum
gamla góða vini fyrir allt og allt og
óska honum góðrar heimferðar.
Eyju, Auði stjúpdóttur hans sem
sinnti honum einstaklega vel síð-
ustu dagana og Helgu systur hans
og fjölskyldum þeirra sendum við
Kristín innilegar samúðarkveðj-
ur. Góður drengur hefur kvatt.
Ólafur G. Gústafsson.
Gamall vinur minn og sam-
starfsmaður hjá Lögmannafélagi
Íslands, Hafþór Ingi Jónsson lög-
fræðingur, andaðist 11. júní.
Við Hafþór vorum á sama tíma
við nám í lagadeild Háskóla Ís-
lands, en þekktumst reyndar líka
gegnum fótboltann en við vorum
báðir heitir Framarar. Í laga-
deildinni vorum við ásamt Gesti
Jónssyni í sigursælu fótboltaliði
sem bar heitið Léttfeti Utd.
Nánustu kynni mínum af Haf-
þóri voru samt þegar ég var for-
maður Lögmannafélagsins árin
1983-1986. Hann hafði tekið til
starfa sem framkvæmdastjóri
þess á árinu 1981 og áttum við
mjög nána samvinnu á vettvangi
félagsins allan minn stjórnartíma.
Stjórnarfundir voru haldnir viku-
lega síðdegis á miðvikudögum.
Oftast var dagskráin þétt setin af
hinum margvíslegu málum sem
stjórnin þurfti að fjalla um. Ég
mætti fundardagana tveimur til
þremur klukkustundum fyrir
upphafstíma fundar. Hafþór lagði
þá fyrir mig dagskrárliðina og oft
drög sín að bókunum um af-
greiðslu þeirra. Verk sín vandaði
hann afburðavel enda má segja að
Hafþór hafi verið mikill ná-
kvæmnismaður í vinnubrögðum.
Það sparaði mikla vinnu að hafa
þennan dugmikla lögfræðing að
þessum störfum hjá félaginu og
reyndar líka við alls kyns aðra
sýslan á vettvangi þess.
Hafþór hvarf síðan til annarra
starfa einhverjum árum síðar og
starfaði m.a. sem fulltrúi fyrir
starfandi lögmenn þegar mál
þeirra voru tekin fyrir á regluleg-
um dómþingum í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Þá hikaði hann ekki
við að gera kröfur til lögmann-
anna sem hann vann fyrir um
vandaðan frágang málanna, jafn-
vel svo að sumir kveinkuðu sér
undan.
Með tímanum kenndi Hafþór
sér sjúkdóms sem ágerðist smátt
og smátt. Varð hann að láta af
störfum af hans sökum og dró sig
þá einnig mikið út úr samskiptum
við aðra. Hann hélt þó áfram góðu
sambandi við nokkra gamla skóla-
félaga.
Á þessari kveðjustund er mér
ofarlega í huga þakklæti til þessa
góða drengs fyrir samvinnuna,
sem aldrei bar nokkurn skugga á.
En fyrst og fremst sakna ég góðs
vinar og hinnar málefnalegu sam-
stöðu sem við nutum hvor af öðr-
um alla tíð.
Jón Steinar
Gunnlaugsson.
Kær vinur hefur kvatt þennan
heim.
Þann 11. júní lést Hafþór Ingi
Jónsson eftir skamma legu.
Leiðir okkar lágu fyrst saman
sem keppinautar í yngri flokkun-
um í fótbolta, ég í KR og hann í
Fram.
1958 börðust liðin um fyrsta Ís-
landsmeistaratitil í 5. flokki og
höfðum við betur. Þeir tóku hins
vegar Reykjavíkur- og haustmót-
ið.
1961 urðum við svo bekkjar-
félagar í Versló.
Það voru góðir tímar, ungir
menn að taka sín fyrstu skref til
framtíðar í góðum félagsskap.
Þar urðum við góðir vinir sem
staðið hefur til þessa dags.
Við áttum góða tíma í Versló,
en það var þó hinn sameiginlegi
áhugi okkar á íþróttum sem
tengdi okkur saman, en þar vor-
um við alætur.
Haustið 1968 hófum við nám í
lagadeild HÍ. Nokkrir félagar
okkar úr Versló höfðu valið lög-
fræðina 1967, en ég fór í ÍKÍ og
Haffi í viðskiptafræði.
Í lögfræðinni urðum við eins og
tvíburar, alltaf saman, studdum
hvor annan í námi sem okkur
fannst ekki mjög skemmtilegt, en
vorum staðráðnir í að standa okk-
ur.
Þar kom einnig enski boltinn
inn, en þar vorum við heldur ekki
á sama róli. Hann United- en ég
Liverpool-maður. Það breytti þó
engu um það að á mánudögum
biðum við spenntir eftir umfjöllun
Halls Símonarsonar um enska
boltann í Vísi, auk ensku blaðanna
sem hægt var að fá í Ísafold.
Haffi var ekki aðeins frábær
vinur og félagi. Hann var einnig
úrvalsnámsmaður, alltaf einn af
þeim efstu í Versló og dúxaði á
lagaprófinu.
Hann var einnig góður íþrótta-
maður, handboltinn var hans að-
algrein og hann spilaði með Fram
upp í meistaraflokk, var í körfu-
bolta í ÍR og baneitraður í innan-
hússfótbolta sem við stunduðum
af kappi fram til fertugs. Hann
hafði mikið keppnisskap sem
nýttist honum vel þegar hann
tókst á við Bakkus og hafði betur.
Það er margs að minnast þegar
horft er til baka.
Vorið 1965 vorum við herberg-
isfélagar í útskriftarferð til Köben
og um sumarið fórum við á síld á
Seyðisfjörð, en þá brást síldin en
við skemmtum okkur vel.
Notuðum námslánið eftir fyrri
hluta í lögfræðinni til að fara fót-
boltaferð til London með Bjarna
Fel sem fararstjóra.
Fórum ógleymanlega ferð til
Köben með LMFI og loks til
Manchester 2007 með Óla Gúst og
Grétari Má syni hans, frábæra
ferð og auðvitað vann United og
okkar maður var kátur.
En nú er komið að leiðarlokum.
Haffi var lengst af heilsugóður,
en fyrir u.þ.b. 15 árum fór heilsan
að gefa sig og seinustu árin voru
vini mínum erfið. Hann var þó
alltaf í sambandi við augasteininn
sinn, einkadótturina Eyju og
heimsótti hana tvívegis til Flórída
á seinustu árum, sem var honum
afskaplega mikils virði og hann
var mjög stoltur af afastrákunum
sínum.
Við héldum alltaf góðu sam-
bandi, hittumst reglulega og töl-
uðum mikið saman í síma og nú
skal þakkað fyrir áratuga vináttu,
ótal ánægjustundir og það að hafa
fengið að vera honum samferða
um stund.
Innilegar samúðarkveðjur eru
sendar til dótturinnar Eyju,
Helgu systur hans og Auðar
stjúpdóttur og fjölskyldna þeirra.
Blessuð sé minning Hafþórs
Inga Jónssonar.
Far í friði, kæri vinur.
Guðmundur
Pétursson.
Hafþór Ingi Jónsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN ARNBERG
skipstjóri,
lést á Gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut laugardaginn 20. júní.
Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 29. júní
klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á SOS Barnahjálp.
Laufey Dagmar Jónsdóttir
Kristgeir Arnar Ólafsson Erna Pálmey Einarsdóttir
Hallfreður G. Bjarnason Díanna Rut Jóhönnudóttir
Óðinn Arnberg Kristinsson Svava Berglind Grétarsdóttir
Jón Arnberg Kristinsson Eva Hrund Guðmarsdóttir
Kristinn Arnberg Kristinsson Eygló Ýr Ævarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 11-16 virka daga
Ástkær og elskulegur sonur okkar, bróðir,
mágur og frændi,
SIGURBJÖRN M. THEODÓRSSON,
Heimagötu 37,
Vestmannaeyjum,
lést á heimili sínu 22. júní.
Útför mun fara fram í Landakirkju miðvikudaginn 8. júlí
klukkan 14.
Theodór S. Ólafsson Margrét Sigurbjörnsdóttir
Þorbjörg Theodórsdóttir Haukur Logi Michelsen
Hafþór Theodórsson Hanna R. Björnsdóttir
Júlíanna Theodórsdóttir Ingólfur Ingólfsson
Bára Theodórsdóttir Tommy Westman
Björk Theodórsdóttir
Harpa Theodórsdóttir Örvar G. Arnarson
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín og móðir mín,
VALGERÐUR MARINÓSDÓTTIR
hagfræðingur,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
þriðjudaginn 23. júní.
Útför fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Guðmundur Sigurðsson
Guðbjörg Erla Guðmundsdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LILLIAN SIMSON,
Grenimel 3,
er látin.
Guðrún Dröfn Ragna Björk
fjölskylda og aðrir ástvinir